Manndráp í Gufunesi
Hinir grunuðu lausir úr einangrun Þrír karlmenn sem grunaðir eru um frelsissviptingu, fjárkúgun og manndráp í máli karlmanns sem fannst illa úti leikinn í Gufunesi fyrir fjórum vikur losna úr einangrun í dag. Þeir sitja eftir sem áður í gæsluvarðhaldi næstu fjórar vikurnar. Innlent 9.4.2025 15:04
Það sem við vitum og vitum ekki um manndrápið hrottalega Þrír karlmenn sæta enn einangrun grunaðir um aðkomu að manndrápi karlmanns í Þorlákshöfn á sjötugsaldri. Tveir þeirra hafa komið við sögu lögreglu í umtöluðum sakamálum. Spurningunni hvernig og hvers vegna ofbeldisfólkið komst í samband við karlmanninn er ósvarað. Vinkona segir hinn látna hafa verið einstakan mann. Innlent 4.4.2025 07:03
Tveimur sleppt og þrír eftir í haldi Karli og konu sem grunuð eru um aðild að manndrápi, frelsissviptingu og fjárkúgun, í máli sem kennt hefur verið við Gufunes hefur verið sleppt úr haldi. Þau hafa enn réttarstöðu sakbornings. Þrír karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Innlent 2.4.2025 16:36
Gæsluvarðhald tveggja stytt um tvær vikur Landsréttur stytti á föstudag gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir Stefáni Blackburn og öðrum manni, en þeir eru báðir grunaðir um aðild að manndrápi, frelsissviptingu og fjárkúgun. Lögmaður annars þeirra segir lögreglu og dómstóla beita einangrunargæsluvarðhaldi af of mikilli léttúð. Innlent 26.3.2025 18:48
Tveimur konum sleppt en fimm dúsa enn inni Fyrr í dag var tveimur konum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglustjórans á Suðurlandi á meintu manndrápi, frelsissviptingu og fjárkúgun, sleppt úr haldi. Innlent 25.3.2025 16:49
Nafn hins látna í manndrápsmálinu Hjörleifur Haukur Guðmundsson, búsettur í Þorlákshöfn, lést 11. mars síðastliðinn 65 ára að aldri. Andlát hans hefur síðan verið til rannsóknar lögreglunnar á Suðurlandi, líkt og fjallað hefur verið um. Innlent 20.3.2025 20:14
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Héraðsdómur Suðurlands féllst síðdegis á kröfu lögreglunnar á Suðurlandi að úrskurða þrjá í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við manndrápsmálið í Gufunesi. Gæsluvarðhald var framlengt yfir tveimur karlmönnum í fjórar vikur og yfir einni konu í viku. Innlent 19.3.2025 18:16
Bíða enn niðurstöðu um varðhald Gerð hefur verið krafa um framlengingu gæsluvarðhalds um eina viku yfir þremur sakborningum í manndrápsmálinu í Gufunesi og bíður lögreglan á Suðurlandi niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands. Gæsluvarðhald yfir þeim rennur að óbreyttu út í dag. Innlent 19.3.2025 14:50
Handtóku einn til viðbótar Lögreglan á Suðurlandi hefur lagt fram kröfu um gæsluvarðhald yfir einstaklingi sem handtekinn var í gærkvöld. Einnig hefur verið lögð fram krafa um framlengingu gæsluvarðhalds yfir þremur einstaklingum vegna rannsóknar á manndrápsmálinu í Gufunesi. Innlent 18.3.2025 19:24
Mikið af gögnum sem þarf að yfirfara „Það er hægt og bítandi að koma mynd á málið, en náttúrulega heilmikil vinna eftir og mikið af gögnum sem á eftir að yfirfara,“ segir Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, um rannsókn á andláti karlmanns, sem fannst látinn í Gufunesi síðastliðinn þriðjudag. Innlent 17.3.2025 11:28
Sjötti úrskurðaður í gæsluvarðhald Karlmaður var úrskurðaður í gæsluvarðhald í morgun og lagt hefur verið hald á bifreið í tengslum við rannsókn á andláti karlmanns, sem fannst látinn í Gufunesi. Innlent 16.3.2025 11:58
Rannsókninni miðar vel áfram Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á andláti karlmanns á sjötugsaldri sem fannst í Gufunesi á þriðjudaginn miðar vel að sögn yfirlögregluþjóns. Fimm eru í gæsluvarðhaldi, þrír karlmenn og tvær konur. Innlent 15.3.2025 13:21
Fimmti úrskurðaður í varðhald Héraðsdómur Suðurlands féllst í dag á kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um að konu og karlmanni yrði gert að sæta gæsluvarðhaldi í eina viku vegna rannsóknar Lögreglunnar á Suðurlandi á manndrápi, frelsissviptingu og fjárkúgun. Innlent 14.3.2025 17:17
Fara fram á gæsluvarðhald yfir þeim fjórða Lögreglan á Suðurlandi ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir sakborningi vegna rannsóknar á manndrápsmáli. Ef Héraðsdómur Suðurlands fellst á það verða fjórir einstaklingar í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Innlent 14.3.2025 15:19
Réttlæta ofbeldi með því að þolandi eigi það skilið Dósent í afbrotafræði við Háskóla Íslands segir fangelsin full af ofbeldisfólki sem telja sín brot vægara eðlis en annarra. Fréttir af manndrápi í Gufunesi á dögunum sé til marks um varhugaverða þróun. Innlent 13.3.2025 20:31
Einn handtekinn til viðbótar í manndrápsmáli Einn til viðbótar hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á manndrápi. Tveir karlar og eina kona sæta gæsluvarðhaldi en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lítið verið að fá upp úr sakborningum sem sæta varðhaldi næstu vikuna. Alls hafa níu verið handteknir við rannsókn málsins. Innlent 13.3.2025 17:08
Smæðin auki hættu á sögusögnum og óþarfa ágiskunum Flóknar og sterkar tilfinningar losna úr læðingi þegar harmleikur á sér stað í litlu samfélagi og geta þeir haft djúpstæð áhrif á samfélagið allt. Smæð landsins getur ekki eingöngu leitt til sterkra tilfinningaviðbragða heldur einnig hættu á sögusögnum og óþarfa ágiskunum. Innlent 13.3.2025 14:15
Manndrápsrannsóknin: Myndin að verða „skýrari og skýrari“ „Rannsóknin er enn á frumstigi. Það er mikil gagnaöflun í gangi og mikið um skýrslutökur. En í þeirri vinnu er að verða skýrari og skýrari mynd. En ég tek aftur fram að við erum á frumstigi,“ segir Jón Gunnar Þórhallsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi um rannsókn á manndrápi. Innlent 13.3.2025 11:02
Þrír í gæsluvarðhald vegna manndráps í Gufunesi Þrír karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir að maður fannst illa haldinn í Gufunesi. Hann var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi. Alls voru átta manns handteknir en fimm þeirra hafa verið látnir lausir. Rannsókn lögreglu beinist að frelsissviptingu, fjárkúgun og manndrápi. Innlent 12.3.2025 21:32
Þrír í vikulangt gæsluvarðhald Lögreglan á Suðurlandi framkvæmir nú rannsókn á bíl sem, samkvæmt heimildum, er talinn hafa verið notaður til að ferja mann á sjötugsaldri frá Þorlákshöfn og til Reykjavíkur þar sem gengið var í skrokk á honum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er enn leitað sönnunargagna í málinu. Innlent 12.3.2025 10:06
Nokkur hinna handteknu tengjast tálbeituhópum Nokkrir þeirra sex sem lögregla hefur handtekið vegna rannsóknar á manndrápi í nótt tengjast svokölluðum tálbeituhópum samkvæmt heimildum fréttastofu. Einhverjir þeirra hafa áður verið dæmdir fyrir ljót ofbeldisbrot. Innlent 11.3.2025 19:57
Vaktin: Fannst þungt haldinn í Gufunesi og lést skömmu síðar Lögregla handtók í gær átta manns vegna gruns um að tengjast andláti karlmanns sem fannst látinn í Grafarvogi í Reykjavík í gær. Áverkar á hinum látna benda til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Þremur var sleppt að yfirheyrslum loknum sem stóðu fram á nótt. Tekin verður ákvörðun um gæsluvarðhald síðar í dag. Innlent 11.3.2025 17:41
Maður handtekinn en kona flúði í máli sem tengist andlátinu Lögreglan veitti bíl eftirför í Kópavogi, meðal annars hjá verslunarkjarnanum í Lindum, fyrr í dag. Bíllinn sem lögregla elti er talin tengjast andláti sem er til rannsóknar á Suðurlandi. Innlent 11.3.2025 17:01
Fimm í haldi vegna rannsóknar á andláti Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar andlát karlmanns sem lést snemma í morgun í umdæmi Lögreglunnar á Suðurlandi. Áverkar á hinum látna benda til að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 11.3.2025 15:40