Apple skipað að greiða þúsundir milljarða vegna ógreiddra skatta í Írlandi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. ágúst 2016 10:15 Sektin er ein sú stærsta í sögunni. Vísir/Getty
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur úrskurðað að bandaríski tæknirisinn Apple þurfi að greiða írskum yfirvöldum allt 13 milljarða evra, um 1700 milljarða króna, vegna vangreiddra skatta þar í landi. Samkeppnisyfirvöld í ESB hafa undanfarin ár rannsakað skattgreiðslur Apple í Írlandi. Hefur fyrirtækið nýtt sér úrskurði írskra yfirvalda sem gerir Apple kleift að lágmarka skattgreiðslur sínar á Írlandi. Fyrirtækið nýtir sér þetta fyrirkomulag með því að beina stórum hluta tekna af alþjóðlegri sölu á vörum sínum í gegnum Írland. Framkvæmdastjórn ESB segir að fyrirkomulagið hafi gert það að verkum að Apple hafi greitt rúmlega eitt prósent af tekjum sínum í Evrópu í skatt árið 2003 og að árið 2014 hafi hlutfallið verið 0,005 prósent. Framkvæmdastjórn ESB hefur nú úrskurðað að þetta jafngildi ríkisaðstoð af hálfu írska ríkisins sem hafi gert Apple, umfram önnur fyrirtæki, kleift að greiða umtalsvert lægri skatta á Írlandi en önnur fyrirtæki um árabil. Þetta sé ólöglegt samkvæmt lögum ESB sem heimila ekki að völdum fyrirtækjum séu veittar slíkar ívilnanir. Apple er verðmætasta fyrirtæki heimsins í dag en samkvæmt lista Forbes er fyrirtækið metið á um 525 milljarða dollara, um 61 þúsund milljarð króna. Apple ætti að hafa efni á skattgreiðslunum sem þeim hefur nú verið skipað að greiða til baka en talið er að fyrirtækið sitji á varasjóði sem nemur 200 milljörðum dollara, um 20 þúsund milljörðum króna. Búist er við að bæði Apple og írska ríkisstjórnin muni áfrýja úrskurði Framkvæmdastjórnar ESB.
Tækni Tengdar fréttir Apple stendur frammi fyrir risavöxnum reikningi vegna ógreiddra skatta Samkeppnisyfirvöld í Evrópusambandinu hafa undanfarin þrjú ár rannsakað skattamál Apple í Írlandi. 29. ágúst 2016 21:37 ESB rannsakar skattamál Apple og Starbucks Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar að rannsaka fyrirkomulag þriggja stórfyrirtækja við lönd í sambandinu. 12. júní 2014 08:45 Mest lesið Hvar er opið um páskana? Neytendur Systkinin öll verið forsetar: „Tvö félög, tvöfalt stuð!“ Atvinnulíf Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Viðskipti innlent Spotify liggur niðri Neytendur Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Viðskipti innlent Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Viðskipti innlent Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Tímamótasamkomulag um að draga úr losun skipaflotans Viðskipti erlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tímamótasamkomulag um að draga úr losun skipaflotans Hlutabréfaverð í Asíu hækkar Trump hafi „ekki hugmynd“ um hvað hann sé að gera Færri fara til Bandaríkjanna en fækkunin hvað mest frá Íslandi Kínverjar svara fyrir sig og hækka enn tolla á bandarískar vörur Órói á mörkuðum heldur áfram og gullverð aldrei hærra Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent Prada kaupir Versace á 183 milljarða króna Evrópusambandið frestar tollahækkunum Kauphallir rétta úr kútnum Hækkar tolla á Kína og samþykkir níutíu daga „hlé“ fyrir tugi ríkja Trump boðar „stórfellda“ tolla á lyf en Róbert hefur ekki áhyggjur Trump-tollar tóku gildi í nótt Bjartara yfir við opnun markaða Gefur reikniformúlu tollgjaldanna falleinkunn Leggja til 25 prósent tolla á valdar bandarískar vörur Trump hótar Kínverjum 50 prósenta viðbótartolli Áfram lækkanir við opnun markaða í Evrópu Enn meiri lækkanir í Asíu við opnun markaða Jaguar Land Rover stöðvar sendingar vegna tollahækkana Leiðtogar ESB íhuga háa sekt á X og Musk Verðfall á Wall Street Talaði gegn eigin ráðgjöfum um tollana Lækkanir í Asíu halda áfram Bezos sagður hafa boðið í Tiktok Vaktin: Tollar Trump valda usla Tæknirisarnir sjö fengu skell þegar markaðir opnuðu Ísland ekki á spjaldi Trumps en fær samt tíu prósenta toll Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Íhuga hærri tolla á alla Sjá meira
Apple stendur frammi fyrir risavöxnum reikningi vegna ógreiddra skatta Samkeppnisyfirvöld í Evrópusambandinu hafa undanfarin þrjú ár rannsakað skattamál Apple í Írlandi. 29. ágúst 2016 21:37
ESB rannsakar skattamál Apple og Starbucks Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar að rannsaka fyrirkomulag þriggja stórfyrirtækja við lönd í sambandinu. 12. júní 2014 08:45