Li Na vann Sharapovu og mætir Azarenku í úrslitunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2013 09:15 Li Na. Mynd/NordicPhotos/Getty
Kínverska tenniskonan Li Na er komin í úrslit á opna ástralska mótinu eftir frábæran sigur á Maria Sharapova frá Rússlandi í undanúrslitaviðureign þeirra í morgun. Þetta eru óvænt úrslit enda Sharapova röðuð númer tvö inn í mótið. Li Na vann leikinn af öryggi en hún tók bæði settin 6-2. Hún fylgdi því eftir öðrum óvæntum sigri sínum í átta manna úrslitunum þegar hún vann Agnieszka Radwanska sem var þá búin að vinna þrettán leiki í röð. Victoria Azarenka er líka komin í úrslitaleikinn eftir öruggan sigur á Sloane Stephens 6-1 6-3. Sloane Stephens kom mikið á óvart með því að slá út Serenu Williams í átta manna úrslitunum. Victoria Azarenka og Li Na mætast í úrslitaleiknum á laugardaginn en þar hefur Azarenka titil að verja. Azarenka vann Mariu Sharapova í úrslitaleiknum í fyrra en það er fyrsti og eini sigur hennar á risamóti. Li Na er í sínum þriðja úrslitaleik á risamóti en eini sigurinn hennar var á opna franska árið 2011. Hún tapaði fyrir Kim Clijsters í úrslitaleiknum á opna ástralska fyrir tveimur árum. Kínverska tenniskonan Li Na er komin í úrslit á opna ástralska mótinu eftir frábæran sigur á Maria Sharapova frá Rússlandi í undanúrslitaviðureign þeirra í morgun. Þetta eru óvænt úrslit enda Sharapova röðuð númer tvö inn í mótið. Li Na vann leikinn af öryggi en hún tók bæði settin 6-2. Hún fylgdi því eftir öðrum óvæntum sigri sínum í átta manna úrslitunum þegar hún vann Agnieszka Radwanska sem var þá búin að vinna þrettán leiki í röð. Victoria Azarenka er líka komin í úrslitaleikinn eftir öruggan sigur á Sloane Stephens 6-1 6-3. Sloane Stephens kom mikið á óvart með því að slá út Serenu Williams. Victoria Azarenka og Li Na mætast í úrslitaleiknum á laugardaginn en þar hefur Azarenka titil að verja. Azarenka vann Mariu Sharapova í úrslitaleiknum í fyrra en það er fyrsti og eini sigur hennar á risamóti. Li Na er í sínum þriðja úrslitaleik á risamóti en eini sigurinn hennar var á opna franska árið 2011. Hún tapaði fyrir Kim Clijsters í úrslitaleiknum á opna ástralska fyrir tveimur árum.
Íþróttir Mest lesið Sniðganga var rædd innan HSÍ Handbolti Rice hlustaði ekki á Ødegaard sem sagði honum að gefa fyrir Fótbolti Martraðardvöl Bjarka hjá Brann: Valinn verstu kaup tímabilsins Fótbolti Brady óskaði Willum, Alfonsi og félögum til hamingju Enski boltinn Myndaveisla: Þrenna Karólínu Leu tryggði Íslandi stig Fótbolti Denver reka þjálfarann korter í úrslitakeppni Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeild Evrópu og úrslitakeppni kvenna í körfu Sport Afturelding mætir Val í undanúrslitum Handbolti Skytturnar skutu Evrópumeistarana í kaf Fótbolti Elísabet stýrði Belgíu til sigurs á Englandi Fótbolti Fleiri fréttir Liva Ingebrigtsen: „Ég sá hrylling“ Martraðardvöl Bjarka hjá Brann: Valinn verstu kaup tímabilsins Rice hlustaði ekki á Ødegaard sem sagði honum að gefa fyrir Sniðganga var rædd innan HSÍ Brady óskaði Willum, Alfonsi og félögum til hamingju Myndaveisla: Þrenna Karólínu Leu tryggði Íslandi stig Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeild Evrópu og úrslitakeppni kvenna í körfu Denver reka þjálfarann korter í úrslitakeppni „Meiri barátta í okkur í dag heldur en í hinum leikjunum“ Afturelding mætir Val í undanúrslitum „Erum á uppleið og ætlum að halda áfram“ Íslendingalið Birmingham upp í B-deild Elísabet stýrði Belgíu til sigurs á Englandi Óðinn Þór byrjaði úrslitakeppnina með stæl „Þarf alltaf að hugsa um það versta sem getur gerst“ „Ég hefði tekið þrjú stig í staðinn“ Sjáðu þrennu Karólínu Leu Uppgjörið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Uppgjörið: Haukar - Grindavík 76-73 | Deildarmeistararnir fengu líflínu Skytturnar skutu Evrópumeistarana í kaf Frattesi hetja Inter í Bæjaralandi Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 88-58 | Mættu með sópinn Aron Elís með slitið krossband Flórída háskólameistari í fyrsta sinn í átján ár „Við völdum okkur ekki andstæðinga“ Ein breyting á byrjunarliðinu Aron í tveggja leikja bann Stúkan segir ekki rautt og framkvæmdastjórinn æfur: „Má leggja hana niður“ Landsliðskonum borist skilaboð og sagðar styðja Ísrael Stórir draumar í Laugardalnum: „Allir vilja að Þróttur fari sem hæst“ Sjá meira