Þrjú Íslandsmet féllu á ÍM50 í sundi í kvöld. Hrafnhildur Lúthersdóttir setti eina einstaklingsmetið en tvö met féllu í liðakeppni.
Karlasveit Fjölnis setti Íslandsmet í 4x200 metra skriðsundi. Þeir syntu á tímanum 7:46,24 mínútum og voru langt undir gamla metinu sem var 7:58,82 mínútur, sem sveit Ægis setti í árið 2006.
Sveitina skipa þeir Hilmar Smári Jónsson, Jón Margeir Sverrisson, Daníel Hannes Pálsson og Kristinn Þórarinsson.
Stúlknasveit ÍRB slógu svo stúlknametið í 4x200 metra skriðsundi kvenna þegar þær syntu á 8:51,91 mínútum. Þær enduðu í þriðja sæti í greininni. Gamla metið átti sveit ÍRB líka en það var 9:11,37.
Sveitina skipa þær Sylwia Sienkiewicz, Eydís Ósk Kolbeinsson, Sunneva Dögg Friðriksdóttir og Íris Ósk Hilmarsdóttir.
Þrjú Íslandsmet á fyrsta degi

Tengdar fréttir

ÍM50 hafið í Laugardalnum | Karen setti tvö telpnamet
Íslandsmótið í sundi í 50 metra laug hófst í Laugardalslauginni í dag þar sem tvö telpnamet voru sett. Fyrsta úrslitakvöldið af þremur hefst klukkan 17.30 í kvöld.

Íslandsmet hjá Hrafnhildi
Íslandsmótið í 50 metra laug hófst í Laugardalnum í dag. Hrafnhildur Lúthersdóttir sló fyrsta Íslandsmet helgarinnar í gær en fleiri met eiga eflaust eftir að falla.