
„Við erum ekki rasistar“
Samkvæmt heimildum fréttastofu er talsverð óánægja meðal margra Framsóknarmanna vegna ummæla Sveinbjargar Birnu, en hún sagði í viðtali á Vísi í gær að hún vildi afturkalla úhlutun lóðar undir mosku við Suðurlandsbraut.
Hallur Magnússon, fyrrverandi kosningastjóri Framsóknarflokksins, segir í grein sem birtist á Eyjunni að Sveinbjörg hefði forsmáð gildin umburðarlyndi og samvinnu sem Framsóknarflokkurinn hafi staðið fyrir um áratugaskeið. Hreiðar Eiríksson, sem skipar fimmta sæti lista flokksins, er hættur afskiptum af framboðinu vegna málsins og segir oddvitann ganga gegn stefnu flokksins.
„Ég hef skilið stefnu flokksins þannig að flokkurinn standi fyrir einingu og samvinnu og vernd mannréttinda,“ segir Hreiðar. „Þetta framboð hefur varið í vegferð sem ég get ekki farið með í.“
Guðfinna Jóhanna skipar annað sæti Framsóknar og flugvallavina. Hún segir mikla einingu ríkja meðal frambjóðenda og að engin krafa hafi komið um að Sveinbjörg stígi til hliðar.
„Nei, það hefur ekkert komið til tals, enda erum við öll fullir stuðningsmenn Sveinbjargar,“ segir Guðfinna. „Það eru ansi margir sem hafa komið á máli við okkur og lýst skoðun sinni að það sé ekki hægt að það hafi verið veitt frí lóð til trúfélags á meðan það er húsnæðisekkla í borginni. Það er ekki verið að hugsa um þá sem minna mega sín, það hefur verið lítil sem engin uppbygging á þessu kjörtímabili.“
Guðfinna segir Framsóknarmenn ekki hræðast slæmt umtal.
„Fólk þorir ekki að tala um þessa hluti,“ segir hún. „Það er hrætt við umræðuna, að vera stimplaðir sem rasistar og fá heilan her á Facebook og blogginu og athugasemdakerfum dagblaðanna að segja að fólk sé rasistar. En við virðum, í Framsókn og flugvallarvinum, trúfrelsi. Við erum ekki rasistar.“
Tengdar fréttir

„Maður stýrir ekki borg með því að mismuna fólki eftir trúarskoðunum“
Oddvitar allra flokka í Reykjavík sem rætt var við fordæma ummæli oddvita Framsóknarflokksins um byggingu mosku.

Oddviti Framsóknar og flugvallarvina með sólópróf í flugi
Segist ætla að ná tveimur borgarfulltrúum inn í borgarstjórn í vor en flokkurinn á engan borgarfulltrúa í dag.

Oddviti Framsóknar sakar Láru Hönnu um einelti
„Vona að lífið verði þér ánægjulegt án þess að hafa mig á vinalistanum þínum,“ skrifaði Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.

Sveinbjörg Birna oddviti Lista Framsóknar og flugvallarvina í Reykjavík
Þetta var tilkynnt á kjördæmisþingi Framsóknarmanna í Reykjavík fyrir skömmu.

Oddviti Framsóknar vill afturkalla lóð til múslima
"Ég hef búið í um eitt ár í Sádí Arabíu og byggi þessa skoðun mína ekki á fordómum, heldur reynslu," segir Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti lista Framsóknarflokksins og flugvallarvina. Hún telur að á meðan hér á landi sé þjóðkirkja eigi ekki að úthluta lóðar til byggingu mosku eða sambærilegra húsa annarra trúfélaga.

Segist ekki vera sammála oddvita flokksins - Vill þó afturkalla lóðaúthlutun
Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, sem skipar annað sæti Framsóknarflokksins, er á móti því að gefa lóðir til trúfélaga.