Systurnar Malín Brand og Hlín Einarsdóttir hafa játað að hafa sent Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra bréf þar sem þær reyndu að kúga fé út úr honum. Samkvæmt heimildum Vísis var bréf sent á heimili Sigmundar Davíðs og Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur á fimmtudaginn.
Click here for an English version
Þar var því hótað að gera upplýsingar opinberar sem eigi að tengja forsætisráðherra við kaup Björns Inga Hrafnssonar á DV í nóvember síðastliðnum. Farið var fram á að milljónir íslenskra króna yrðu greiddar ella yrðu upplýsingarnar gerðar opinberar.
Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að farið hafi verið að kröfum systranna í bréfinu.
Sjá einnig:Björn Ingi vill ekki tjá sig um málið
„Afhendingin var í sjálfu sér framkvæmd eftir bréfinu,“ segir Friðrik Smári en fjölmennt lögreglulið tók þátt í skipulagningu aðgerðarinnar.
Afhendingin fór fram sunnan Vallahverfis í Hafnarfirði þar sem önnur systirin sótti fjármunina fótgangandi á meðan hin beið hennar í bíl samkvæmt heimildum Vísis. Voru þær Hlín og Malín handteknar á staðnum.
Við yfirheyrslur játuðu konurnar að hafa sent umrætt bréf og var þeim sleppt að yfirheyrslum loknum. Málið hefur verið rannsakað og unnið í góðri samvinnu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og embættis ríkislögreglustjóra. Málið telst að mestu upplýst en að lokinni rannsókn verður það sent til ríkissaksóknara, sem tekur ákvörðun um næstu skref.
Lögreglan fór eftir skipunum systranna í bréfinu

Tengdar fréttir

Systurnar Malín og Hlín handteknar vegna tilraunar til fjárkúgunar á hendur forsætisráðherra
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu sendu þær bréf til Sigmundar þar sem þess var krafist að hann myndi reiða fram nokkrar milljónir króna.

Malín og Hlín játa að hafa reynt að kúga fé úr forsætisráðherra
Voru handteknar sunnan Vallahverfis í Hafnarfirði þar sem milljónum átti að hafa verið komið fyrir í tösku.

Hótuðu að tengja Sigmund Davíð við kaup Björns Inga á DV
Malín Brand og Hlín Einarsdóttir hafa játað tilraun til fjárkúgunar á hendur forsætisráðherra.