Hulda í öðru sæti í Gautaborg í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2015 22:08 Hulda Þorsteinsdóttir. MYND/FRÍ/GUNNLAUGUR JÚLÍUSSON
ÍR-ingurinn Hulda Þorsteinsdóttir varð í öðru sæti í stangarstökki á VU Spelen sem fór fram á á Ullevi-leikvanginum í Gautaborg í kvöld. Hulda stökk 4,26 metra en hún setti nýtt persónulegt met með því að stökkva 4,30 metra á á Innanfélagsmóti ÍR í Laugardalshöll á mánudagskvöldið. Mótið í Gautaborg er fjölmennasta opna frjálsíþróttamót sem haldið er á Norðurlöndum ár hvert og margir tugir Íslendinga að keppa á mótinu um helgina. Alls eru keppendur 3500 frá 20 löndum. Hulda flaug hátt yfir 4,26 metra en tókst ekki að fara yfir 4.35m enda að reyna sig á stífari og lengri stöngum en hún er vön. Hún varð í öðru sæti af nítján keppendum en þarna var hún að keppa á móti bestu stangarstökkvurum Svía, Norðmanna og Finna. Á sunnudaginn keppir Hulda aftur í boðshluta stangarstökks kvenna. Hulda er þriðji besti stangarstökkvari kvenna á Íslandi frá upphafi en aðeins Þórey Edda Elísdóttir og Vala Flosadóttir hafa farið hærra.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti Fleiri fréttir „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar „Við þurfum annan titil“ Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum „Við vorum yfirspenntar“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Sjá meira