Lögreglan harmar tafir á rannsókn: Hafa þurft að leita út fyrir landsteinana eftir sérfræðiþekkingu

Sjá einnig: Fimm starfsmenn Landspítalans með stöðu sakbornings í máli Nóa Hrafns
Málið var tilkynnt til Landlæknis hálfu ári eftir fæðingu drengsins og var kvörtunin í þrettán liðum. Haustið 2016 kærðu foreldrar hans svo málið til lögreglu en í gær var greint frá því í fréttum RÚV að ríkislögmaður hafði óskað eftir fresti. Síðan hafa liðið þrjú ár og engin svör hafa borist.
Í tilkynningu segir að ástæða tafanna sé ekki síst vegna þess hversu erfiðlega hefur gengið að fá hlutlausa fagaðila í málinu en við rannsókn málsins hefur þurft að leita út fyrir landsteinana eftir þeirri sérfræðiþekkingu sem krafist er.
Lögmaður hjónanna hefur tilkynnt ríkislögmanni að óskað sé eftir afstöðu hans sem fyrst.
Tengdar fréttir

Fimm starfsmenn Landspítalans með stöðu sakbornings í máli Nóa Hrafns
Hjónin Karl Olgeirsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir hafa beðið í þrjú ár eftir svörum frá ríkinu vegna læknamistaka sem ollu því að sonur þeirra lést fimm dögum eftir fæðingu.

„Af hverju kemur ekki einhver?“
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Karl Olgeir Olgeirsson eignuðust soninn Nóa Hrafn snemma árs í fyrra. Hann lést skömmu eftir fæðingu.

Páll Matthíasson: „Landspítalinn brást þessari fjölskyldu“
Forstjóri Landspítalans segir Landspítalann harma fráfall Nóa Hrafns og taka ábyrgð á þeirri atburðarás sem leiddi til andláts hans.

Landlæknir segir mikilvægt að tilkynna mistök og læra af þeim
Birgir Jakobsson landlæknir segir mikilvægt að embættið sé afdráttarlaust í niðurstöðum sínum vegna kvartana sjúklinga sem koma þangað inn á borð, en það var einmitt tilfellið í máli þeirra Sigríðar Eyrúnar Friðriksdóttur og Karls Olgeirs Olgeirssonar sem kvörtuðu til landlæknis eftir að nýfæddur sonur, Nói Hrafn, þeirra lést á spítalanum skömmu eftir fæðingu.