Samtök aðila í ferðaþjónustu, SAF, skiluðu stjórnvöldum tillögum sínum í vor um aðgerðir til að koma í veg fyrir að erlend fyrirtæki kæmu hingað til lands án tilskilinna leyfa. Fram kom að ef stjórnvöld gripu ekki í taumana strax til að efla eftirlit með brotastarfsemi erlendra fyrirtækja hér á landi væri líklegt að mörg íslensk ferðaþjónustufyrirtæki myndu neyðast til að flytja starfsemi sína úr landi.
Vinnumálastofnun fundaði með SAF í vor og í framhaldinu var ákveðið að fólk í ferðaþjónustu yrði hvatt til að senda stofnuninni ábendingar. Forstjórinn segist hafa fengið talsvert af slíkum ábendingum. „Það eru leiðsögumennirnir og hópferðabílarnir, þessar ábendingar snúa að þessu tvennu aðallega,“ segir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar. „Það er langmest frá Suðurlandi enda er mesta umferðin þar.“

Hún óttast að of mikið sé um að þeir sem aka hópferðabílum frá erlendum fyrirtækjum sé á mun lægri kjörum en íslenskir bílstjórar sem er ólöglegt. „Við óttumst það að kannski þeir sem eru að aka til dæmis hópferðabifreiðum og fá greitt heima hjá sér, við óttumst að þeir séu á öðrum kjörum en íslenskir hópferðabílstjórar,“ segir Unnur.