Tvíburasysturnar úr Keflavík afrekuðu það jafnframt í gærkvöldi sem engar systur hafa náð áður í sögu A-landsliðs kvenna í körfubolta.
Íslensku stelpurnar stóðu í Grikkjum í fyrstu fimmtán mínútur leiksins en svo fór að halla undan fæti og í lokin munaði 37 stigum á liðunum.
Sara Rún Hinriksdóttir var stighæst í íslenska liðinu með sautján stig en Bríet Sif var þriðja stigahæst með ellefu stig.
Bríet Sif þurfti bara rétt rúmar fjórtán mínútur til að skora þessi ellefu stig en hún setti niður þrjú þriggja stiga skot í leiknum.
Í morgun mætti Sara Rún til liðs við hópinn í Ljubljana frá Englandi þar sem hún spilar og var mikil gleði hjá hópnum við það. Systurnar Sara Rún og Bríet Sif voru að sjálfsögðu mjög kátar að hittast #korfubolti #EuroBasketWomen pic.twitter.com/HXnVOdqSkL
— KKÍ (@kkikarfa) February 1, 2021
Sara Rún var að brjóta tíu stiga múrinn í áttunda sinn með A-landsliðinu en þetta var í fyrsta sinn sem Bríet Sif skorar svona mikið í landsleik. Sara hjálpaði systur sinni við að ná þessu með því að eiga á hana tvær stoðsendingar í leiknum.
Það hafa fleiri systur spilað með íslenska landsliðinu í sama landsleik en þetta er í fyrsta sinn sem systur skora báðar tíu stig eða meira í sama leik.
Gunnhildur og Berglind Gunnarsdætur höfðu báðar náð að skora tíu stig í landsleik en þó aldrei í sama landsleiknum.