Kvaradona ætlar að framlengja við Napoli Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. mars 2023 16:31 Khvicha Kvaratskhelia á ferðinni. getty/Giuseppe Maffia Allt bendir til þess að ein af skærustu stjörnum Evrópuboltans í vetur, Georgíumaðurinn Khvicha Kvaratskhelia, framlengi samning sinn við Napoli.
Fáir kunnu deili á Kvaratskhelia þegar Napoli keypti hann frá Dinamo Batumi í sumar. En nú þekkja nánast allir fótboltaáhugamenn nafnið. Kvaratskhelia hefur farið á kostum með Napoli sem er með örugga forystu á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar og komið í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Kvaratskhelia hefur skorað fjórtán mörk og gefið sextán stoðsendingar í þrjátíu leikjum með Napoli í vetur. Hann kemur því með beinum hætti að marki í leik. Frammistaða Kvaratskhelias hefur eðlilega vakið athygli stærstu liða Evrópu en svo virðist sem hann muni skrifa undir nýjan samning við Napoli til 2028. Það sem meira er, þá verður ekkert riftunarverð í samningnum. Kvaratskhelia er í gríðarlega miklum metum hjá stuðningsmönnum Napoli sem kalla hann stundum Kvaradona eftir sjálfum Diego Maradona. Napoli hefur ekki orðið ítalskur meistari síðan Maradona lék með liðinu en allt bendir til þess að það breytist í vor. Næsti leikur Napoli er gegn ríkjandi Ítalíumeisturum AC Milan á sunnudaginn. Liðin eigast svo við í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar um miðjan apríl.
Ítalski boltinn Mest lesið Skar sig mjög illa á andliti og hálsi í slysi á æfingu Sport Lýsti ástandinu á Ingebrigtsen-heimilinu Sport Þetta gæti verið best klæddi þjálfari heims Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Ísrael 39-27 | Reynt að sparka upp hurðum er stelpurnar pökkuðu Ísrael saman Handbolti Arnar spilaði með besta „pöbbaliði“ Bretlands Enski boltinn Handboltastjarna hættir 31 árs: Með tilboð en langar að gera eitthvað annað Handbolti Bað Cubarsi afsökunar á því að hafa stolið fyrsta markinu hans Fótbolti „Stelpurnar hafa mátt þola margt ósanngjarnt“ Handbolti Salah nálgast nýjan samning Enski boltinn Fyrrverandi heimsmeistari í snóker ákærður fyrir að misnota börn Sport Fleiri fréttir Besta spáin 2025: Krókur á móti bragði Arnar spilaði með besta „pöbbaliði“ Bretlands Salah nálgast nýjan samning Bað Cubarsi afsökunar á því að hafa stolið fyrsta markinu hans Þetta gæti verið best klæddi þjálfari heims Barcelona með annan fótinn í undanúrslitum Aston Villa komst yfir í París en PSG svaraði með þremur mörkum Klopp mætir aftur til Liverpool í næsta mánuði Karólína næstmarkahæst í Þjóðadeildinni Matic: „Onana er einn versti markvörður í sögu United“ Af hverju má Asensio spila í kvöld? Ronaldo syrgir manninn sem uppgötvaði hann England öruggt með fimm sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili „Þið eruð ekki nógu duglegar að tuða í dómurunum“ Sjáðu magnað mark Martínez gegn Bayern Besta-spáin 2025: Þurfa aftur fimm réttar og jóker Besta-spáin 2025: Stoppa stutt við eftir langa eyðimerkurgöngu Martraðardvöl Bjarka hjá Brann: Valinn verstu kaup tímabilsins Rice hlustaði ekki á Ødegaard sem sagði honum að gefa fyrir Brady óskaði Willum, Alfonsi og félögum til hamingju Myndaveisla: Þrenna Karólínu Leu tryggði Íslandi stig Íslendingalið Birmingham upp í B-deild Elísabet stýrði Belgíu til sigurs á Englandi „Þarf alltaf að hugsa um það versta sem getur gerst“ „Ég hefði tekið þrjú stig í staðinn“ Sjáðu þrennu Karólínu Leu Uppgjörið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Skytturnar skutu Evrópumeistarana í kaf Frattesi hetja Inter í Bæjaralandi Aron Elís með slitið krossband Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Ísrael 39-27 | Reynt að sparka upp hurðum er stelpurnar pökkuðu Ísrael saman Handbolti
Uppgjörið: Ísland - Ísrael 39-27 | Reynt að sparka upp hurðum er stelpurnar pökkuðu Ísrael saman Handbolti