Í tilkynningu kemur fram að Lyfjaval reki sjö apótek - sex á höfuðborgarsvæðinu og eitt í Reykjanesbæ, þar af fjögur bílalúguapótek.
Haft er eftir Auði Daníelsdóttur, forstjóra Orkunnar, að það séu afar spennandi tímar framundan hjá Lyfjavali og mörg skemmtileg tækifæri til að bjóða viðskiptavinum upp á fleiri staðsetningar.
„Lyfjaval hefur skapað sér sérstöðu á markaði með bílalúgum og löngum opnunartíma sem hefur verið afar snjöll leið til að einfalda viðskiptavinum lífið á ferðinni,” segir Auður.
Þá er haft eftir Svani Valgeirssyni, framkvæmdastjóra Lyfjavals, að þetta séu mjög góð tíðindi fyrir Lyfjaval. „Við erum mjög spennt fyrir áframhaldandi vexti í samstarfi við Orkuna,” segir Svanur. „Lyfjaval hefur verið brautryðjandi í lyfsölu á Íslandi frá því að það opnaði fyrsta frjálsa apótekið, Apótek Suðurnesja árið 1996, fyrsta bílaapótekið 2005, hóf netsölu með lyf 2022 og býður nú sólarhringsopnun í lyfsölu, það eina á landinu.“
Orkan IS ehf. var stofnað 1. desember 2021 og rekur þjónustustöðvar Orkunnar, 10-11, Extra, Löðurs bílaþvottastöðva, Íslenska vetnisfélagsins, Gló og nú Lyfjavals.