Hinn sextán ára Littler átti frábæra frumraun á HM í gær. Hann vann þá Hollendinginn Christian Kist örugglega, 3-0.
Littler er enn sem komið er með langhæsta meðaltalið á HM, eða 106,12. Hann fékk sjö sinnum fullt hús (180) og hitti helming allra sinna útskota.
Littler fær ekki langa hvíld því hann mætir Andrew Gilding í 2. umferð í kvöld. Hann leyfði sér þó aðeins að fagna eftir sigurinn á Kist.
Kjarnorkukrakkinn hélt upp á draumafrumraunina í Ally Pally með því að fá sér kebab og kók. Mynd af honum graðka í sig kebabinn fór á flug á samfélagsmiðlum.
16-year-old Luke Littler produced one of the best World Darts debuts ever after beating Christian Kist 3-0 and celebrated in style with a kebab pic.twitter.com/q7u7FwyZ0G
— SPORTbible (@sportbible) December 21, 2023
Littler fær væntanlega meiri samkeppni frá Gilding en hann fékk frá Kist í gær en ljóst er að Kjarnorkukrakkinn er til alls líklegur á stærsta sviðinu.
Þótt Littler líti kannski ekki út fyrir að vera sextán ára er hann fæddur 21. janúar 2007. Andstæðingur hans í kvöld, Gilding, er öllu eldri, eða 53 ára.
Hann varð elsti maðurinn til að vinna stórmót þegar hann hrósaði sigri á Opna breska meistaramótinu fyrr á þessu ári. Gilding er í 20. sæti heimslistans í pílukasti en Littler í því 164. Samt er Littler núna sjöundi líklegastur til að vinna HM samkvæmt veðbönkum.
Bein útsending frá seinni hluta dagsins á HM í pílukasti hefst klukkan 19:00 á Vodafone Sport.