Unnur Ösp með fjölskyldu sinni tilbúin til þess að fara inn í sal.Anton Bjarni Alfreðsson
Söngleikurinn Stormur eftir þær Unni Ösp og Unu Torfa var frumsýndur með pompi og prakt í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Hátíðarstemning var í loftinu og eftirvæntingin mikil.
Unnur Ösp mætti með fjölskylduna í glæsilegum gylltri pallíettublússu. Þá létu öll helstu fyrirmenni landsins sig að sjálfsögðu ekki vanta, Jón Jónsson og Hafdís Björk Jónsdóttir skildu krakkana eftir heima og Birgitta Haukdal mætti í sólsskinsskapi. Myndir af fleiri gestum má skoða hér fyrir neðan.
Stormur er söngleikur sem talar til ólíkra kynslóða um fyrstu stóru tímamót lífsins. Vinahópur sem er að útskrifast úr menntaskóla stendur á tímamótum sem eru í senn spennandi og ógnvænleg. Hver er ég og hver vil ég vera? Get ég sagt skilið við fortíðina og byrjað lífið upp á nýtt? Þori ég að taka stökkið og fylgja hjartanu, alla leið?
Þar er Elísabetu fylgt eftir, ungri tónlistarkonu sem er undir mikilli pressu að reyna að ljúka við sína fyrstu plötu í kjölfar þess að lag sem hún sendi frá sér varð óvænt vinsælasta lag ársins. Með helstu hlutverk fara meðal annars Una Torfadóttir, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Jakob van Oosterhout og Sigurbjartur Sturla Atlason.
Martina Vigdís Nardin og Birgitta Haukdal spenntar fyrir sýningunni.Anton Bjarni AlfreðssonJón Helgi Erlendsson í sínu besta skapi.Anton Bjarni AlfreðssonMagnús Geir Þórðarson leikhússtjóri í góðra vina hópi ásamt Breka Karlssyni formanni Neytendasamtakanna.Anton Bjarni AlfreðssonKolbeinn Tumi og Selma Björns með Selmu Rún og Friðriki Ómari.Anton Bjarni AlfreðssonKarítas Ríkharðsdóttir og Ragnar Auðun Árnason skelltu sér í leikhús.Anton Bjarni AlfreðssonBirna Björgvinsdóttir og Birna Ósk Kristinsdóttir.Anton Bjarni AlfreðssonAlvöru handaband.Anton Bjarni AlfreðssonEftirvænting í loftinu.Anton Bjarni AlfreðssonHjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarson létu sig ekki vanta.Anton Bjarni AlfreðssonMatthías Tryggvi skálaði með bros á vör.Anton Bjarni AlfreðssonIngibjörg Ösp Stefánsdóttir og hjónin Birkir Kristinsson og Ragga Gísla.Anton Bjarni AlfreðssonDanshöfundurinn Lee Proud og kærastinn Ahd Tamimi.Anton Bjarni AlfreðssonBros á vör og drykkur í glösum.Anton Bjarni AlfreðssonPrúðbúin.Anton Bjarni AlfreðssonSigrún Edda og Tinni Sveins brostu sínu breiðasta.Anton Bjarni AlfreðssonTilbúnar í sýningu.Anton Bjarni AlfreðssonMartina Vigdís Nardin og hjónin Hafdís og Jón.Anton Bjarni AlfreðssonÍ sínu fínasta pússi.Anton Bjarni AlfreðssonSkál í boðinu.Anton Bjarni AlfreðssonGleði í lofti.Anton Bjarni AlfreðssonKarlotta Karlsdóttir og Helga Viktoría Þorvaldsdóttir.Anton Bjarni AlfreðssonBrosa!Anton Bjarni Alfreðsson