Birtist í Fréttablaðinu


VR velur úr sex tilboðum um íbúðarhús
„Það eru allavega sex álitlegir kostir að vinna með áfram,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.

Vilja ekki missa einu útgerðina af markaði
Veruleg samlegðaráhrif skapast með kaupum Brims á þriðjungshlut í HB Granda. Ólíklegt þykir að lífeyrissjóðir í hópi stærstu hluthafa HB Granda muni taka yfirtökutilboði Brims. Hópur hluthafa telur aðkomu Hvals að HB Granda hafa skaðað sjávarútvegsfyrirtækið.

Konur spila klassíska tóna
KÍTÓN stendur fyrir sinni fyrstu klassísku tónleikaröð og hefst hún á sunnudaginn. Þá munu Erla Dóra Vogler og Eva Þyri Hilmarsdóttir flytja sönglög eftir Jórunni Viðar.

Björgvin Ingi til Deloitte
Björgvin Ingi Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar Íslandsbanka, hefur verið ráðinn sviðsstjóri Deloitte Consulting á Íslandi.

Páll Valur leiðir í Grindavík
Grindavík Páll Valur Björnsson leiðir lista Samfylkingarinnar í Grindavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningarnar.

Guns N' Roses liðar verða eftir og njóta Íslands
Tónleika Guns N' Roses á Laugardalsvelli er beðið með eftirvæntingu samkvæmt samfélagsmiðlum. Tónleikahaldari segir að allar líkur séu á að Slash, Axl Rose, Duff McKagan og föruneyti þeirra muni njóta landsins enda séu þetta síðustu tónleikar hljómsveitarinnar

Fyrir Heimaey sækir stuðning til kvenna
Oddviti nýs framboðs í Vestmannaeyjum vill aukið beint lýðræði. Bera eigi ákvörðun um rekstur Herjólfs undir íbúa í beinni atkvæðagreiðslu. Sitjandi bæjarstjóri segir slíkar hugmyndir billegar í ljósi þess hverjir skipa listann.

Geta eignast fjórðungshlut í Kortaþjónustunni
Fyrrverandi eigendur Kortaþjónustunnar munu geta eignast allt að fjórðungshlut í fyrirtækinu samkvæmt breytingum sem gerðar voru á samþykktum færsluhirðingarfyrirtækisins í byrjun ársins.

Níu milljóna tap Hótels 1919
Eignarhaldsfélagið Hótel 1919, sem rekur hótel undir nafni Radisson Blu við Pósthússtræti, skilaði um níu milljóna króna tapi í fyrra borið saman við hagnað upp á tæplega 38 milljónir króna á árinu 2016.

Miðflokkurinn og VG hnífjöfn í nýrri könnun
Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í borginni í nýrri könnun Fréttablaðsins og frettabladid.is. Allt að sjö framboð gætu fengið kjörna fulltrúa. Næstum átta prósent þeirra sem taka afstöðu nefna önnur framboð en þau sem myndu fá kjörna fulltrúa.

MSCI skoðar íslenska markaðinn af alvöru
Fulltrúar MSCI, eins stærsta vísitölufyrirtækis heims, íhuga að gera íslensk hlutabréf gjaldgeng í vísitölur sínar. Þeir munu funda með íslenskum verðbréfafyrirtækjum í næsta mánuði. Forstjóri Kauphallar segir frekari tíðinda að vænta á næstunni.

Gangan trekki fleiri að en Aldrei fór ég suður
Fossavatnsgangan á Ísafirði verður haldin um helgina. Keppnin hefur vaxið hratt síðustu ár og er nú hluti af alþjóðlegri mótaröð skíðagöngumanna. Ein stærsta ferðamannahelgi á Ísafirði, en um 500 erlendir keppendur mæta til leiks.

Þristurinn yfir hafið í fyrsta sinn í þrettán ár
Þristavinafélagið stefnir á að fljúga íslenska þristinum Páli Sveinssyni til Normandí næsta sumar til þess að minnast innrásarinnar í Normandí. Vélin er orðin 75 ára gömul en þrettán ár eru liðin frá því að henni var síðast flogið yfir hafið.

Sindri hefur hlotið fjölda dóma fyrir fjársvik, stuld og hylmingu
Sindri Þór Stefánsson á sér 15 ára afbrotasögu og hefur hlotið fjölda dóma fyrir þjófnað og fíkniefnabrot. Stal verkefnabókum nemenda í Glerárskóla, keypti veitingar út á kreditkort Akureyrarbæjar og geymdi stolin sírenuljós.

Ónýtur aur
Vafalaust er það vísbending um breytta tíma þegar einn umfangsmesti þjófnaður seinni ára á Íslandi varðar stuld á 600 tölvum sem sérhannaðar eru til illskiljanlegs, stafræns námugraftrar á rafrænni mynt sem hefur lítið notagildi, annað en það að vera í takmörkuðu upplagi og knúin áfram af hnattrænni spákaupmennsku.

Að keppa í kerlingavisjón
Eftir sjö vikna vætutíð hér í spánskum suðursveitum er ég orðinn svo hvekktur að ég fæst ekki til að sleppa takinu á regnhlífinni þó ekki sjáist lengur skýhnoðri á himni.

Hægir á fjölgun starfsmanna
Launþegar í ferðaþjónustu voru 24.700 í febrúar síðastliðnum

Kavíarhneyksli í Evrópuráðinu
Margir fyrrverandi og núverandi fulltrúar í Evrópuráðinu eru grunaðir um að hafa þegið kavíar, teppi og dvöl á lúxushótelum í Bakú í Aserbaídsjan.

Dansinn hefur fylgt mér
Guðbjörg Björgvinsdóttir er að kveðja Ballettskólann sinn eftir 35 ár og veit ekki alveg hvernig hún á að verja tímanum. Kannski sest hún niður með bók um miðjan dag.

RÚV semur um lægri vexti
Ríkisútvarpið og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins hafa samið um skilmálabreytingu á skuldabréfum sem gefin voru út í október árið 2000.

Ljósmóðir efast um að spítalinn komi til með að þola álagið
Heilbrigðisráðherra hefur falið Landspítala og öðrum heilbrigðisstofnunum að sinna þjónustu við sængurkonur og börn sem hefur verið í höndum ljósmæðra sem sinna heimaþjónustu.

Stefnir í prestaskort
Ýmislegt hefur breyst í umhverfi og starfi íslenskra presta á þeirri öld sem liðin er frá stofnun Prestafélags Íslands. En fjöldi þeirra í landinu er þó svipaður og árið 1918.

Guns N' Roses koma með mikilli viðhöfn
Bandaríska rokkhljómsveitin Guns N' Roses er væntanleg hingað til lands í sumar og kemur fram á tónleikum á Laugardalsvelli þann 24. júlí. Um verður að ræða síðustu tónleikana í hljómleikaferð rokkbandsins og stærstu tónleika sem haldnir hafa verið á Íslandi, fullyrðir Friðrik Ólafsson tónleikahaldari.

D-listinn tapar meirihlutanum í Eyjum
Sjálfstæðisflokkurinn myndi missa meirihlutann í Vestmannaeyjum ef kosið yrði nú. Ný könnun sem Fréttablaðið og frettabladid.is hafa gert sýnir að bæjarstjórinn næði ekki kjöri.

Mengun fer minnkandi
Þorsteinn Jóhannsson hjá Umhverfisstofnun segir að loftmengun sé ekkert minna vandamál á Akureyri en í Reykjavík, en að þrátt fyrir aukna umræðu um hana sé hún að minnka með árunum. Hann vill samt sjá meira gert.

Yeezús er risinn aftur
Íslandsvinurinn Kanye West vaknaði til lífsins á Twitter í síðustu viku og fór að senda frá sér tíst í gríð og erg. Þar á meðal kynnti hann nýja bók og tvær nýjar plötur, þar á meðal sólóplötuna sem hann hefur verið að vinna að í Wyoming-fylki upp á síðkastið.

Stórar hugmyndir án útfærslu
Fátt kom á óvart á fyrsta landsþingi Miðflokksins um helgina að mati stjórnmálafræðinga. Flokkurinn hafi plantað sér á miðjuna, hægra megin við Framsókn. Mikið um stórar hugmyndir en minna af útfærslum.

Þegar hin hliðin birtist og breytir öllu
Þegar ég las fyrst fréttirnar af Sindra sem strauk úr fangelsi í síðustu viku, skaust þessi mynd upp í hugann...

Rauði þráður Reykjavíkur
Ilmurinn er lokkandi. Hann fyllir vitin og freistar. Dáleiðir íbúana í biðröðinni.