Kanada
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 17 ›
Lögregla rannsakar gullrán á flugvelli í Kanada Lögregluyfirvöld í Kanada hafa nú til rannsóknar gullþjófnað á Pearson-alþjóðaflugvellinum í Toronto. Samkvæmt erlendum miðlum hvarf gull og önnur verðmæti að andvirði 15 milljóna Bandaríkjadala á vellinum síðasta mánudag. Erlent 21.4.2023 08:10
Nýja Airbus A321-þotan flugprófuð í fimbulkulda Hin nýja langdræga Airbus A321XLR-þota gengst um þessar mundir undir viðamiklar flugprófanir og var hún á dögunum reynd í fimbulkulda. Prófanirnar fóru fram á Iqaluit-flugvellinum við Frobisher-flóa í Norður-Kanada þar sem Airbus segir að frostið hafi farið niður í allt að -40 gráður. Erlent 20.4.2023 09:29
Gervigreind framleiddi lag með röddum Drake og The Weeknd Gervigreind framleiddi á dögunum lag með röddum tónlistarmannanna Drake og The Weeknd. Drake sjálfur vera kominn með nóg af gervigreindinni en útgáfufyrirtæki þeirra beggja er sagt hafa óskað eftir því að lagið yrði fjarlægt af öllum streymisveitum. Lífið 17.4.2023 11:25
Unglingur skaut tvo lögreglumenn til bana Sextán ára drengur skaut tvo lögreglumenn til bana í Edmonton í Kanada í gær. Því næst skaut hann sjálfan sig einnig til bana. Erlent 17.3.2023 22:16
Tekist á um dánarbú Leonards Cohen Einkaerfingjar kanadíska ljóðskáldsins og tónlistarmannsins Leonards Cohen saka umboðsmann söngvarans um að reyna að ræna dánarbúinu innan frá. Dánarbúið er metið á tæpar 50 milljónir dala og þessa dagana er tekist á um það fyrir dómstólum í Los Angeles. Erlent 16.3.2023 14:01
Ökumaðurinn talinn hafa ekið vegfarendur viljandi niður Saksóknarar í Quebec í Kanada ákærðu karlmann á fertugsaldri fyrir háskaakstur eftir að hann ók pallbíl inn í hóp gangandi vegfarenda í gær. Tveir aldraðir karlmenn létu lífið en ökumaðurinn er talinn hafa ekið viljandi á fólkið. Erlent 14.3.2023 23:32
Tveir látnir í Kanada eftir að ekið var á gangandi vegfarendur Tveir menn eru látnir og níu særðir eftir að pallbíl var ekið á gangandi vegfarendur í bænum Amqui, norður af borginni Quebec, í Kanada. Lögregla hefur handtekið 38 ára ökumann bifreiðarinnar og verið er að rannsaka hvort hann ók viljandi á fólkið. Erlent 14.3.2023 07:22
Fyrrverandi sambýlishvalur Keiko er dauður Háhyrningurinn Kiska, sem deildi tanki með Keiko þegar þeir dvöldu hér á landi, er dauður, 47 ára að aldri. Hann var oft þekktur sem „Mest einmana hvalur í heimi“ en Kiska bjó ein frá því árið 2011 til hennar dauðdaga. Erlent 10.3.2023 23:56
Sér eftir því að hafa nafngreint fyrrverandi kærustur Rapparinn Drake segist sjá eftir því að hafa nafngreint fyrrverandi kærustur sínar í lögum sínum. Hann hafi aldrei gert það með neitt illt í huga en ein þeirra skammaði hann fyrir það. Lífið 2.3.2023 10:47
Hristi sig og hornin hrundu af Þjóðgarðsvörðurinn Derek Burgoyne náði myndbandi af því þegar elgur hristi sig og missti í leiðinni horn sín. Afar sjaldgæft er að sjá þegar hornin falla af elgum. Erlent 1.3.2023 07:41
Cloé kölluð inn í kanadíska landsliðið en landsliðskonurnar hóta verkfalli Hin íslensk-kanadíska Cloé Eyja Lacasse er í landsliðshópi Kanada á SheBelieves æfingamótinu. Fótbolti 16.2.2023 09:31
Engin merki um geimverur að sögn Hvíta hússins Fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins tók það skýrt fram á fréttamannafundi í gær að ekkert bendi til þess að hlutirnir þrír sem skotnir voru niður yfir Bandaríkjunum og Kanada á dögunum tengist geimverum. Erlent 14.2.2023 14:48
Ýmsir kostir við njósnabelgi en vont að vera nappaður Þrátt fyrir að tæknin sé ef til vill gamaldags geta stórþjóðir hagnýtt sér ýmsa kosti loftbelgja til að njósna um keppinauta sína á alþjóðavettvangi. Gallinn er þó sá að það getur verið vont ef upp kemst um njósnabelgina, þar sem ekki sé ólíklegt að það gerist fyrir augum almennings, eins og gerðist yfir Bandaríkjunum á dögunum. Erlent 14.2.2023 11:08
Hafa haft uppi á skynjurum úr meintum njósnabelgjum Talsmenn bandaríska hersins segja að tekist hafi að hafa uppi á skynjurum úr meintum kínverskum njósnabelg, þeim fyrsta skotinn var niður yfir Atlantshafi fyrir tíu dögum. Erlent 14.2.2023 08:01
Fjórði fljúgandi hluturinn skotinn niður af Bandaríkjaher Bandaríkjaher skaut fyrir skömmu niður enn annan fljúgandi hlutinn í mikilli hæð yfir stöðuvatninu Huron í Michican fylki í Bandaríkjunum, skammt frá landamærum Kanada. Um er að ræða fjórða hlutinn sem skotinn er niður í þessum mánuði í Norður-Ameríku. Erlent 12.2.2023 21:50
Saka Kínverja um lygar sem vísa ásökunum á bug Bandarísk yfirvöld halda að óþekktir hlutir sem skotnir voru á flugi yfir Norður-Ameríku í gær og á föstudag hafi verið einhvers konar blöðrur. Bandaríkjamenn saka Kínverja um lygar en vika er síðan Bandaríkjamenn skutu niður meintan njósnabelg Kínverja. Erlent 12.2.2023 16:02
Skutu niður „óþekktan hlut“ yfir Kanada Óþekktur hlutur var skotinn niður í kanadískri lofthelgi nú í kvöld. Vika er liðin frá því að Bandaríkjaher skaut niður loftbelg sem þeir töldu vera kínverskan njósnabelg. Erlent 11.2.2023 23:25
Borgarstjóri Toronto segir af sér vegna framhjáhalds John Tory, borgarstjóri kanadísku borgarinnar Toronto, hefur sagt af sér vegna framhjáhalds. Hann segist hafa haldið fram hjá eiginkonu sinni með 31 árs gamalli samstarfskonu. Erlent 11.2.2023 16:24
Hefur fengið líflátshótanir vegna söngsins Söngkonan Jessica Pearson hefur fengið slæma útreið á samfélagsmiðlum eftir að myndband af henni að syngja fyrir farþega flugvélar Icelandair, sem sátu fastir í flugvélinni í tíu klukkustundir, fór í dreifingu. Henni hafa borist líflátshótanir og hún hefur verið hvött til þess að svipta sig lífi. Innlent 3.2.2023 21:00
Tóku lagið í flugvélinni og dreymir nú um að halda tónleika á Íslandi Kanadíska tríóið Jessica Pearson and the East Wind vakti mikla athygli hér á landi á dögunum fyrir það að blása til tónleika um borð í Icelandair flugvél. Farþegar vélarinnar voru fastir um borð vegna veðurs og hvatti áhöfnin hljómsveitina til að taka nokkur lög. Tónlist 28.1.2023 10:01
Justin Bieber selur réttinn að tónlist sinni fyrir 29 milljarða Stórstjarnan og tónlistarmaðurinn Justin Bieber hefur selt fjárfestingafélaginu Hipgnosis Songs Capital réttinn á tónlist sinni fyrir um 200 milljónir dala, eða um 29 milljarða króna. Lífið 24.1.2023 17:54
Play hefur áætlunarflug til Toronto í júní Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugsætum til Toronto í Kanada en áætlunarflug þangað hefst þann 22. júní. Toronto er fimmti áfangastaður Play í Norður-Ameríku. Flogið verður alla daga vikunnar á Hamilton International flugvöll. Viðskipti innlent 10.1.2023 11:27
56 látnir í kuldakastinu í Norður-Ameríku Að minnsta kosti 28 hafa látið lífið í vesturhluta New York ríkis í óveðrinu sem gengið hefur yfir stóran hluta Bandaríkjanna. Dæmi eru um að fólk hafi verið fast í bílum sínum í rúma tvo sólarhringa. Erlent 27.12.2022 06:53
Hnoðaður til lífs um borð í þotu Icelandair Bandarískur karlmaður var hnoðaður til lífs um borð í þotu Icelandair að kvöldi jóladags, sem var þá á leið frá Íslandi til Seattle í Bandaríkjunum. Svo heppilega vildi til að tveir læknar voru með í för, sem aðstoðuðu flugþjón við að koma manninum til bjargar. Innlent 27.12.2022 06:16
Ísbirnir drepast í massavís við Hudsonflóa Ísbirnir við Hudsonflóa í Kanada eru að deyja í massavís. Ástandið er sérstaklega slæmt hjá birnum og húnum en fækkun ísbjarna á svæðinu hefur valdið miklum áhyggjum meðal vísindamanna. Erlent 23.12.2022 13:33
Einstakt kuldakast ógn við líf manna í Bandaríkjunum og Kanada Mikið kuldakast gengur nú yfir Bandaríkin og Kanada og vara sérfræðingar fólk við því að kal geti myndast á húð á aðeins nokkrum mínútum. Veðurviðvaranir um helgina ná til 135 milljóna manna á sama tíma og gríðarlega margir eru á faraldsfæti. Erlent 23.12.2022 07:03
Unglingsstúlkur sem stungu mann fyrir áfengisflösku til rannsóknar vegna fleiri árása Saksóknarar í Toronto í Kanada hafa ákært átta táningsstúlkur fyrir að stinga 59 ára gamlan mann til bana. Stúlkurnar eru þrettán til sextán ára gamlar og voru að reyna að ná áfengisflösku af vinkonu mannsins. Erlent 22.12.2022 12:38
Sagður ætla að selja réttinn fyrir 200 milljónir dala Kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber er sagður ætla að bætast í hóp tónlistarmanna á borð við Bruce Springsteen, Bob Dylan og Stevie Nicks, sem hafa á síðustu árum selt réttinn á tónlist sinni til fyrirtækja. Viðskipti erlent 22.12.2022 07:43
Átta unglingsstúlkur ákærðar fyrir morð á heimilislausum manni Lögregla í Kanada hefur ákært átta unglingsstúlkur fyrir morð á tæplega sextugum heimilislausum manni í Toronto um helgina. Þær eru sakaðar um að hafa stungið manninn til bana. Erlent 21.12.2022 11:27
Tímamótasamkomulag geti spornað gegn fjöldaútrýmingu Góðar líkur eru á því að hægt verði að sporna við fjöldaútrýmingu tegunda verði tímamótasamkomulagi um vernd á tæplega þriðjungi haf- og landsvæða heimsins fylgt eftir, segir framkvæmdastjóri Landverndar. Íslendingar dragi lappirnar í verndun hafsins og hafi jafnvel staðið í vegi þess. Innlent 19.12.2022 14:08