
Færeyjar

Bakarísferð fjármálaráðherra Færeyja varð honum að falli
Jørgen Niclasen, fjármála- og samgönguráðherra Færeyja, hefur sagt af sér embætti eftir að hann var gripinn af lögreglu fyrir ölvunarakstur.

Fær aftur kannabisefni sem hann flutti til landsins: „Við vorum óhræddir við að bíða niðurstöðu dómstóla“
Lögmaður færeysks manns sem var tekinn með um þrettán grömm af kannabisefnum við komuna til Íslands segir ánægjulegt að maðurinn hafi fengið efnin aftur en þau voru skrifuð út í læknisfræðilegum tilgangi. Hann telur þetta fyrsta dæmið þar sem látið er reyna á flutning kannabisefna í læknisfræðilegum tilgangi og telur að um fordæmisgefandi mál sé að ræða.

Davíð Óskar leikstýrir nýrri glæpaþáttaröð sem gerist í Færeyjum
Íslenski leikstjórinn Davíð Óskar Ólafsson er annar tveggja leikstjóra dönsk-færeysku glæpaseríunnar TROM. Þættirnir voru teknir upp í Færeyjum og fóru tökur fram á síðasta ári.

Vilhelm Þorsteinsson fljótur að slá aflamet systurskipsins
Heimsmet Barkar NK, skips Síldarvinnslunnar, í loðnuafla stóð ekki lengi. Vilhelm Þorsteinsson EA, skip Samherja, er búinn að slá metið en hann landaði 3.448 tonnum í Fuglafirði í Færeyjum í gær. Það reyndist 39 tonnum meira en þau 3.409 tonn sem Börkur landaði á Seyðisfirði um helgina.

Færeyskur Íslandsvinur útskýrir hvað við þurfum að gera
Hvergi í heiminum smitast eins margir af kórónuveirunni daglega og í Færeyjum, en enginn er á sjúkrahúsi. Þess vegna ætla stjórnvöld þar í landi að aflétta öllum samkomutakmörkunum í næsta mánuði - það var ekkert annað í stöðunni, segir færeyskur Íslandsvinur.

Færeyingar ætla að afnema allar takmarkanir
Færeyska stjórnin hefur sett fram áætlun um það hvenær búast megi við afléttingu allra samkomutakmarkana vegna kórónuveirufaraldursins. Stefnt er að því að öllum takmörkunum verði aflétt fyrir 1. mars.

Færeyska samkeppniseftirlitið tók ákvörðun á aðeins einum mánuði
Það er margt áhugavert við sölu Skeljungs á færeyska eldsneytisfyrirtækinu p/f Magni, ekki síst það hversu umfangsmikil hún er á færeyskum skala. Eftir því sem Innherji kemst næst er um að ræða ein stærstu viðskipti með færeyskt fyrirtæki í fimmtán ár. Hefði því ekki komið á óvart ef samkeppnisyfirvöld þar í landi hefðu varið drjúgum tíma í að rannsaka áhrif viðskiptanna.

Færeyski Michelin-staðurinn flytur til Grænlands
Eigendur færeyska veitingastaðarins Koks, sem býr yfir tveimur Michelin-stjörnum, hyggjast loka í Færeyjum og flytja staðinn tímabundið til Grænlands.

Færeyska stjórnin heldur velli eftir lygilega atburðarás
Samkomulag hefur náðst um áframhaldandi stjórnarsamstarf Sambandsflokksins, Fólkaflokksins og Miðflokksins í Færeyjum. Mikil óvissa ríkti um framtíð færeysku landsstjórnarinnar eftir að Lögþingið samþykkti óvænt lög sem auka réttindi samkynhneigðra í Færeyjum.

Metfjöldi greindist í Færeyjum
Nýtt met yfir fjölda þeirra sem greindust með kórónuveiruna á einum degi féll í Færeyjum í dag, líkt og á Íslandi.

Færeyska stjórnin hangir á bláþræði eftir lygilega atburðarás
Ríkisstjórnarsamstarf Sambandsflokksins, Fólkaflokksins og Miðflokksins í Færeyjum hangir á bláþræði eftir að færeyska Lögþingið samþykkti óvænt lög sem auka réttindi samkynhneigðra í Færeyjum. Atburðarásin í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar var lygileg.

Viðræður við Færeyinga um að samnýta gamla Herjólf
Gamli Herjólfur gæti fengið framhaldslíf í Færeyjum en samt þjónað áfram sem varaferja fyrir Vestmannaeyjar, samkvæmt viðræðum sem eiga sér stað við Færeyinga um samnýtingu skipsins.

Margir starfsmenn Landssjúkrahússins í Færeyjum með Covid-19
Að minnsta kosti 25 starfsmenn á skurðdeildum Landssjúkrahússins í Færeyjum hafa greinst með kórónuveiruna. Búið er að staðfesta að sumir þeirra hafi sýkst af omíkron-afbrigðinu.

Tíu nú látnir af völdum Covid-19 í Færeyjum
Tíu hafa nú látist af völdum Covid-19 í Færeyjum frá upphafi heimsfaraldursins. Færeysk heilbrigðisyfirvöld greindu frá því í gær að tveir hafi látist af völdum Covid-19 á sunnudag.

RAX Augnablik: Var kominn með hælana út fyrir brúnina á tvö hundruð metra fuglabjargi
Færeyingar eru að mörgu leyti í sterkum tengslum við náttúruna og Ragnar Axelsson elti eitt sinn mann að nafni Heine upp á fuglabjarg til þess að fylgjast með honum veiða fýl með háfi.

Færeyingar herða og takmarka samkomur við fimmtíu
Landsstjórn Færeyja hefur ákveðið að herða samkomutakmarkanir og munu þær nú miðast við fimmtíu. Næturklúbbum verður gert að loka, en veitingastaðir mega áfram hafa opið, með ákveðum takmörkunum þó.

Eivør hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs
Færeyska tónlistarkonan Eivør Pálsdóttir hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2021 sem voru afhent í Kaupmannahöfn í kvöld.

Aldrei fleiri greinst á einum degi í Færeyjum
Kórónuveirufaraldurinn er í uppsveiflu í Færeyjum um þessar mundir og í fyrradag smituðust 99 í eyjunum, sem er metfjöldi hingað til. Daginn áður greindust 78.

Sjarmerandi kosningabarátta í Færeyjum
„Að upplifa kosningar í Færeyjum er alveg stórkostlegt,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sem hefur farið margar ferðir til Færeyjar að mynda á sínum ferli.

Jarðgöngin koma í röðum, þau næstu fyrir áttatíu íbúa
Ekkert lát ætlar að verða á jarðgangaborunum Færeyinga. Fyrir tveimur vikum fögnuðu þeir fyrstu sprengingu nýrra Árnafjarðarganga. Samtímis er hafið útboðsferli á göngum til Fámjins, áttatíu manna byggðar á Suðurey.

„Maður svaf ekki dúr það var svo mikið brölt á þeim“
„Mykines er svolítið erfið eyja eða hefur verið af því að það voru oft svo miklir straumar í kringum eyjuna. Ég held að hún hafi verið áttatíu og eitthvað daga einhvern tímann út af brimi í kringum eyjuna af því að það komst enginn að henni,“ segir Ragnar Axelsson.

Færeysk fiskeldisfyrirtæki fordæma leiftursdrápin
Havbúnaðarfelagið, samtök stærstu fiskeldisfyrirtækja Færeyja fordæmdi stórfellt dráp á leiftrum, hvölum af ætt höfrunga, sem átti sér stað í Skálafirði um síðustu helgi. Þar voru 1.428 dýr drepin. Atburðurinn hefur vakið mikla reiði utanlands sem innan, en landsstjórnin í Færeyjum hyggst taka reglur um höfrungaveiðar til gagngerrar endurskoðunar.

Stórfellt höfrungadráp í Færeyjum vekur reiði
Dýraverndunarsinnar beina nú spjótum sínum að Færeyingum sem veiddu hundruð höfrunga um helgina. Rúmlega fjórtán hundruð höfrungum var smalað með bátum upp í fjörur Skálafjarðar á sunnudag þar sem heimamenn slátruðu þeim og skáru.

Þegar illska og skepnuskapur manna keyrir úr hófi; nú í Færeyjum
Auðvitað eru margir uppteknir af kosningunum, sem fram undan eru, og úir hér og grúir af greinum og málflutningi þeim tengdum. En annað líf heldur líka áfram, og má ekki gleymast.

Vilja styrkja frekar sambandið við Færeyjar
Margvísleg tækifæri eru til þess að efla tvíhliða tengsl og samstarf Íslands og Færeyja á hinum ýmsu sviðum, meðal annars hvað varðar viðskipti, heilbrigðismál og menntamál. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin er af starfshóp sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, skipaði.

Landamæraskimun verði hætt í Færeyjum
Að sögn Michaels Boolsen, formanns farsóttarnefndar Færeyja, er staðan vegna Covid-19 svo góð í Færeyjum að ráðlagt sé að hætta skimun á landamærunum.

Fjórtán greindust í Færeyjum í gær
Fjórtán greindust með kórónuveiruna í Færeyjum í gær. Á síðunni korona.fo kemur fram að tíu hafi greinst innanlands og fjórir á landamærum.

Færeyingar brustu í grát þegar karlmaður var sýknaður af morði sextán ára stúlku
26 ára gamall maður var í morgun sýknaður af dómstóli í Færeyjum af ákæru um að hafa myrt hina sextán ára gömlu Mariu Fuglø Christiansen í nóvember 2012. Áhorfendur í dómstal brustu margir hverjir í grát þegar dómarinn las upp niðurstöðu dómsins.

Níu greindust með veiruna í Færeyjum í gær
Alls greindust níu manns með kórónuveiruna í Færeyjum í gær. Um var að ræða fjögur smit sem tengjast landamærunum og svo fimm innanlandssmit.

Reykur barst úr gámi um borð í Brúarfossi
Dæla þurfti vatni inn í gám um borð í Brúarfossi, skipi Eimskips, eftir að reyk tók að berast úr honum þegar skipið var á siglingu til Þórshafnar í Færeyjum síðdegis í gær.