
Rangárþing eystra

Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli
Íbúar í Rangárþingi fögnuðu komu sumarsins með þjóðbúningamessu í Stórólfshvolskirkju á Hvolsvelli þar sem karlar, konur og börn mættu prúðbúin til messu í sínum þjóðbúningum.

Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag
Björgunarsveitarfólk hafði í nógu að snúast í dag og þurfti að fara í margskonar útköll. Koma þurfti áhöfn smábáts til aðstoðar undan ströndum Snæfellsness og þar að auki þurfti að koma göngumanni til aðstoðar við gönguleiðina upp að Glym. Þá barst einnig tilkynning um slys á vélsleða við Háskerðing, norðan Mýrdalsjökuls.

Göngumaðurinn fannst látinn
Göngumaður sem björgunarsveitir frá Hvolsvelli og Hellu leituðu á Fimmvörðuhálsi fannst látinn í dag. Frá þessu er greint í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Áhöfn þyrlunnar fann týndan mann á Fimmvörðuhálsi
Björgunarsveitir voru kallaðar út í dag til að leita að týndum göngumanni á Fimmvörðuhálsi í dag. Sveitir frá Hvolsvelli og Hellu voru kallaðar út, auk annarra af Suðurlandi og stóð til að notast við hunda við leitina.

Verður Rangárvallasýsla eitt og sama sveitarfélagið?
Svo gæti farið að sveitarfélögin þrjú í Rangárvallasýslu, þar að segja, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Ásahreppur sameinist í eitt sveitarfélag en sveitarstjórnirnar hafa fundað um sameiningu sveitarfélaganna. Yrði það raunin verður til um fjögur þúsund og fimm hundruð manna sveitarfélaga og þriðja landstærsta sveitarfélag landsins.

Ferðamenn greiddu 200 milljónir í bílastæðagjöld við Seljalandsfoss
Ferðamenn greiddu rúmlega 200 milljónir króna í bílstæðagjöld við Seljalandsfoss í fyrra. Fjöldi einkabifreiða sem óku að fossinum var tæplega 213 þúsund og þá komu 12 þúsund bifreiðar frá aðilum í ferðaþjónustu.

Kýrnar á Stóru Mörk III mjólka mest allra kúa á Íslandi
Það vantar ekki mjólkurmagnið í kýrnar á bæ undir Eyjafjöllunum enda var búið að fá verðlaun fyrir að vera afurðahæsta kúabúið á Íslandi á síðasta ári. Sú kýr sem mjólkar þar mest í dag er að mjólka fimmtíu lítra hvern einasta dag. Þá vekur athygli að bændurnir á bænum eru ekki með neina búfræðismenntun.

Dómsmálaráðherra reiknar með málþófi á Alþingi
Á síðustu tveimur árum hafa íslensk stjórnvöld fengið níu þúsund umsóknir frá flóttafólki um vernd hér á landi en það eru mun fleiri umsóknir en hin löndin á Norðurlöndunum hafa fengið á sama tíma.

Grófu dauðar merarnar í snarhasti og leyni eftir skipun Ísteka
Hrossabóndi í Landeyjum segir Ísteka hafa beðið hana um að þagga niður þegar fjórar merar hennar drápust í tengslum við blóðtöku á bænum hennar. Hún þurfti að berjast fyrir að krufningsskýrsla yrði gerð og hefur ekki fengið bætur frá fyrirtækinu.

Disney-söngleikur settur upp á Hvolsvelli
Það stendur mikið til á Hvolsvelli því þar eru fullorðnir söngnemendur Tónlistarskóla Rangæinga að setja upp söngleik með Disney lögum úr ýmsum teiknimyndum með ævintýrasögum í kringum lögin.

Spilað á borðspil á Hvolsvelli alla helgina
Mikil stemming er á Hvolsvelli um helgina þegar borðspil eru annars vegar því þar er hópur fólks komin saman til að spila allskonar borðspil og njóta samverunnar við hvert annað.

Kallaðar út vegna vélsleðaslyss við Hamragarðaheiði
Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út vegna konu sem slasaðist í vélsleðaslysi á Hamragarðaheiði vestan við Eyjafjallajökul, skömmu eftir hádegi í dag.

Rótarýfélagar gera upp 60 ára gamla rútu frá Austurleið
Félagar í Rótarýklúbbi Rangæinga hafa tekið að sér stórt verkefni en það er að gera upp fyrstu rútu Austurleiðar, sem er orðin gömul og lúin enda orðin sextíu ára gömul. Rútan er í geymslu hjá Samgöngusafninu í Skógum undir Eyjafjöllum.

Ungmennaþing á Hvolsvelli – hlustað á börn og unglinga
Það var mikið um að vera á Hvolsvelli í dag því þá fór fram ungmennaþing þar sem unga fólkið ræddi skólamál, félagslíf, menningu og fræðslumál. Tillögum þingsins verður síðan komið til sveitarstjórnar með von um úrbætur um það sem betur mætti fara.

Ófært
Áætlunarflug til Vestmannaeyja í sinni hefðbundnu mynd hefur legið niðri frá því að Ernir hætti að fljúga til Vestmannaeyja haustið 2020 ef frá eru taldir þeir samningar sem samgönguráðuneytið gerði á sínum tíma annars vegar við Icelandair og hins vegar Erni um lágmarksflug til Eyja í örfáa daga á viku. Ekkert reglulegt flug hefur verið til eða frá Eyjum frá því um miðjan apríl síðastliðinn.

Brúðkaup á Hvolsvelli í gær en óvissan alltumlykjandi
Samkynhneigður ungur Venesúelamaður sem kom út úr skápnum á Íslandi óttast að vera sendur aftur heim þar sem hans bíði ofsóknir, mismunun og fordómar. Hann gekk að eiga mann drauma sinna á Hvolsvelli í gær sem hefur staðið eins og klettur við hlið hans.

90 ára afmæli Hvolsvallar fagnað með rjómatertu
Blásið verður til mikillar afmælisveislu á morgun sunnudag á Hvolsvelli því þá verður 90 ára afmæli þorpsins fagnað. Mikil uppbygging á sér stað á Hvolsvelli og hefur sjaldan eða aldrei verið byggt eins mikið á staðnum eins og núna.

Sólheimajökull skríður fram í fyrsta sinn í hálfan annan áratug
Í fyrsta sinn í fjórtán ár hefur Sólheimajökull skriðið fram. Þetta kom í ljós þegar nemendur í sjöunda bekk í Hvolsskóla fóru í árlega mælingu á jöklinum síðastliðinn mánudag.

Brattir sauðfjárbændur í Rangárvallasýslu
Það var létt yfir sauðfjárbændum á Degi sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu um helgina þar sem hrútar og gimbrar voru þuklaðar og dæmdar. 96 ára bóndi naut sín vel innan um sauðféð.

Nafn mannsins sem lést á Skógaheiði
Maðurinn sem lést af slysförum á Skógaheiði síðastliðinn fimmtudag hét Sigurður Sigurjónsson og var bóndi á Ytri Skógum.

Banaslys á buggybíl á Skógaheiði
Eldri maður lést í dag eftir slys á Skógaheiði, norðan við Skógafoss á Suðurlandi. Lögreglunni barst tilkynning um slysið á fjórða tímanum í dag en það varð við notkun buggybíls.

Kanna fýsileika jarðganga til Vestmannaeyja
Innviðaráðherra hefur skipað starfshóp um könnun á fýsileika jarðganga á milli lands og Vestmannaeyja. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Festu bíl sinn í á að Fjallabaki
Björgunarsveitir voru kallaðar út víða um land í nótt vegna verkefna tengdum óveðrinu sem gekk yfir landið í gær og í nótt. Fjölmennasta verkefnið tengdist útkalli vegna tveggja manna sem höfðu fest bíl sinn að Fjallabaki.

Snjóbíll valt við björgun bíls sem valt
Stór breyttur jeppi á vegum Útivistar valt á Fimmvörðuhálsi, skammt frá Fimmvörðuskála, í gær. Snjóbíll sem sendur var frá Hvolsvelli til að bjarga fólki um borð valt líka. Báðir bílar eru enn á hliðinni.

Virkja SMS skilaboð vegna Skaftárhlaups
Lögreglustjórinn á Suðurlandi og Almannavarnir virkjuðu í dag SMS skilaboð sem senda verða til fólks sem fer inn á skilgreint svæði nálægt Skaftá. Ástæðan er Skaftárhlaupið.

Ókeypis kjötsúpa á Hvolsvelli í dag
Unnendur íslensku kjötsúpunnar ættu að vera á Hvolsvelli um helgina því þar fer fram kjötsúpuhátíð. Fjölbreytt dagskrá er í boði og í dag er gestum og gangandi boðið upp á ókeypis kjötsúpu á miðbæjartúni staðarins.

„Afrekshugur” Nínu Sæmundsson kominn á Hvolsvöll
Afsteypa af verki Nínu Sæmundsson, „Afrekshugur“ hefur nú verið komið fyrir í miðbæjargarðinum á Hvolsvelli en það var forseti Íslands, ásamt leikskólabörnum, sem afhjúpuðu verkið. Frumgerð verksins prýðir innganginn að Waldorf Astoria hótelinu í New York en sjálf er Nína er úr Fljótshlíðinni.

Landsbankinn kveður Háskólabíó og opnunartími styttist
Opnunartími í sjö útibúum Landsbankans styttist um þrjár klukkustundir þann 13. september. Útibúi bankans í Háskólabíói í Vesturbæ Reykjavíkur verður lokað. Engar uppsagnir fylgja breytingunum.

Lifnar yfir Hólsá og Eystri Rangá
Eystri Rangá er stundum sein í gang og það virðist ætla vera bragurinn á henni þetta árið en sem betur fer er veiðin öll að koma til.

Vinsælu tjaldsvæði við Seljalandsfoss lokað
Vinsælu tjaldsvæði við Hamragarða, rétt hjá Seljalandsfossi, hefur verið lokað. Þá er umferð þeirra sem heimsækja Gljúfrabúa beint á bílastæðið við Seljalandsfoss. Veginum að fossinum var lokað um stund í gær eftir að rúta fór þar út af veginum.