
Skagafjörður

Gerendameðvirkni og normalíseríng grasseri enn
Á laugardaginn verður Druslugangan haldin í ellefta sinn enn gengið verður bæði í Reykjavík og á Sauðárkróki. Einn skipuleggjenda göngunnar segir þolendur kynferðisofbeldis finna samstöðu og styrk í krafti hvers annars með því að ganga öskrandi niður Skólavörðustíginn.

„Hæglætisveisla“ í Skagafirði um helgina
Um helgina fer fram svokölluð hæglætishátíð að Fljótum í Skagafirði. Jakob Birgisson segist verulega spenntur fyrir viðburðinum en hann er meðal þeirra sem munu skemmta á hátíðinni.

Sundverð heimamanna gæti hækkað á mörgum stöðum
Skagafjörður, Múlaþing og Fjallabyggð eru meðal þeirra sveitarfélaga sem eru nú með gjaldskrá sína fyrir sundlaugar í skoðun. Gjaldskrá Grímsnes- og Grafningshrepps hefur verið breytt og verðið til íbúa hækkað.

„Ég held að hann sé með einhverja sýniþörf“
Rostungurinn sem gerði sig heimakæran í smábátahöfninni á Sauðárkróki á föstudaginn í síðustu viku er mættur aftur. Hann kom sér aftur fyrir á bryggjunni í morgun.

Lagði fram kæru og hvetur fólk til að gera hið sama
Árni Björn Björnsson, veitingamaður á Sauðárkróki, kærði í dag mann sem hann segir að hafi svikið sig um 16 milljónir. Fleiri hafa lagt fram kæru en Árni býst við að svikin nemi hátt í 200 milljónum króna.

Vill nefna rostunginn Lalla
Ágúst Kárason, hafnarvörður á Sauðárkróki, vill nefna rostung, sem flatmagar nú á höfninni, í höfuðið á fyrrverandi hafnarverði. Starfsmenn hafnarinnar eru þegar farnir að kalla rostunginn nafninu Lárus, eða Lalli.

Rostungur flatmagar á Króknum: „Hann hefur bryggjuna út af fyrir sig alla helgina“
Stærðarinnar rostungur flatmagar nú á smábátabryggju á Sauðárkróki. Smábátaeigendur urðu varir við rostunginn í gærkvöldi og er búið að girða af svæðið.

Kjörræðismaður Rússlands hættir hjá Kaupfélaginu
Ólafur Ágúst Andrésson, kjörræðismaður Rússa á Íslandi og forstöðumaður kjötafurðasviðs Kaupfélags Skagfirðinga, hefur ákveðið að láta af störfum hjá Kaupfélagi Skagfirðinga eftir 27 ára starf fyrir félagið.

Kaupfélag Skagfirðinga eigi ekki að flytja inn kjöt
Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga, haldinn 6. júní, beindi því til stjórnar að Kaupfélagið og dótturfélög þess stæðu ekki í innflutningi á erlendum búvörum. Ályktunin kemur á sama tíma og Alþingi hættir tollfrjálsum innflutningi á úkraínsku kjöti.

Segja tímana breytta og kanna sölu á skagfirsku félagsheimilunum
Byggðarráð Skagafjarðar vill kanna hvort ekki sé skynsamlegt að selja hlut sveitarfélagsins í félagsheimilum sveitarfélagsins til aðila sem sjá tækifæri í að bæta nýtingu húsanna. Tímarnir hafi einfaldlega breyst.

Enginn atvinnulaus í Skagafirði
Um sextíu fyrirtæki í Skagafirði taka nú þátt í atvinnulífssýningu um helgin á Sauðárkróki en sýningunni er ætlað að varpa ljósi á þann fjölbreytileika sem er í þjónustu, framleiðslu, mannlífi og menningu í Skagafirði. Auk þess að kynna sprota og nýsköpun í atvinnulífi og síðast en ekki síst skapa skemmtilegan viðburð fyrir heimafólk og gesti.

„Titillinn skipar mjög stóran sess í hjarta mínu, fjölskyldu minnar vegna“
Sigríður Inga Viggósdóttir, stuðningsmaður Tindastóls í húð og hár, er í skýjunum með árangur meistaraflokks karla í körfuknattleik sem lyfti fyrsta Íslandsmeistarabikarnum eftir spennuþrunginn leik gærkvöldsins.

Hlífar fékk gullið um hálsinn og tók svo til hendinni á Hlíðarenda
Fimmtán ára stuðningsmaður Tindastóls hlýtur mikið lof eftir framgöngu sína í gær í kjölfar oddaleiks Tindastóls og Vals. Hlífar er fyrirmyndar stuðningsmaður sem lagði sitt af mörkum með sjálfboðaliðum Vals.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 81-82 | Tindastóll Íslandsmeistari eftir háspennuleik að Hlíðarenda
Tindastóll varð í kvöld Íslandsmeistari karla í körfuknattleik í fyrsta skipti eftir 82-81 sigur á Val í oddaleik að Hlíðarenda.

Skagfirðingar fagna með balli í Miðgarði í Varmahlíð
Nýkrýndir Íslandsmeistarar Tindastóls verða hylltir í hinu fornfræga félagsheimili Skagfirðinga, Miðgarði í Varmahlíð, annaðkvöld, föstudagskvöld. Þar verður uppskeruhátíð og sveitaball.

„Drengurinn sem hafði tekið bílinn minn ófrjálsri hendi var svo handtekinn fyrir utan bakaríið“
Bílnum sem ekið var inn í Sauðárkróksbakarí í gærmorgun var stolið úr teiti. Eigandinn telur að tjón sitt sé um 700 þúsund krónur.

Sá sem keyrði inn í Sauðárkróksbakarí laus úr haldi
Einstaklingurinn sem keyrði í gegnum vegg Sauðárkróksbakarís í gærmorgun er laus úr haldi. Tjónið á bæði húsnæðinu og bílnum verður nú metið.

Fékk bíl í gegnum vegg á meðan hann undirbjó vínarbrauðið
Miklar skemmdir urðu á Sauðárkróksbakaríi þegar bíl var ekið í gegnum vegg og inn í afgreiðslu þess snemma í morgun. Eigandi bakarísins sem var að undirbúa vínarbrauð í vinnslurými segir að ökumaðurinn hafi stungið af.

Verkföll boðuð í sundlaugum um hvítasunnuhelgi
Sundlaugar í átta sveitarfélögum á landsbyggðinni verða lokaðar um hvítasunnuhelgina eftir að starfsfólk sundlaga og íþróttamannavirkja samþykktu að leggja niður störf í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag. Þeir bætast í hóp hátt í 1.600 félagsmanna BSRB sem eru á leið í verkfall.

Óvissa um næstu jarðgöng og hvernig þau verða fjármögnuð
Innviðaráðherra vill ekkert segja um það hvenær hægt verður að bjóða út næstu jarðgöng á Íslandi né hvort hann leggi til í nýrri samgönguáætlun að Fjarðarheiðargöng verði næst í röðinni. Óvissa ríkir um fjármögnun.

Þjóðskjalasafnið í Skagafjörð
Þjóðskjalasafn Íslands hefur nýlega stigið fram til að fullvissa stjórnmálamenn, fræðimenn og almenning um að safnið sé fullfært um að taka við öllum gögnum sveitarfélaga. Reyndar kemur líka fram að safnið þurfi aukið fjármagn, meiri mannskap, hækkun gjaldskráa og töluvert stærra húsnæði til að sinna þessu verkefni.

Fljótagöng og samgöngur í Fljótum og til Siglufjarðar
Nú í vikunni var birt sláandi mynd af ástandi Siglufjarðarvegar. Þar sést greinilega hversu mikið hefur hrunið úr hlíðinni, en það er stutt í að vegurinn verði í raun ófær eða honum lokað sem öryggisráðstöfun.

Rútan enn í ánni
Rútan, sem valt út í á skammt frá Vindheimamelum í Skagafirði um hálf þrjú í dag, liggur enn í ánni. Sex farþegar voru fluttir á slysadeild á Akureyri en hlúð var að öllum í húsi flugbjörgunarsveitar í Varmahlíð.

Sex fluttir á slysadeild eftir að rúta valt út í á
Sex voru fluttir á slysadeild eftir að rúta valt út í á við skammt frá Vindheimamelum í Skagafirði um hálf þrjú í dag. Alls voru fimmtán manns í rútunni, þrettán farþegar ásamt bílstjóra og leiðsögumanns.

Skagafjörður nú með eitt besta 5G samband á landinu
Skagafjörður er nú með eitt besta 5G samband á landinu. Vodafone hefur unnið að uppbyggingu 5G kerfis á Íslandi og hefur nú lokið uppsetningu á tveimur 5G sendum í Skagafirði. Sendarnir eru á Hegranesi og inni á Sauðárkróki.

Skiptar skoðanir um að loka grunnskólanum
Fundur var haldinn í vikunni með foreldrum barna sem stunda nám í Grunnskólanum austan Vatna á Hólum. Á fundinum var ræddur sá möguleiki að leggja niður starfsemi í skólanum þar sem einungis níu börn stunda þar nám núna.

Loka sundlauginni á Sauðárkróki vegna kuldakastsins
Búið er að loka suðndlauginni á Sauðárkróki vegna kuldakastsins sem gengið hefur yfir í norðanáttinni. Þrýstingur hefur fallið í hitaveitu í bænum á síðustu dögum, fyrst í efri byggðum en síðar í öllum bænum.

Öll minkaskinn seldust upp í Kaupmannahöfn
Uppboð á minkaskinnum í Kaupmannahöfn í vikunni færir íslenskum loðdýrabændum vonarglætu á ný eftir sjö mögur ár. Öll skinn seldust upp og var meðalverð tólf prósentum hærra í dönskum krónum en í fyrra.

Aðgerðum lokið án handtöku
Lögregluaðgerðum á Sauðarkróki er lokið án handtöku. Enginn grunur er um ætlaða refsiverða háttsemi.

Mikill viðbúnaður í íbúagötu á Sauðárkróki
Nokkrir lögreglubílar eru staddir í íbúagötu á Sauðárkróki vegna vopnaðs manns. Sérsveit ríkislögeglustjóra hefur verið send frá Akureyri til aðstoðar en ekkert aðhafst neitt.