
Vegan

Leikmaður Arsenal fjárfestir í vegan fótboltaliði
Knattspyrnumaðurinn Hector Bellerin er ekki hættur að spila en hann er farinn að fjárfesta í fótboltanum.

Vegan-smjör innkallað vegna myglu
Matvælastofnun hefur sent út tilkynningu þar sem varað er við neyslu á tveimur lotum af vegan smjöri frá Naturli vegna hættu á mygluvexti.

Kórónuveiran hefur áhrif á fæðuöryggi Íslands
Nýjustu tölur herma að útbreiðsla Kórónuveirunnar er 75% meiri meðal sláturhúsa- og kjötpökkunar starfsfólks í Bandaríkjunum.

Opnuðu matvöruverslun í miðju samkomubanni
Ömmur og afar leita gjarnan ráða í Vegan búðinni þegar von er á yngri kynslóðinni í mat. Sífellt fleiri aðhyllast veganlífsstílinn. Vegan búðin færði sig nýverið um set í stærra húsnæði að Faxafeni 14 og sendir vörur og veitingar heim í samkomubanni.

Eggjum kastað í Vegan-búðina: „Sorglega fyrirsjáanlegt“
Vegan-búðin í Faxafeni í Reykjavík var grýtt eggjum í nótt. „Gríðarlega fyrirsjáanlegt,“ segir eigandi búðarinnar á Facebook.

Eiginkona Biden varði hann fyrir veganmótmælendum
Mótmælendur ruddust upp á sviðið þegar Joe Biden fagnaði góðu gengi í forvali Demókrataflokksins í gærkvöldi. Eiginkona hans steig á milli hans og mótmælendanna og hélt þeim frá honum með valdi.

Gaf Bill Gates veganborgara sem á að bragðast alveg eins og hefðbundinn borgari
Verkfræðingurinn Mark Rober hefur getið sér gott orð á Youtube fyrir fjölmörg skemmtileg myndbönd þar sem hann hannar ótrúlegustu hluti.

Prikið áfram vegan: Enginn munur á að leggja sér svín eða hund til munns
Aðstandendur Priksins hafa tekið ákvörðun um að kaffihúsið verði vegan til frambúðar.

Bóndakúr
Að jólahátíðinni afstaðinni finnst okkur mörgum að eftir nokkurra vikna marineringu í lífsins lystisemdum, með söru í annarri hendi og nóa í hinni og jafnvel jólabland á kantinum, sé kominn tími til að þurrka rauðvínssósuna af efri vörinni og svitna út syndunum.

Ræktum meira grænmeti á Íslandi!
Skapast hefur hefð fyrir því að halda málþing í Veganúar um hin ýmsu málefni tengd veganisma.

Veganistur: „Þetta snýst ekki um að vera fullkominn“
Systurnar Helga María og Júlía Sif Ragnarsdætur eru báðar grænkerar, eða vegan, og halda úti blogginu Veganistur. Þær kynntust vegan lífsstílnum fyrir átta árum fyrir algjöra tilviljun.

Grænkerakrásir Guðrúnar tilnefnd til Gourmand-verðlaunanna
Matreiðslubók fjölmiðlakonunnar Guðrúnar Sóleyjar Gestsdóttur, Grænkerakrásir, var á dögunum tilnefnd í tveimur flokkum til alþjóðlegu Gourmand-matreiðslubókaverðlaunanna, annars vegar í flokki bóka um grænkerafæði og hins vegar í flokki skandínavískra bóka.

Dæmdur hryðjuverkamaður kynnir heimildarmynd hér á landi
Jake Conroy segir þunna línu á milli þess hvað sé leyfilegur aktívismi og hvenær aðgerðin er farin að brjóta í bága við hryðjuverkalög.

Hið besta mál gerist fólk vegan en það bjargi ekki jörðinni eitt og sér
Grænkerar og Sævar Helgi Bragason hafa tekist á um hversu mikilvægt það sé í baráttunni gegn loftlagsbreytingum að gerast vegan.

Gera ráð fyrir metþátttöku í veganúar
Grænkerar hefja í dag veganúar, mánaðarátak til að kynna mat sem inniheldur ekki dýraafurðir.

Jólalag dagsins: Vandræði að vera vegan í jólaboði
Salóme R. Gunnarsdóttir og Pálmi Freyr Hauksson úr leikhópnum Improv Ísland sem flytja jólalag dagsins á Vísi. Það er í óhefðbundnari kantinum þar sem lagið fæddist í söngspuna í þættinum Jólaboð Jóa árið 2017 á Stöð 2.

Stormur í vatnsglasi og „á einhverjum misskilningi byggt“
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir að bænum hafi borið skylda til að taka athugasemdir Vegan-búðarinnar vegna hestvagnaferða í jólaþorpi bæjarins til umfjöllunar. Takmörkun á ferðunum á laugardag hafi verið til málamiðlunar.

Vegan búðin segist ekki hafa hrakið hestvagna úr jólaþorpinu
Vegan búðin hefur birt yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni þar sem því er hafnað að hestvagnar hefðu verið bannaðir í jólaþorpinu vegna búðarinnar og viðskiptavina hennar.

Samloka innkölluð eftir að hún var ranglega merkt vegan
Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur tegundum af samlokum frá vörumerkinu Dagnýju og co. í ljósi þess að merkimiðum á þeim var víxlað með þeim afleiðingum að hvorug varan er með rétta innihaldslýsingu.

Lewis Hamilton vill að Mercedes-Benz hætti að nota leður
Lewis Hamilton ökumaður Mercedes-Benz liðsins í Formúlu 1 hefur farið þess á leit við bílaframleiðandann að hætt verði að nota leður í framleiðslu bílanna.

Í toppstandi og líður vel á vegan mataræði
Árni Björn Kristjánsson kynntist CrossFit árið 2009 og vó þá 130 kíló. Í dag starfar Árni sem stöðva- og yfirþjálfari hjá CrossFit XY ásamt því að leggja stund á mastersnám í lögfræði. Þá neytir hann engra dýraafurða.

Áskorun til umhverfisráðherra: Kjöt er óþarfur milliliður
Davíð Stefánsson skrifar um loftslagsmál og Vinstri græn.

Hafna því að hafa horft sérstaklega til þekktra veganvörumerkja
Bent hefur verið á það á samfélagsmiðlum, meðal annars úr herbúðum Jömm, að umbúðir og merki nýs Júmbó-hafragrautar séu afar líkar merkjum veganfyrirtækjanna tveggja.

Rabbar barinn á Hlemmi kveður
Skarð verður höggið í matarflóru borgarbúa á föstudaginn, ekki síst hjá veganfólki, þegar veitingastaðnum Rabbar barinn á Hlemmi verður lokað. Eigandi staðarins segir ástæðuna einfalda. Viðskiptavinir hafi ekki verið nægjanlega margir.

Ekki á dagskrá að minnka framboð af kjöti í mötuneytum Akureyrarbæjar
Akureyrarbæ barst, líkt og umhverfisráðherra, ríkisstjórn og öðrum sveitarfélögum landsins, áskorun frá samtökum grænkera um að draga úr neyslu dýraafurða.

Mexíkósk „kjúklinga“ súpa laus við dýraafurðir
Það er fátt betra en heit og matarmikil súpa þegar fer að kólna í veðri. Þessi saðsama súpa er laus við allar dýraafurðir og ætti því að höfða til sem flestra. Þá er hún að auki bæði holl og ódýr.

Elísabet segir að vegan og keto verði oft að þráhyggju
"Ég lít á keto sem ákveðin trúarbrögð. Ég tek eftir því þegar ég er einhversstaðar og fólk er á keto þá má alls ekki svindla og þráhyggjan verður svo mikil,“ segir Elísabet Reynisdóttir næringafræðingur í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Innkalla vegan smyrju vegna mjólkurpróteins
Fyrirtækið hefur nú tekið vöruna af markaði.

Forræðishyggja í borginni
Þeir sem hafa verið lengi við völd verða oft værukærir. Hlusta helst á viðhlæjendur. Telja sig ekki þurfa að hlusta á kjósendur og upplýsa þá sem minnst.

Sex ráð til unga fólksins sem vill breyta heiminum
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sem látið hefur til sín taka í umræðu um loftslagsmál undanfarin misseri hefur tekið saman ráð til fólks sem vill breyta heiminum til hins betra.