
Danski boltinn

Kristall semur við Sönderjyske til þriggja ára
Kristall Máni Ingason er genginn til liðs við danska félagið Sönderjysk frá Rosenborg í Noregi. Danska félagið staðfesti félagaskiptin á samfélagsmiðlum sínum nú fyrir skömmu.

Rúnar Alex og Hákon Rafn á blaði hjá Bröndby
Markverðirnir Rúnar Alex Rúnarsson og Hákon Rafn Valdimarsson eru á blaði hjá danska stórliðinu Bröndby. Félagið er í markmannsleit eftir að hafa selt Mads Hermansen til Leicester City í ensku B-deildinni.

Kristall Máni á leið til Danmerkur á láni
Samkvæmt hlaðvarpinu Dr. Football er Kristall Máni Ingason á leið til danska liðsins Sönderjyske. Kristall Máni leikur með Rosenborg í Noregi en hann lék með Víkingi í Bestu deildinni í fyrra.

Allt að verða klappað og klárt og Hákon fer í læknisskoðun hjá Lille í dag
FC Kaupmannahöfn og Lille hafa komist að samkomulagi um kaup franska liðsins á íslenska landsliðsmanninum Hákoni Arnari Haraldssyni.

FCK staðfestir viðræður við annað félag vegna Hákons Arnars
Danska félagið FCK hefur staðfest að það eigi í viðræðum við félag varðandi kaup á framherjanum Hákoni Arnari Haraldssyni. FCK hafnaði tilboði franska liðsins Lille á dögunum.

Hareide ánægður með vistaskipti Sverris Inga
Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, er hæstánægður með vistaskipti Sverris Inga Ingasonar. Danska félagið Midtjylland festi kaup á miðverðinum nýverið og kynnti hann til leiks með áhugaverðu myndbandi fyrr í dag.

Midtjylland kynnir Sverri Inga með dramatísku myndbandi
Íslenski landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason er genginn í raðir Midtjylland í Danmörku frá PAOK í Grikklandi.

Segir Ísak ekki hafa bankað en eiga að vera pirraðan
Peter Christiansen, íþróttastjóri danska knattspyrnuveldisins FC Kaupmannahafnar, lét megna óánægju Ísaks Bergmanns Jóhannessonar ekki koma sér á óvart, og segir leikmenn eiga að vera óhressa ef þeir spili ekki alla leiki.

Stoltir af að fá Daníel til SönderjyskE og hafa góða reynslu af Íslendingum
Landsliðsmaðurinn Daníel Leó Grétarsson er genginn í raðir danska knattspyrnufélagsins SönderjyskE. Þessi 27 ára gamli, örvfætti miðvörður skrifaði undir samning sem gildir til fjögurra ára.

Elías Rafn gæti verið á leið til Portúgals
Markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson gæti verið á leið til Portúgals á láni frá Midtjylland í Danmörku.

Emilía skoraði og varð bikarmeistari í Danmörku
Hin 18 ára gamla Emilía Kiær Ásgeirsdóttir átti stóran þátt í því að tryggja Nordsjælland danska bikarmeistaratitilinn í fótbolta, með sigri gegn Fortuna Hjörring í úrslitaleik í gær.

Höfnuðu aftur risaboði sem hefði fært ÍA hundruð milljóna
Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson er svo sannarlega eftirsóttur en dönsku meistararnir í FC Kaupmannahöfn hafa nú hafnað öðru tilboði í hann, upp á yfir tvo milljarða íslenska króna.

Alfreð áfram hjá Lyngby: „Ég mun aldrei gleyma síðasta tímabili“
Landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við danska úrvalsdeildarliðið Lyngby og spilar því með liðinu á næsta tímabili.

Segir FH vilja framherja Lyngby
Greint var frá því í síðasta þætti Þungavigtarinnar að FH vilji fá Petur Knudsen, framherja Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni, í sínar raðir. FH leitar nú að arftaka Úlfs Ágústs Björnssonar sem heldur í nám vestanhafs á næstunni.

Lille vill kaupa Hákon fyrir rúma tvo milljarða
Franska úrvalsdeildarfélagið Lille er sagt í viðræðum við dönsku meistarana í FCK um að festa kaup á Skagamanninum Hákoni Arnari Haraldssyni.

Hákon Arnar og Mikael meðal fimm bestu
Hákon Arnar Haraldsson og Mikael Neville Anderson voru meðal þeirra fimm leikmanna sem danski miðillinn Tipsbladet valdi sem fimm bestu sóknarþenkjandi miðjumenn dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Hrósar Frey eftir kraftaverkið mikla: „Aðrir hefðu misst klefann“
Sævar Atli Magnússon, atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu, hrósar þjálfara sínum hjá Lyngby, Frey Alexanderssyni hástert eftir að liðinu tókst að framkvæma kraftaverkið mikla og halda sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni. Sævari líður afar vel hjá Lyngby en framganga hans með liðinu hefur vakið áhuga annarra liða.

Freyr og félagar fá 200 milljónir til að spila úr
Hollvinasamtök danska knattspyrnufélagsins Lyngby hafa styrkt félagið um rúmlega 10 milljónir danskra króna, eða yfir 200 milljónir íslenskra króna, til að efla liðið sem áfram mun spila í úrvalsdeild á næstu leiktíð.

Ísak íhugar stöðu sína: „Ósáttur með það hvernig komið er fram við mig“
Ísak Bergmann Jóhannesson, landsliðsmaður í fótbolta og leikmaður FC Kaupmannahafnar, segist ósáttur með stöðu sína hjá félagsliðinu í Danmörku. Það skipti litlu máli þótt hann eigi góða frammistöðu innan vallar, honum er alltaf fleygt aftur á varamannabekkinn.

„Fáir í kringum mig sem höfðu trú á þessu“
Freyr Alexandersson þjálfari danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby, sem í gær vann kraftaverk sem tekið var eftir í Danmörku er liðið hélt sæti sínu í deildinni, segir afrek gærdagsins vera það stærsta á sínum þjálfaraferli. Hann hafði ávallt trú á því að liðinu tækist það sem margir töldu ómögulegt.

Sigurhátíð í Köben og dramatík í Árósum
Boðið var upp á mikla dramatík í lokaumferð dönsku úrvalsdeildarinnar sem kláraðist í dag með þremur leikjum. Íslendingalið AGF náði stigi gegn Bröndby og tryggði sér Evrópusætið eftirsótta.

Freyr djúpt snortinn: „Höfum lagt allt í þessa vegferð“
Freyr Alexandersson, þjálfari danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby í knattspyrnu, segist eiga erfitt með að lýsa kraftaverki dagsins þegar að Lyngby hélt sæti sínu í deild þeirra bestu í Danmörku.

Lyngby bjargaði sér eftir háspennu í lokaumferð
Íslendingaliðið Lyngby heldur sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni eftir fádæma dramatík í lokaumferðinni. Horsens og Álaborg falla niður í næst efstu deild.

Mikael á skotskónum er AGF stökk upp í þriðja sæti
Mikael Neville Anderson skoraði annað mark AGF er liðið vann mikilvægan 3-1 útisigur gegn Randers í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

FC Kaupmannahöfn danskur meistari annað árið í röð
Íslendingalið FC Kaupmannahöfn er danskur meistari annað árið í röð eftir sigur á Viborg þar sem Nordsjælland tapaði 5-1 fyrir Bröndby. FCK er því tvöfaldur meistari þar sem liðið varð á dögunum bikarmeistari.

Lærisveinar Freys unnu gríðarlega mikilvægan sigur
Lærisveinar Freys Alexanderssonar í Lyngby unnu í dag gríðarlega mikilvægan sigur á AaB í fallbaráttu dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Lyngby á möguleika á því að tryggja sér áframhaldandi veru í dönsku úrvalsdeildinni fyrir lokaumferð deildarinnar.

Alfreð í „skammarkróknum“ en Freyr er með plan A, B og C til reiðu
Alfreð Finnbogason verður fjarri góðu gamni í dag er hann tekur út leikbann í gífurlega mikilvægum leik Lyngby gegn AaB. Sævar Atli Magnússon snýr hins vegar aftur í lið Lyngby og Freyr Alexandersson, þjálfari liðsins segist vera klár með plan A, B og C.

Aron Elís hafði betur í Íslendingaslag
Aron Elís Þrándarson og félagar hans í OB unnu góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Aroni Sigurðarsyni og félögum hans í Horsens í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

„Bað strákana afsökunar“
Alfreð Finnbogason gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Lyngby í gær þegar hann fékk að líta rauða spjaldið í 4-0 tapi gegn OB í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Ísak Bergmann lagði upp mikilvægt sigurmark FCK
Íslenski atvinnu- og landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Ísak Bergmann Jóhannesson, var í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar, lék allan leikinn og gaf stoðsendingu í 4-3 sigri liðsins á AGF í dag. Mikael Neville Anderson skoraði eitt marka AGF í leiknum.