Íslendingar erlendis

Heba Þórisdóttir farðar stjörnurnar í Hollywood
Heba Þórisdóttir er einn fremsti förðunarfræðingur Íslands og Hollywood. Blaðamaður náði tali af Hebu þar sem hún var stödd á tökustað þáttanna Lady in The Lake þar sem hún sér um förðun Natalie Portman. Það var þó kvikmyndin Don’t Worry Darling sem átti sviðsljósið í viðtalinu en Heba hannaði förðun myndarinnar.

Margréti Friðriks vísað úr flugvél Icelandair
Margrét Friðriksdóttir, sem er ritstjóri vefsins Frettin.is, var á leið til Rússlands í morgun en var vísað úr flugvélinni, er strandaglópur á Íslandi og getur því ekki fjallað af eigin raun um ástandið á herteknu svæðunum í Úkraínu.

„Held að íbúar í Íran séu komnir með meira en nóg af ríkisstjórninni“
Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Íran undanfarna daga eftir að ung kúrdísk kona dó í haldi lögreglu. Hún hafði verið handtekin fyrir að vera ekki klædd samkvæmt ströngum reglum klerkastjórnar Írans og dó í síðustu viku.

Stökkið: „Eins og er bý ég með einhverjum tveim gaurum, held ég“
Heiða Vigdís Sigfúsdóttir er rithöfundur, ritlistarnemi og bloggari. Hún gaf nýverið út sína fyrstu skáldsögu, Getnaður, hjá Forlaginu. Í beinu framhaldi af útgáfunni flutti hún af landi brott, beint til Buenos Aires í Argentínu.

Fengu boðskort og þurftu ekki að bíða í röð
Útför Elísabetar II Bretadrottningar verður á morgun. Hundruð þjóðarleiðtoga streyma nú til Lundúna þar sem fólk hefur beðið marga klukkutíma til að votta Elísabetu II Bretadrottningu virðingu sína. Á meðal þeirra eru Íslendingar sem segja drottninguna hafa átt stóran sess í sínu lífi.

„Vorum öll í sjöunda himni og með gæsahúð“
Uppskrifta- og bókahöfundurinn Linda Ben giftist kærasta sínum til þrettán ára, Ragnari Einarssyni, á Ítalíu í vikunni. Saman eiga þau tvö börn. Lífið á Vísi náði tali af henni þar sem hún nýtur lífsins í sólinni á bleiku skýi eftir stóra daginn.

Íslenskar konur slösuðust eftir að loftbelgur brotlenti
Loftbelgur með þrjá Íslendinga innanborðs lenti harkalega nærri Tours í Frakklandi í gærmorgun með þeim afleiðingum að tveir slösuðust.

Heimir um að fara úr Persaflóa til Jamaíka: „Það sem er bannað þar er leyfilegt hér“
Heimir Hallgrímsson var tilkynntur sem nýr landsliðsþjálfari Jamaíka í gærkvöld, föstudag. Þetta hafði legið lengi í loftinu en í gær var tilkynnt að Heimir myndi þjálfa liðið næstu fjögur árin.

Opna sýninguna Sjávarmál í Austurríki: „Sjórinn sem er okkur Íslendingum svo mikilvægur“
Í gær opnaði sérstakur listviðburður í Austurríki að frumkvæði Kristínar A. Árnadóttur sendiherra Íslands gagnvart Austurríki. Viðburðurinn verður opinn um helgina og koma ýmsir íslenskir listamenn við sögu.

Jamaíka kynnir Heimi sem nýjan landsliðsþjálfara
Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, var í kvöld kynntur sem nýr landsliðsþjálfari karlaliðs Jamaíka. Fyrr í vikunni var svo gott sem búið að staðfesta að Heimir væri að taka við og nú hefur opinberlega verið kynntur sem næsti þjálfari liðsins.

Dæmi um fjármálamisferli hjá jamaíska sambandinu
Strembnar vinnuaðstæður kunna að taka við Heimi Hallgrímssyni þegar hann tekur við sem landsliðsþjálfari Jamaíku. Ámælisverð fjármálastjórn hefur loðað við knattspyrnusambandið í landinu.

Riddaraskjöldur Guðna afhjúpaður
Riddaraskjöldur Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, var afhjúpaður við hátíðalega athöfn í Riddarakapellu Friðriksborgarhallar í Kaupmannahöfn síðastliðinn mánudag. Guðni var sæmdur riddaraorðu fílareglunnar árið 2017.

Spenna í Jamaíku fyrir Heimi: „Bjuggumst ekki við að fá mann af þessari stærðargráðu“
Jamaískur íþróttafræðingur og þjálfari segir spennuna mikla í eyríkinu fyrir nýjum þjálfara karlalandsliðs Jamaíku í fótbolta. Búist er við að Heimir Hallgrímsson verði kynntur sem nýr þjálfari liðsins á morgun.

Heimir í erfiðar aðstæður og dóttir Bobs Marley lét þung orð falla
Heimir Hallgrímsson er á leið í afar krefjandi aðstæður sem nýr landsliðsþjálfari Jamaíku, samkvæmt fréttaflutningi þarlendra miðla.

Heimir að taka við Jamaíku
Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, verður kynntur sem nýr þjálfari karlalandsliðs Jamaíku á föstudaginn.

Stökkið: Flutti til Úganda í starfsnám hjá sendiráðinu
Vaka Lind Birkisdóttir er starfsnemi í íslenska sendiráðinu í Kampala, Úganda. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri hjá Stúdentaráði Háskóla Íslands. Hún lærði félagsfræði og hagfræði á Íslandi áður en hún flutti til Dublin þar sem hún útskrifaðist með MSc í alþjóðlegum stjórnmálum frá Trinity College.

Forsetahjónin fögnuðu með Margréti Þórhildi
Í dag fagnaði Margrét Þórhildur Danadrottning fimmtíu ára valdaafmæli sínu. Hún bauð þjóðhöfðingjum Norðurlandanna til veislu og forsetahjónin íslensku létu sig ekki vanta.

Óvænt stödd í miðri þjóðarsorg
„Það er svakalega löng röð af fólki með blóm: Sólblóm og hvítar rósir. Það stendur í marga klukkutíma í röð til að fá að leggja blómin sín upp að hallarveggnum,“ segir Nanna Elísa Jakobsdóttir sem er stödd fyrir utan Buckingham höll í Lundúnum þegar blaðamaður nær af henni tali.

Íslenskir gullgrafarar hafa fundið tíu tonn af gulli
Íslenskir gullgrafarar í Grænlandi hafa staðfest mun meira gullmagn í námu sinni en áður hafði fundist. Heildarsöluverðmæti gullsins er nú áttatíu milljarðar króna en forstjórinn er viss um að mun meira gull leynist í námunni.

Lilja kynnti Ísland fyrir Netflix
Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, fundaði með fulltrúum bandarísku streymisveitunnar Netflix í Los Angeles í Bandaríkjunum á dögunum.

Um 150 Íslendingar á móti sextán þúsund Hollendingum
Nokkur hópur íslenskra stuðningsmanna er mættur til Hollands til að styðja stelpurnar okkar í átt að HM í fótbolta en þeir verða þó í miklum minnihluta á Galgenwaard-leikvanginum í kvöld.

Stökkið: „Því lengur sem ég bý hérna því meira fell ég fyrir þessari borg“
Hildur Anissa býr í Kaupmannahöfn ásamt kærastanum sínum Sebastian og starfar sem svæðissölustjóri hjá Paper Collective, sem er danskt hönnunarfyrirtæki. Einnig starfar hún við samfélagsmiðla þar sem hún aðstoðar áhrifavalda að móta efnið sitt.

Segir kveðjuathöfn Gorbatsjov hafa verið virðulega og viðeigandi
Sendiherra Íslands í Rússlandi, Árni Þór Sigurðsson var viðstaddur kveðjuathöfn sem haldin var í gær til heiðurs Míkhaíl Gorbatsjov sem lést nú á dögunum, 91 árs. Árni segir athöfnina hafa verið virðulega og viðeigandi.

Hvernig risajeppinn komst í kaldan faðm Norður-Íshafsins og aftur burt
Það reyndist þrautin þyngri fyrir íslenska sérfræðinga Arctic Trucks að bjarga Ford F-150 jeppa sem fór niður um ísinn í Norður-Íshafi í könnunarleiðangri fyrir umfangsmikið ferðalag svissneskra samtaka sem ætla sér að keyra á báða póla jarðar. Covid-19, innrás Rússa í Úkraínu og flökkusögur um að gríðarlegt magn eldsneytis hafi farið niður með bílnum auðvelduðu ekki verkið. Björgunin tókst hins vegar vonum framar.

Íslendingar á meginlandinu glíma við margfalt hærri reikninga
Staðan á orkumarkaði í Evrópu er grafalvarleg að sögn Íslendinga búsettra á meginlandinu. Dæmi eru um að fólk sé að fá allt að 200 prósentum hærri reikninga fyrir hita og rafmagni nú en fyrir ári síðan. Rússar munu ekki opna fyrir Nordstream gasleiðsluna til Evrópu á morgun líkt og til stóð, sem er talið viðbragð við nýjum aðgerðapakka G-7 ríkjanna.

Hildur Guðna orðuð við Óskarsverðlaun
Kvikmyndin Tár var í dag frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Cate Blanchett fer með aðalhlutverk myndarinnar og samdi Hildur Guðnadóttir tónlistina. Hildur er sögð líkleg til að vinna Óskarsverðlaun fyrir myndina.

„Við erum að fara niður“
Búið er að ná Ford F-150 jeppa sem að fór í gegnum ísbreiðuna á Norður-Íshafinu í miðjum jeppaleiðangri í mars síðastliðnum á þurrt land. Íslenska fyrirtækið Arctic Trucks kom bæði að jeppaleiðangrinum í mars sem og björgunaraðgerðum núna í ágúst.

Laufey Lín með eina vinsælustu plötu Bandaríkjanna
Tónlistarkonan og djass söngkonan Laufey Lín Jónsdóttir situr í tíunda sæti yfir vinsælustu nýju plöturnar á topplista Spotify í Bandaríkjunum. Platan heitir Everything I Know About Love og kom út 26. ágúst síðastliðinn.

Stökkið: Féll fyrir David Attenborough í æsku
Rakel Dawn Hanson er dýrafræðingur sem er búsett í Bristol með kærastanum sínum James Scrivens. Hún vinnur við að gera dýralífsheimildarmyndir en áhuginn á faginu kom eftir að hún varð ástfangin að störfum David Attenborough í æsku.

Hátíðarstemning þegar ný kvenna- og fæðingardeild var opnuð
Ný kvenna- og fæðingardeild var formlega opnuð á skólalóð ABC barnahjálpar í bænum Rockoko í norðurhluta Úganda fyrr í mánuðinum. Framkvæmdin var fjármögnuð með stuðningi íslenska utanríkisráðuneytisins, nytjamarkaðar ABC og sömuleiðis annarra styrktaraðila.