
Þýski boltinn

Segir Bayern hafa náð samkomulagi við lykilmann Leverkusen
Það virðist næsta víst að miðvörðurinn Jonathan Tah færi sig um set frá Þýskalandsmeisturum Bayer Leverkusen til Bayern München.

Brighton vill fá þjálfara sem er yngri en nokkrir leikmenn liðsins
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton & Hove Albion er í viðræðum við Fabian Hürzeler um að taka við sem þjálfari liðsins.

Fær starfið til frambúðar eftir fimm leiki án ósigurs
Sabrina Wittmann hefur verið ráðin aðalþjálfari þýska 3. deildarliðsins Ingolstadt eftir frábæran árangur sem bráðabirgðaþjálfari þess undir lok tímabilsins.

Arsenal, Chelsea, Newcastle og Man Utd á eftir framherja Leipzig
Benjamin Šeško er nafn sem reikna má með að verði mikið í fjölmiðlum í sumar en þessi 21 árs gamli framherji RB Leipzig er eftirsóttur af Arsenal, Chelsea, Manchester og Newcastle United.

Segir að stærstu mistök í sögu Bayern hafi verið að selja Kroos
Þýska fótboltagoðsögnin Lothar Matthäus segir að það hafi verið stærstu mistök í sögu Bayern München að selja Toni Kroos til Real Madrid.

Nagelsmann sammála Kimmich og fordæmir rasíska könnun
Þýski þjálfarinn Julian Nagelsmann tók undir orð landsliðsmannsins Joshua Kimmich og segir fáránlegar spurningar settar fram í rasískri könnun ríkismiðilsins ARD.

Bayern vill kaupa leikmann af ósigruðu meisturunum
Bayer Leverkusen varð þýskur meistari á nýliðnu tímabili eftir að hafa farið ósigraðir í gegnum tímabilið. Þeir gætu hins vegar misst einn af sínum mikilvægustu mönnum til stórliðs Bayern Munchen.

Mjög ósáttur við rasisma meðal þýsku þjóðarinnar
Þýski landsliðsmaðurinn Joshua Kimmich er allt annað en sáttur við bæði spurninguna og svörin í nýrri skoðunakönnum meðal þýsku þjóðarinnar þar sem spurt var út í þýska fótboltalandsliðið.

Afi skenkti leikmönnum Dortmund bjór
Stöð 2 Sport ræddi við stuðningsmann Dortmund í tilefni af stórleik kvöldsins á Wembley leikvanginum í London. Sá á afa sem færði leikmönnum liðsins bjór á knæpu í Dortmund og passar enn í treyju sína frá árinu 1997.

Ætla að sniðganga Dortmund útaf samstarfi við vopnaframleiðanda
Borussia Dortmund gekk frá samningi við þýska vopnaframleiðandann Rheinmetall fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar á morgun. Ákvörðunin hefur ekki notið góðs hljómgrunns meðal stuðningsmanna sem ætla að sniðganga félagið og segja blóð komið á hendur stjórnarmanna.

Kompany tekinn við Bayern München
Vincent Kompany hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri Bayern München. Hann skrifar undir þriggja ára samning.

Guardiola ráðlagði Bayern að ráða Kompany
Bayern München leitaði til Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City, áður en félagið fór í viðræður við Vincent Kompany.

Rígur Íslendingaliðanna sá til þess að keppni var endurvakin eftir 27 ára hlé
Næsta tímabil í þýska kvennaboltanum byrjar á sannkölluðum stórleik. Íslendingaliðin Bayern München og Wolfsburg mætast þá í Ofurbikarnum.

Ísak skoraði í vítakeppni í grátlegu tapi
Bochum er komið upp í þýsku úrvalsdeild karla í fótbolta eftir ótrúlegan sigur á Fortuna Düsseldorf, liði Ísaks Bergmanns Jóhannessonar, í vítaspyrnukeppni. Ísak Bergmann skoraði úr sinni spyrnu í vítaspyrnukeppninni.

Sveindís Jane mætti og studdi sína konu: Stolt af þér gullið mitt
Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir snéri aftur inn á fótboltavöllinn í gær eftir níu mánaða fjarveru.

Leverkusen bikarmeistari eftir vonbrigðin í Evrópu
Bayer Leverkusen er þýskur bikarmeistari í knattspyrnu karla. Liðið stendur uppi sem bæði Þýskalandsmeistari sem og þýskur bikarmeistari eftir ótrúlegt tímabil þar sem eina tap liðsins kom gegn Atalanta í úrslitum Evrópudeildarinnar.

Bayern borgar 12 milljónir evra fyrir Kompany
Svo virðist sem ráðning Bayern Munchen á þjálfaranum Vincent Kompany sé frágengin. Félagið mun greiða Burnley 12 milljónir evra fyrir hann.

Ísak og félagar með annan fótinn í deild þeirra bestu
Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í Fortuna Düsseldorf eru í frábærum málum eftir fyrri leikinn í umspili um sæti í þýsku Bundesligunni.

Lookman gekk frá Leverkusen og Atalanta er Evrópudeildarmeistari
Ademola Lookman kom, sá og batt enda á ótrúlega sigurgöngu Bayer Leverkusen þegar hann skoraði magnaða þrennu og tryggði Atalanta 3-0 sigur í úrslitaleik Evrópudeildar karla í fótbolta.

Féll í vor en vonast eftir Chelsea eða Bayern
Vincent Kompany vonast eftir símtölum frá stórliðum Chelsea og Bayern Munchen þrátt fyrir að hafa fallið með liði Burnley úr ensku úrvalsdeildinni í vor.

„Við drekkum blóð á hverjum morgni“
Granit Xhaka og félagar hans í Bayer Leverkusen eru klárir í slaginn fyrir úrslitaleik Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld. Atalanta mætir liðinu í úrslitum.

Martin og félagar tóku sópinn með sér
Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson og liðsfélagar hans í Alba Berlín eru komnir í undanúrslit þýsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta þökk sé sópi á Bonn í 8-liða úrslitum.

Fékk rautt spjald fyrir brot á Sveindísi sem fór meidd af velli
Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir fór meidd af velli eftir aðeins 22 mínútna leik í dag.

Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz
Það muna eflaust einhverjir eftir Bomber Bo, Dananum Bo Henriksen, sem spilaði með þremur íslenskum félögum á árunum 2005 til 2006. Nú er kappinn að gera góða hluti sem þjálfari og er kallaður kraftaverkamaður í Mainz.

Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum
Deildarkeppni í þýsku úrvalsdeildinni lauk í gær með heilli umferð. Bayern München mátti þola 4-2 tap gegn Hoffenheim í lokaumferðinni og kastaði þar með frá sér öðru sætinu.

Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað
Bayer Leverkusen fór ósigrað í gegnum þýsku úrvalsdeildina sem lauk í dag. Einn dáðasti sonur Borussia Dortmund kvaddi með marki beint úr aukaspyrnu í síðasta heimaleiknum.

Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman
„Þetta er minn síðasti blaðamannafundur hér,“ sagði Thomas Tuchel, stjóri Bayern München, á fundi í morgun. Félagið leitar áfram logandi ljósi að nýjum þjálfara.

Gæti haldið áfram eftir allt saman
Fregnir frá Þýskalandi herma að líklegast sé að Thomas Tuchel haldi kyrru fyrir hjá Bayern München og verði áfram þjálfari liðsins. Löngu er ákveðið að hann yfirgefi félagið í sumar.

Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar
Enska úrvalsdeildin hefur tilkynnt opnunartíma félagaskiptagluggans fyrir næsta tímabil. Lokadagur sumargluggans verður fyrr en vanalega en lokadagur vetrargluggans síðar en vanalega.

Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann
Bayern München leitar enn logandi ljósi að nýjum þjálfara til að taka við stjórnartaumunum í sumar. Crystal Palace á Englandi sendi liðinu skýr skilaboð þegar spurst var fyrir um þjálfara liðsins.