
Stéttarfélög

Þegar ég uppgötvaði hvað Efling raunverulega var
Árið er 2002 og ég er 23 ára starfandi hópbifreiðastjóri hjá fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem kennir sig við gular rútur. Ég er ung og pæli þá kannski ekkert sérstaklega í hvort ég sé á mannsæmandi launum, en er meira spennt og glöð með að vera komin í vinnu við að keyra stærri hópferðabíla og fæ að ferðast hringinn um landið með ferðamenn á sumrin.

Nýr formaður og stjórnarfólk Eflingar velkomið að stefnumótun kjarasaminga
Starfandi varaformaður Eflingar telur enga þörf á að kalla saman aukaaðalfund í félaginu til að flýta stjórnarskiptum og aðkomu nýrrar forystu að mótun kröfugerðar fyrir komandi kjarasaminga. Nýkjörinn formaður og stjórnarfólk væri velkomið að taka þátt í þeirri vinnu nú þegar.

Sólveig Anna segir samstarfið undir starfsmönnum Eflingar komið
Sólveig Anna Jónsdóttir vonar að starfsfólk skrifstofu Eflingar skilji hvað felist í því að hún mæti á ný til forystu með endurnýjað umboð félagsfólks. Hún fái vonandi vinnufrið til að hefja undirbúning að gerð komandi kjarasamninga. Framhaldið sé undir starfsfólki komið.

Pyrrhosarsigur Sólveigar Önnu
Sólveig Anna Jónssdóttir verður formaður Eflingar á ný eftir að hafa tryggt sér nauman meirihluta atkvæða í nýafstöðnu stjórnarkjöri. Hún kemur löskuð út úr hatrammri kosningabaráttu og umboð hennar er mun veikara heldur en það var fyrir fjórum árum síðan. Þetta var sannkallaður Pyrrhosarsigur.

Sólveig Anna aftur kjörin formaður Eflingar
Sólveig Anna Jónsdóttir og Baráttulistinn bar sigur úr býtum í stjórnarkjöri Eflingar sem lauk í kvöld með yfir helmingi atkvæða. Tekur hún því við formannsstól verkalýðsfélagsins í annað sinn en hún sagði af sér í október síðastliðnum í kjölfar vantraustsyfirlýsingar frá starfsfólki Eflingar.

Í beinni: Hver verður formaður Eflingar?
Sólveig Anna Jónsdóttir og Baráttulistinn bar sigur úr býtum í stjórnarkjöri Eflingar sem lauk í kvöld. Tekur hún því við formannsstóli verkalýðsfélagsins í annað sinn en hún sagði af sér í október síðastliðnum í kjölfar vantraustsyfirlýsingar frá starfsfólki Eflingar.

Kjörkassi í Hveragerði ræður úrslitum um hvenær niðurstaða verður kynnt
Stjórnarkosning í Eflingu lýkur klukkan 20 í kvöld og segist Halldór Oddsson, lögfræðingur hjá ASÍ og formaður kjörstjórnar, vona að hægt verði að kynna niðurstöðu um klukkan 21:30.

A-listi Eflingar berst af áræði og heilum hug fyrir verkalýðnum
Í kvöld lýkur kosningum í Eflingu og félagsmenn velja þá stjórn sem þeir vilja að stýri stéttarfélaginu í gegnum kjarasamningsviðræður og næstu tvö árin. Kosningabaráttan hefur að miklu leyti verið höfðuð í fyrirsögnum fjölmiðla og í skotgröfum samfélagsmiðla, en ég vil ljúka henni með bjartsýni og skýrum skilaboðum um það sem ég og A-listi minn stöndum fyrir.

Leiguþak er lífsnauðsynleg kjarabót fyrir verkafólk
Langvarandi húsnæðisskortur á Íslandi hefur gert leigumarkaðinn að kjöraðstæðum fyrir fjármagnseigendur til þess að okra á þeim eignaminni.

For a Unified Efling, Lead by Workers
I have wanted to participate in a union ever since I began working in my home country, the USA. As a worker in the USA, I had to negotiate contracts by myself, and watch as salaries, benefits, and free time declined due to right-wing and neoliberal governments and the unchecked power of capital. I longed for the collective bargaining power of the pre-McCarthy era.

Fjölbreytileika og styrk í forystu Eflingar
Ég er ein af mörgum innflytjendum á íslenskum vinnumarkaði sem tilheyra Eflingu - stéttarfélagi. Ég hef búið á Íslandi síðan árið 2002 og hef unnið á Landspítalanum í eldhúsinu í yfir 16 ár. Ég er stolt af að hafa verið trúnaðarmaður á vinnustaðnum mínum síðan 2015.

Sögulegt mikilvægi þess að Sólveig Anna verði næsti formaður Eflingar!
Flestallir Íslendingar vita að með kosningu Sólveigar Önnu sem formanns Eflingar 2018 hófust nýir tímar í sögu verkalýðshreyfingarinnar og það kom „Vor í Verkó“!

Leiðtogi sem kann að leiða kjarabaráttu
Sem félagsmaður í Eflingu hef ég fylgst spenntur með breytingum í félaginu okkar á síðustu árum. Kjarasamningalotan 2018-2020 var mikil prófraun fyrir nýja forystu. Allt var gert til að leggja stein í götu okkar.

Kjósum formann sem berst fyrir félagsfólk Eflingar
Ég byrjaði að vinna á leikskóla árið 2014 eftir að hafa unnið á fjármálamarkaði í tugi ára. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því hversu mikil og erfið vinna fer fram á leikskólum borgarinnar, við bág kjör og oft lélegan húsakost. Ég lenti til dæmis í mygluhúsnæði, sem ég varð mjög veik af.

Vinnumarkaður í þroti
Sú mynd sem dregin er upp af lífi fiskverkafólks í sjónvarpsþáttunum Verbúðin hefur rifjað upp þann veruleika var lengi við lýði.

Sögufölsun skuggastjórnenda verkalýðshreyfingarinnar
Það var nú undarleg sögufölsun sem kom fram í pistli frá Gunnari Karli starfsmanni stéttarfélags Bárunnar á Selfossi á Vísi í gær þar sem hann fjallaði að stærstum hluta um formannskosningarnar í Eflingu.

Kjarkmikla forystu í Eflingu
Kjarkmikla forystu í Eflingu. Sem meðlimur í trúnaðarráði Eflingar hitti ég Sólveigu Önnu Jónsdóttur í fyrsta sinn í kuldanum fyrir utan afgreiðslu Icelandair, þar sem hún stóð fremst í stafni að mótmæla uppsögn á trúnaðarmanni Eflingar. Þar sá ég leiðtoga sem talar ekki bara um baráttu heldur tekur raunverulegan þátt í henni.

Segist hafa nýtt kvartanirnar til að bæta sig í starfi
Viðar Þorsteinsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Eflingar segir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, fyrrverandi formann og núverandi formannskandídat, hafa miðlað til hans nafnlausum kvörtunum sem mannauðsstjóri Eflingar sýndi Sólveigu. Hann hafi nýtt þær eins og aðra endurgjöf til að bæta sig í starfi. Þá segist hann hafa átt farsælt samstarf við alla sína undirmenn hjá Eflingu.

Frelsari Verkalýðsins
Síðustu vikur hefur ömurleg birtingarmynd ofbeldis og ósanninda fengið að lifa óáreitt. Sólveig Anna hefur ekki sparað stóru orðin og þar er mörgum spurningum ósvarað. Fjölmiðlum hefur ekki tekist að sinna hlutverki sínu sem skildi þar sem að Sólveig hafnar ítrekað viðtölum hjá flest öllum miðlum landsins.

Þurfa að hlaupa 76 kílómetra á dag til að vera „frábær“ í starfi
Óraunhæfar kröfur eru gerðar til ræstingafólks sem brjóta í bága við vinnuverndarlöggjöf að mati Vinnueftirlitsins. Til að ná því sem er skilgreint sem „frábær árangur“ í starfi heilan vinnudag er ætlast til vinnuálags sem samræmist því að hlaupa næstum tvö maraþon.

Sólveig Anna kannast ekki við kvartanir frá starfsfólki
Sólveig Anna Jónsdóttir segist bjóða sig fram til formennsku í Eflingu á ný vegna fjölda áskoranna jafnvel þótt það gæti kostað átök. Mótframbjóðendur hennar segja að hún hafi ekki tekið á kvörtunum starfsfólks á skrifstofunni undan framkvæmdastjóra félagsins í þess garð en það kannast Sólveig Anna ekki við

Bætt kjör fyrir bílstjóra og burt með vinnusvindl í ferðamennsku
Ágætu Eflingarfélagar, þetta er fyrsta greinin sem ég skrifa um störfin í Eflingu. Fjallar hún um bílstjóra og tækjamenn. Og af hverju býð ég mig fram til formanns Eflingar? Jú til að hafa áhrif á framtið félagsmanna Eflingar. Bæði konur og karla.

Segja Sólveigu Önnu ljúga um umfang kvartana
Hópur kvenna sem kvartaði undan framkomu Viðars Þorsteinssonar, þáverandi framkvæmdarstjóra Eflingar, sakar Sólveigu Önnu Jónsdóttur um að hafa ekki brugðist við þeim kvörtunum. Þær segja Sólveigu Önnu ljúga þegar hún segist aðeins hafa „eftir krókaleiðum“ fengið umkvartanir í eitt skipti.

Sólveig Anna fær ískaldar kveðjur frá Agnieszku Ewu
Agnieszka Ewa Ziółkowska starfandi formaður Eflingar segir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, fyrrverandi formann, málsvara sundrungar. Agnieszka hvetur félagsmenn í Eflingu að kjósa Ólöfu Helgu Adolfsdóttur í komandi formannskjöri.

Bein útsending: Formannsefni Eflingar takast á í Pallborðinu
Kosningar til embættis formanns Eflingar og helmings stjórnarsæta hefst í fyrramálið og stendur yfir í viku. Ólöf Helga Adolfsdóttir starfandi varaformaður félagsins, Sólveig Anna Jónsdóttir fyrrverandi formaður og Guðmundur Baldursson stjórnarmaður í Eflingu bjóða sig fram til formanns.

Głosuj na Ólöf jako na nową przewodniczącą Eflingu!
Kiedy tej zimy objęłam stanowisko przewodniczącej Eflingu, mogłam wyobrazić sobie tylko jedną osobę do pełnienia funkcji wiceprzewodniczącej.

Segir „afbrigðilega stemningu“ ríkja innan ASÍ
Sólveig Anna telur að félög innan Alþýðusambandsins hyggist blanda sér í komandi formannskosningar Eflingar. Markmiðið sé að koma í veg fyrir að B-listi hennar beri sigur úr býtum í kosningunum.

Ég vil ávinna mér virðingu
Fyrir nokkrum mánuðum var mér sagt upp sem hlaðmanni við Reykjavíkurflugvöll fyrir að standa í réttindabaráttu sem trúnaðarmaður. Ég neitaði að hlýða yfirvaldinu og hef farið með málið alla leið í félagsdóm. Ég lagði allt í veðið og vil gera það áfram sem næsti formaður Eflingar.

Var sagt upp af Isavia vegna aldurs og fær ekki aðra vinnu
Rafeindavirki sem Isavia sagði upp vegna aldurs fagnar því að kærunefnd jafnréttismála hafi staðfest brot félagsins gegn sér. Hann myndi gjarnan vilja fá að vinna lengur en segir engan til í að ráða 68 ára gamlan mann í vinnu.

Allir þrír listarnir lögmætir og kosning hefst á miðvikudag
Framboðslistar Ólafar Helgu Adolfsdóttur, Sólveigar Önnu Jónsdóttur og Guðmundar Jónatans Baldurssonar vegna formannskosninga í stéttarfélaginu Eflingu hafa allir verið taldir lögmætir og hefst kosning meðal félagsmanna miðvikudaginn næsta og mun standa til klukkan 20 15. febrúar næstkomandi.