Bandaríkin

Project 2025 og Bandaríkin eftir Trump: „Ég held að það sé alveg ástæða til að hafa áhyggjur“
„Ég held að það sé alveg ástæða til að hafa áhyggjur en það er ekkert sjálfsagt að þetta gangi allt í gegn,“ sagði Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, um Project 2025 í þættinum Baráttan um Bandaríkin á miðvikudag.

Stjórnvöld í Kína banna ættleiðingar frá landinu
Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að banna ættleiðingar frá landinu, nema í þeim tilvikum þegar um er að ræða ættingja sem vilja ættleiða barn sér skylt.

Gaf syni sínum byssu þrátt fyrir hótanir um skotárás
Faðir Colt Gray, fjórtán ára piltsins sem grunaður er um að hafa myrt fjóra í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum, hefur verið handtekinn og á yfir höfði sér ákæru.

Mæðgurnar fengu nei í fyrstu tilraun en gefast ekki upp
Fjölskylda Söndru Sigrúnar Fenton vinnur nú að því með íslenskum lögmanni að reyna að fá hana framselda til Íslands. Lögmaðurinn hefur rætt við íslensk stjórnvöld og er í sambandi við dómsmálaráðuneytið vegna málsins.

Hljómi eins og öskubakki
Ástralski kántrísöngvarinn Keith Urban er yfir sig hrifinn af kollega sínum og stjörnunni Miley Cyrus. Hann hrósaði henni með frekar einkennilegum hætti í hlaðvarpsþætti nýverið þar sem hann sagði hana hljóma alveg eins og öskubakki.

Hunter Biden breytir afstöðu í skattsvikamáli
Hunter Biden, sonur Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, ætlar að breyta afstöðu sinni til sakarefnis í skattsvikamáli gegn honum í dag. Hann hafði áður lýst yfir sakleysi sínu og heldur því í raun áfram en segist ætla að gangast við þeirri refsingu sem dómarinn telur að hann eigi að hljóta.

Rúmar fimmtíu milljónir á mánuði fyrir Rússaáróður
Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sökuðu í gær ráðamenn í Rússland um að verja milljónum dala til áróðursherferða gegnum ríkismiðil Rússlands, RT (sem áður hét Russia Today). Áróðrinum var ætlað að hjálpa Donald Trump við forsetaframboð hans og grafa undan stuðningi Bandaríkjamanna við Úkraínu.

Enn ein „lokatilraun“: Samkomulag sagt stranda á tveimur atriðum
Yfirvöld í Egyptalandi og Katar vinna nú að breytingum á tillögum um vopnahlé á Gasa og eiga í samráði við Bandaríkjamenn. Enn er talað um „lokatilraun“ til að brúa bilið milli Ísrael og Hamas.

Segja yfirburði Bandaríkjanna ógn við stöðugleika í heiminum
Tveir sérfræðingar í öryggis- og varnarmálum segja hernaðarlega yfirburði Bandaríkjanna og bandamanna þeirra gagnvart Kína og Rússland mögulega ógn við stöðugleika í heiminum.

Utanríkismálin meira áberandi og Pennsylvanía í brennidepli
„Við sem erum í alþjóðastjórnmálum erum yfirleitt mjög sár yfir því að fólk kýs ekki út á utanríkismál,“ sagði Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, í umræðum um forsetakosningarnar vestanhafs í nýjum þætti af Baráttan um Bandaríkin.

Minnst fjórir látnir eftir skotárás í menntaskóla
Í það minnsta fjórir eru látnir eftir að skotárás var framin í menntaskóla í Georgíuríki í Bandaríkjunum í dag. Auk hinna fjögurra látnu eru fleiri tugir særðir.

Skipstjóri rekinn eftir vandræðalega myndatöku
Skipstjóri tundurspillisins John McCain var nýverið rekinn af yfirmönnum sínum í sjóher Bandaríkjanna. Það var gert fjórum mánuðum eftir að mynd af honum sem þótti vandræðaleg var birt á samfélagsmiðlum sjóhersins.

Svikakvendið ætlar að dansa með stjörnunum
Rússneska svikakvendið Anna Sorokin, öðru nafni Anna Delvey, mun keppa í 33. þáttaröð af bandarísku dansþættinum Dancing with the stars. Dansfélagi hennar verður atvinnudansarinn Ezra Sosa.

Stærsta aðgerð gegn ISIS í Írak í nokkur ár
Bandarískir og írakskir sérsveitarmenn gerðu í síðustu viku áhlaup á nokkra staði í vesturhluta Íraks og felldu þeir minnst fjórtán vígamenn Íslamska ríkisins. Aðgerðin er sögð sú umfangsmesta gegn ISIS í Írak um nokkurra ára skeið en hún var framkvæmd á sama tíma og yfirvöld Bandaríkjanna og Íraks ræða það hvernig binda eigi enda á viðveru bandarískra hermanna í Írak eða draga verulega úr henni.

Svanhildur boðin velkomin
Svanhildur Hólm Valsdóttir er tekin við sem sendiherra Íslands í Washington í Bandaríkjunum. Hún er boðin velkomin til starfa á samfélagsmiðlum sendiráðsins.

Ákæra leiðtoga Hamas vegna árásanna 7. október
Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna opinberuðu í gær ákærur á hendur Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas, og annarra leiðtoga samtakanna. Er það vegna árásanna á Ísrael þann 7. október í fyrra en ákærurnar snúast meðal annars að morðum, mannránum og hryðjuverkastarfsemi.

Vill rétta Musk niðurskurðarhnífinn
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, er sagður hafa um nokkuð skeið rætt við ráðgjafa sína um að skipa auðjöfra og þekkta forstjóra í starfshóp sem finna á leiðir til niðurskurðar hjá alríkisstjórn Bandaríkjanna. Elon Musk, einn auðugasti maður heims, er meðal þeirra sem gæti setið í starfshópnum og hefur hann lýst því yfir að hann sé tilbúinn til starfa.

Æfðu viðbragð eftir stórt brunaslys með Bandaríkjaher
Viðbragðsaðilar á Íslandi ásamt Bandaríkjaher æfðu í dag viðbragð við því ef fjöldi fólks fengi alvarleg brunasár á sama tíma. Æfingin gekk vel að sögn þátttakenda sem margir hverjir brugðu sér í gervi sjúklinga.

Lögðu hald á einkaþotu Venesúelaforseta
Bandarísk yfirvöld lögðu hald á einkaþotu sem Nicolas Maduro forseti Venesúela hefur nýverið flogið með í Dóminíska lýðveldinu í dag. Flugvélinni var í framhaldinu flogið til Flórída en bandamenn Maduro eru grunaðir um að hafa fest kaup á henni með ólögmætum hætti.

Geimfarið snýr aftur til jarðar en geimfararnir verða eftir
Starliner geimfari Boeing verður flogið aftur til jarðar á föstudaginn en geimfararnir sem fóru með því til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar (ISS) í júní verða eftir. Upprunalega átti geimferð þeirra Butch Wilmore og Suni Williams eingöngu að taka átta daga en vonast er til að þau geti snúið aftur til jarðar í febrúar.

Lana Del Rey og krókódílamaður vekja athygli
Söngkonan Lana Del Rey virðist vera að slá sér upp með nýjum gaur ef marka má myndir sem náðust af henni um helgina. Sá heppni heitir Jeremy Dufrene og er skipstjóri frá Louisiana sem sem sérhæfir sig í krókódílatúrum.

Sex gíslar fundust látnir
Sex einstaklingar sem voru teknir í gíslingu Hamas 7. október fundust látnir á Gasaströndinni í gær. Ísraelski herinn sagðist hafa fundið líkin í hernaðaraðgerð í neðanjarðargöngum í Rafah.

Hneig niður á miðjum tónleikum
Bandaríski rapparinn Fatman Scoop er látinn, 53 ára að aldri. Scoop hneig niður á sviði á miðjum tónleikum sínum í Conneticut í Bandaríkjunum í gær. Hann var fluttur með sjúkrabíl á nærliggjandi sjúkrahús og síðar úrskurðaður látinn.

„Fína konan“ skyndilega umkringd fyllibyttum
Jóhanna Guðmundsdóttir var þriggja barna útivinnandi móðir og eiginkona í Bandaríkjunum þegar hún vaknaði upp við vondan draum. Eftir áralanga áfengisneyslu sem hafði undið upp á sig var hún komin á róandi lyf og hrædd um að missa börnin. Í dag leikur lífið við hana.

Trump ætlar að kjósa gegn rétti til þungunarrofs
Donald Trump, forsetaframbjóðandi repúblikana, segist ætla að greiða atkvæði gegn breytingu á stjórnarskrá Flórída sem tryggði konum rétt til þungunarrofs. Nýleg lög þar leggja bann við þungunarrofi áður en margar konur vita að þær eigi von á sér.

Útgáfufyrirtækin höfða mál gegn Flórída vegna bókalaga
Penguin Random House, stærsta útgáfufyrirtæki Bandaríkjanna, og fleiri útgefendur hafa höfðað mál á hendur menntamálayfirvöldum í Flórída vegna laga sem banna kynferðislegt efni á skólabókasöfnum.

Starfsmaður Wells Fargo sat látinn við skrifborð sitt í fjóra daga
Rannsókn stendur yfir á andláti starfsmanns Wells Fargo í Arizona, sem mætti til vinnu klukkan sjö á föstudagsmorgni og fannst látinn við skrifborðið sitt fjórum dögum síðar.

Ætlar að skipa repúblikana í ráðuneyti sitt
Kamala Harris sagðist ætla að skipa repúblikana í ríkisstjórn sína næði hún kjöri sem forseti í fyrsta meiriháttar fjölmiðlaviðtali sínu eftir að hún varð forsetaframbjóðandi demókrata. Hún lét aðdróttanir Trump um kynþátt hennar sem vind um eyru þjóta.

Fulltrúar Trump hrintu starfsmanni hermannagrafreits
Starfsmaður forsetaframboðs Donalds Trump hrinti fulltrúa Bandaríkjahers þegar sá síðarnefndi brýndi fyrir honum reglur sem banna stjórnmálastarf í grafreit fallinna hermanna í vikunni. Framboðið sakaði starfsmann grafreitsins um að vera veikan á geði.

Ætluðu sér að myrða tugþúsundir á tónleikum Swift
Mennirnir sem voru handteknir í tengslum við fyrirhugaða árás á tónleika Taylor Swift í Vínarborg ætluðu sér að myrða tugþúsundir, að sögn aðstoðarforstjóra CIA.