
Borgarstjórn

Leita að húsnæði fyrir starfsemi Kolaportsins
Reykjavíkurborg leitar nú að nýju húsnæði fyrir almenningsmarkað í miðborg Reykjavíkur. Starfsemin hefur verið rekin undir heitinu Kolaportið í 25 ár, lengst af í jarðhæð Tollhússins eða tuttugu ár.

Styrkja börnin í Palestínu um 150 krónur fyrir hvert barn í Reykjavík
Borgarráð samþykkti í dag einróma að styrkja börn í Palestínu um 150 krónur fyrir hvert reykvískt barn á aldrinum 0-18 ára. Þannig mun Reykjavíkurborg styrkja UNICEF um 4,5 milljónir króna.

Dagur svarar fyrir sig varðandi dýrari Fossvogsbrú
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, segir eðlilegt að hækkun á kostnaðaráætlun Fossvogsbrúar sé sett í samhengi við samgönguverkefni víða um land af hendi ríkisins.

Kafa ofan í „stóra bílastæðamálið“
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, segir borgarstjórn hafa ákveðið að leggjast heildstætt yfir verklag við útgáfu sekta vegna stöðubrota í Reykjavík. Nýlega var kona sektuð fyrir að leggja í innkeyrslu á eigin lóð.

Hart deilt um fyrirhugaða sumarlokun
Hart var deilt um fyrirhugaða sumarlokun einstakra almenningsbókasafna borgarinnar á borgarstjórnarfundi í vikunni. Fulltrúar Sósíalistaflokksins segja borgaryfirvöld á hættulegri vegferð en meirihlutinn segir þjónustuna þá mestu á höfuðborgarsvæðinu.

Íslenska er lykill
Rúmlega 20% Reykjavíkinga eru erlendir ríkisborgarar. Rúmlega 30 þúsund manns. Auk þeirra er fjöldi Íslendinga sem hér búa af erlendum uppruna. Þetta er velkominn hópur af fólki sem hér hefur ákveðið að búa og starfa, ala hér upp börnin sín og leggja sitt af mörkum til samfélagsins.

Kvosin í miðbænum verður göngusvæði og bílastæðin fara
Kvosin í Reykjavík verður að heildstæðu göngusvæði og verða bílastæði sem nú eru á svæðinu því tekin. Borgarfulltrúi segir breytinguna verða mikla lyftistöng fyrir staðinn þar sem áhersla verður lögð á gróður, lýsingu og fjölskylduvænt rými.

Má ekki lengur leggja á eigin lóð
Nokkrir íbúar í miðbæ Reykjavíkur eru ósáttir við að fá ekki lengur að leggja í stæði á einkalóðum sínum. Borgin segir stæðin ólögleg. Þegar nágrannar kvarti svo yfir því að lagt sé í stæðin, sé ekkert annað í stöðunni en að sekta.

Innantómir fagurgalar og Dagur augljóslega mjög áhrifamikill
Borgarstjóri boðaði í dag sérstakan átakshóp í húsnæðismálum til að efla uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í borginni. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir fyrri átakshóp borgarstjórans sem hún segir að boðað hafi verið til árið 2022 aldrei hafa fundað. Sjálfur kannast borgarstjóri ekki við að hafa boðað slíkan hóp og segir uppbyggingu eiga að vera aðalatriði málsins.

Dóra Björt ekki að hæðast að Tómasi
Stóra snjómokstursmálið virðist til lykta leitt. Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata segist hafa farið strax í að skoða athugasemdir Tómasar Skúlasonar eftir að Vísir greindi frá þeim.

Gætu fengið yfir fimmtán milljarða fyrir þriðjungshlut í Ljósleiðaranum
Væntingar eru um að Ljósleiðarinn, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, geti verið verðlagður á nálægt fimmtíu milljarða króna í áformuðu hlutafjárútboði félagsins síðar á árinu þar sem til stendur að sækja aukið hlutafé með sölu á þriðjungshlut til nýrra fjárfesta. Mögulegur áhugi lífeyrissjóða veltur meðal annars á því að það takist að fá inn sérhæfða fjárfestingarsjóði að útboðinu.

Skellti upp úr yfir óvæntum hávaðakvörtunum
Borgarfulltrúi Pírata segist hafa farið að hlæja þegar hún sá að kvartað hafði verið til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna hávaða við snjómokstur. Kvörtunum hafi hríðfækkað vegna skorts á snjómokstri í Reykjavík.

Myndir frá fjölmennu kveðjupartýi borgarstjóra í Borgarleikhúsinu
Dagur B. Eggertsson hélt kveðjupartý í Borgarleikhúsinu síðastliðinn laugardag með glæsibrag. Fjöldi fólks mætti og fagnaði tímamótunum í lífi Dags.

Vill sjá minnisvarða um MeToo rísa í Reykjavík
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, vill sjá minnisvarða um MeToo rísa í Reykjavík. Tillaga Lífar um að farið verði í samkeppni um slíkan minnisvarða fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis, áreitni og nauðgana, hefur verið vísað til meðferðar í mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði borgarinnar.

Séra Friðrik felldur af stalli sínum
Starfsmenn borgarinnar eru í þessum skrifuðu orðum að fella séra Friðrik Friðriksson af stalli sínum.

Kaldar kveðjur til Þróttar og KR
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn segir ekki nægilega skýrt hvernig eða hvort brugðist sé við þeim bráðavanda sem myndast hafi í aðstöðumálum íþróttafélaga og grunnskóla í Laugardal með nýrri þjóðarhöll.

Skorað á meirihlutann að spyrna fótum gegn fátækt og ójöfnuði
Umræða um vaxandi fátækt og ójöfnuð er í dag 23. janúar í borgarstjórn að beiðni borgarfulltrúa Flokks fólksins. Farið er fram á að meirihlutinn í borgarstjórn kynni aðgerðir til að spyrna megi fótum við þessari neikvæðu þróun á lífskjörum stækkandi hóps.

„Held að tillögu um mathöll hafi ekki verið hafnað áður í Reykjavík“
Meirihlutinn í Reykjavíkurborg felldi tillögu Sjálfstæðisflokks um að byggja mathöll í Mjódd í annað sinn í síðustu viku. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Hildur Björnsdóttir og Kjartan Magnússon, lögðu tillöguna fram í annað sinn í umhverfis- og skipulagsráði.

„Tel ekki tilefni til að svara þessari Facebook færslu sérstaklega“
Einar Þorsteinsson, nýr borgarstjóri, segir örla á misskilningi hjá utanríkisráðherra ef hann telji borgina veita leyfi til mótmæla á Austurvelli. Það sé stjórnarskrárvarinn réttur fólks að mótmæla. Hins vegar sé enginn bragur á því að Austurvöllur sé gerður að tjaldbúðum vikum eða mánuðum saman. Aðrir hópar hafa óskað eftir því að fá að reisa samskonar tjaldbúðir og Palestínumenn.

Falið að gera Reykjavík aðgengilegri
Bragi Bergsson hefur verið ráðinn í starf aðgengisfulltrúa Reykjavíkurborgar.

Til skoðunar að fleiri í bið geti sótt um niðurgreiðslu
Alls hafa fimmtíu einstaklingar sótt um niðurgreiðslu til Reykjavíkurborgar vegna barna sem eru 18 mánaða eða eldri og eru enn hjá dagforeldrum. Opnað var fyrir umsóknir um niðurgreiðslur í síðustu viku. Skóla- og frístundasvið skoðar nú hvort hægt sé að veita fleirum niðurgreiðslu.

Þakkar fyrir sig með kveðjupartý í Borgarleikhúsinu
Dagur B. Eggertsson heldur kveðjupartý í Borgarleikhúsinu á laugardag. Mörg hundruð manns eru búin að svara boðinu á Facebook. Dagur greiðir sjálfur fyrir veisluna og fær engan afslátt af leigu á leikhúsinu.

Morgunbolli með nýjum borgarstjóra
Einar Þorsteinsson tók við sem borgarstjóri í Reykjavík í gær og tók Sindri Sindrason morgunbollann með honum í gærmorgun í tilefni dagsins.

Tólf sagt upp og ellefu öðrum stöðugildum breytt
Breytingar á 23 stöðugildum hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar voru kynntar í dag. Í breytingunum felast 12 uppsagnir, en í 11 tilvikum verða samningar ekki endurnýjaðir eða ekki ráðið í lausar stöður.

Nýr borgarstjóri setur húsnæðismálin á oddinn
Einar Þorsteinsson nýkjörinn borgarstjóri segir ákall Framsóknarflokksins fyrir síðustu kosningar um breytingar á pólitískri forystu borgarinnar hafa raungerst með kjöri hans í dag. Hann muni leggja sérstaka áherslu á uppbyggingu í húsnæðismálum.

Einar orðinn borgarstjóri
Einar Þorsteinsson var í dag kjörinn borgarstjóri af borgarstjórn. Að fundi borgarstjórnar loknum afhenti Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, Einari lyklavöldin að borgarstjóraskrifstofunni.

Tímamót í Reykjavík
Það er með mikilli gleði og eftirvæntingu sem ég óska nýkjörnum borgarstjóra, Einari Þorsteinssyni velfarnaðar í starfi og til hamingju með nýjan starfstitil. Ég er fullviss um að hann muni hér eftir sem áður vinna af heilindum í þágu Reykvíkinga.

Borgarstjóraskiptin í dag
Í dag verður skipt um borgarstjóra. Búið er að boða til aukaborgarstjórnarfundar kl. 15 og eigum við borgarfulltrúar að greiða atkvæði. Tillaga meirihlutans er eins og löngu er vitað að Einar Þorsteinsson verði næsti borgarstjóri. Auðvitað má spyrja hér til hvers að kjósa?

„Það kemur dagur eftir þennan dag“
Dagur B. Eggertsson vann sinn síðasta dag sem borgarstjóri á þessu kjörtímabili í dag og hefur stólaskipti við Einar Þorsteinsson formann borgarráðs á morgun.

Fólk muni koma víða að til að sjá styttu af Reykvíkingi á heimsmælikvarða
Einar Þorsteinsson, sem tekur við embætti borgarstjóra í næstu viku, segir að Björk Guðmundsdóttir sé sá Reykvíkingur sem mest hefur gert til að koma Reykjavík á kortið á heimsvísu. Því hafi einróma ákvörðun borgarráðs um að heiðra hana með listaverki verið bæði góð og skemmtileg.