
Bólusetningar

Bólusett í Laugardalshöll fram að áramótum
Bólusett verður í Laugardalshöll fram að áramótum, alla virka daga nema 17. desember, á Þorláksmessu, aðfangadag og gamlársdag. Um er að ræða breytingu á fyrirhuguðu fyrirkomulagi en til stóð að flytja bólusetningarnar að Suðurlandsbraut um miðjan mánuð.

Skólum lokað frá 15. desember og Danir hvattir til að vinna heima
Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana kynnti í gærkvöldi nýjar samkomutakarkanir í Danmörku til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Barnaskólum verður lokað þann 15. desember og kennsla verður í gegnum netið fram að jólafríi.

Einkenni smitaðra í Evrópu væg enn sem komið er
Ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar hefur nú greinst í 57 ríkjum heims og heldur áfram að dreifast hratt í Suður-Afríku. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir þó of snemmt að spá um áhrif afbrigðisins í heiminum, þar sem delta sé víðast hvar enn ráðandi.

121 þúsund manns hafa mætt í örvunarbólusetningu
Örvunarskammtur af bóluefni Pfizer þykir veita góða vernd gegn ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar. Þetta sýna nýjar rannsóknir fyrirtækisins. Sóttvarnalæknir segir ávinning af örvunarskammti ótvíræðan en skiptar skoðanir eru meðal almennings um hvort sérreglur eigi að gilda fyrir bólusetta.

Pfizer segir örvunarskammtinn vernda vel gegn ómíkronafbrigðinu
Bandaríski lyfjarisinn Pfizer segir að svokallaður örvunarskammtur gegn kórónuveirunni, það er þriðja sprautan, veiti góða vernd gegn ómíkronafbrigði kórónuveirunnar, mun betri en tveir skammtar gera.

WHO segir að bóluefnin ættu að veita góða vörn gegn alvarlegum veikindum
Tiltæk bóluefni í heiminum ættu að vernda fólk vel gegn alvarlegum veikindum af völdum Omíkron-afbrigðis kórónuveirunnar. Þetta segir Mike Ryan, sem fer fyrir neyðarviðbrögðum hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni.

Mótmæltu bólusetningum á Austurvelli
Tugir manna voru samankomin á Austurvelli á sjöunda tímanum í kvöld til að mótmæla bólusetningarstefnu stjórnvalda. Beindust mótmælin einna helst gegn bólusetningum barna við Covid-19.

Veiran varð nær 30-falt útbreiddari hjá börnum
Heilbrigðisráðherra vonast til að geta slakað til í samkomutakmörkunum á næstu tveimur vikum en breytir engu að sinni. Bólusetning barna fimm til ellefu ára gæti slegið á útbreiðslu faraldursins í heild, að sögn barnalæknis.

Sér fyrir sér að fólk með örvunarskammt sleppi við fjöldatakmarkanir og hraðpróf
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði til við heilbrigðisráðherra að viðhalda óbreyttum sóttvarnaráðstöfunum í nokkrar vikur frá og með 9. desember. Ráðherra ákvað að framlengja núverandi aðgerðir um tvær vikur.

44 prósent boðaðra í desember hafa þegar þegið örvunarskammt
85 prósent þeirra sem áttu kost á því að mæta í örvunarbólusetningu fyrir nóvember hafa þegið þriðja skammtinn og 73 prósent þeirra sem gátu mætt í nóvember. Þá hafa þegar 44 prósent þeirra sem eiga kost á að mæta í desember þegar þegið örvunarskammt.

Að efla hreysti þjóðar
Fleiri heimsfaraldrar eru á leiðinni segja þeir og jafnvel miklu alvarlegri en þessir sem hafa komið áður. Ekki getum við sprautað fólk endalaust í handleggina, við verðum að hugsa dæmið upp á nýtt!

Atvinnurekendur í New York skikkaðir til að krefjast bólusetningar starfsmanna
Borgaryfirvöld í New York hafa ákveðið að allir atvinnurekendur í borginni verði að krefjast þess að starfsmenn þeirra þiggi bólusetningu og séu bólusettir frá og með 27. desember næstkomandi.

Fékk kærkomna staðfestingu á að í sér renni blóð
Örvunarbólusetning heilbrigðisráðherra gekk ekki alveg slysalaust fyrir sig þó stórslys hafi sannarlega ekki átt sér stað. Það blæddi örlítið úr handlegg hans eftir sprautuna og varð því að fá plástur í boði ríkisins, eins og hjúkrunarfræðingurinn sem bólusetti hann komst að orði.

Greindist með omíkron innan við mánuði eftir fyrra smit
Fullbólusett íslensk kona greindist tvisvar með kórónuveiruna á einum mánuði og er nú í einangrun með omíkron afbrigðið. Hún segir nokkurn mun á einkennum og veit ekki hvernig hún smitaðist.

Sóttvarnalæknir hvetur alla til að þiggja örvunarskammt
Sú staðreynd að örvunarskammtur gegn SARS-CoV-2, það er að segja þriðji skammturinn, virðist veita 90 prósent meiri vernd en grunnbólusetning ætti að vera öllum hvatning til að þiggja bólusetningu og örvunarskammt.

Gerir ráð fyrir að Omíkron verði ráðandi afbrigðið á Bretlandseyjum á næstu vikum
Breskur smitsjúkdómasérfræðingur segist gera ráð fyrir því að Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar verði orðið ráðandi á Bretlandseyjum á næstu vikum eða mánuði.

Omíkron setur okkur í biðstöðu með samkomutakmarkanir
Sóttvarnalæknir telur ekki mikið svigrúm til tilslakana þegar núgildandi samkomutakmarkanir renna úr gildi á miðvikudag vegna óvissu um omíkron afbriðið. Niðurstöður rannsókna um virkni bóluefna gagnvart því eigi að liggja fyrir á næstunni. 101 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær.

Dauðsföll af völdum Covid-19 mun tíðari meðal stuðningsmanna Trump
Frá því í maí á þessu ári hafa íbúar í sýslum þar sem Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, naut mikils stuðnings í síðustu forsetakosningum verið þrisvar sinnum líklegri til að deyja sökum Covid-19 en íbúar sýsla þar sem stuðningur við Joe Biden var verulegur.

Omíkron hefur greinst í 16 ríkjum Bandaríkjanna
Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hefur nú fundist í 16 ríkjum Bandaríkjanna en um er að ræða nokkra tugi tilfella. Margir smituðu eru fullbólusettir og með væg einkenni. Delta-afbrigðið er enn það sem greinist í 99,9 prósent tilvika.

Nýgengi smita langlægst hjá þeim sem hafa fengið þriðja skammtinn
Fjórtán daga nýgengi á hverja 100.000 er nú 751 hjá óbólusettum fullorðnum einstaklingum, 478 hjá fullbólusettum og 56 hjá þeim sem hafa fengið þrjá skammta af bóluefnum.

Óbólusettur prestur smitaði fjölda barna í fermingarbúðum
Óbólusettur prestur í Noregi dreifði ekki bara guðsorðum í fermingarbúðum sem hann vann við heldur smitaði hann fjölda fermingarbarna af kórónuveirunni.

Nota Moderna jafn mikið og Pfizer í örvunarbólusetningu
Bóluefni Moderna gegn Covid-19 er notað jafn mikið í örvunarbólusetningum hér á landi og bóluefni Pfizer/BioNTech. Efnið er þó ekki notað við örvunarbólusetningu karlmanna fjörutíu ára og yngri.

27 milljarðar á tveimur árum
Heimsfaraldurinn hefur kostað heilbrigðiskerfið um 27 milljarða á síðustu tveimur árum. Heilbrigðisstofnanir hafa fengið þau skilaboð úr heilbrigðisráðuneytinu að spara ekki í baráttu sinni gegn veirunni - öllum kostnaði verði mætt.

Æðsti vísindamaður WHO segir óðagot vegna omíkron ótímabært
Æðsti vísindamaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) hvetur fólk til að örvænta ekki né fara í óðagot vegna omíkron-afbrigðis kórónuveirunnar og of snemmt væri að segja til um hvert gera þyrfti breytingar á þeim bóluefnum sem hafa verið gerð gegn Covid-19.

Mætti með gervihönd til að komast hjá bólusetningu
Ítalskur maður stendur frammi fyrir ákæru fyrir svik eftir að hann reyndi á frumlegan hátt að verða sér út um bólusetningarpassa án þess þó að láta bólusetja sig. Maðurinn mætti í bólusetningu með gervihönd fasta við sig.

Eitt prósent Þjóðverja með Covid-19 og grunur um sautján Omíkron-smit í jólaboði í Osló
Talið er að sautján einstaklingar sem greindust með Covid-19 í kjölfar jólaboðs í Osló séu með Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar. 64 boðsgesta hafa greinst með Covid og yfirvöld telja líklegt að fleiri muni reynast með Omíkron-afbrigðið.

126 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær
126 greindust með Covid-19 innanlands í gær en 136 í heildina.

Munum aldrei snúa aftur til tímans fyrir faraldur
Þær fregnir berast frá Suður-Afríku að einstaklingar sem hafi sýkst af omíkron-afbrigði kórónuveirunnar séu mestmegnis með mild og flensulík einkenni. Magnús Gottfreðsson, prófessor og yfirlæknir á Landspítala, segir þó of snemmt að segja til um hvort nýja afbrigðið sé vægara en þau fyrri.

Bólusett fram að jólum og milli jóla og nýárs
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út dagskrá bólusetninga fram að áramótum. Áfram verður boðað í örvunarbólusetningu en allir þeir sem fengu seinni skammt fyrir 5 mánuðum eða fyrr geta mætt og gefið upp kennitölu.

Allt útlit fyrir að sjö hafi greinst smitaðir af omíkron
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að allt líti út fyrir að sjö einstaklingar hafi greinst með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hér á landi.