Kvennaliðið efst í undankeppninni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. október 2016 18:00 Kvennaliðið varð efst í undankeppninni. vísir/ernir
Öll fjögur liðin sem Ísland sendi til leiks á EM í hópfimleikum eru komin í úrslit. Bæði unglingaliðin tryggðu sér sæti í úrslitunum í gær og fyrr í dag gerði blandaða liðið slíkt hið sama. Kvennalið Íslands gerði gott betur og endaði í efsta sæti í undankeppninni í dag. Stelpurnar fengu 56,016 í heildareinkunn og flugu inn í úrslitin. Danir enduðu í 2. sæti og Svíar í því þriðja. Finnar, Norðmenn og Bretar komust einnig í úrslitin sem fara fram á laugardaginn. Ísland var fyrsta liðið á svið og opnaði keppnina með látum. Stelpurnar sýndu glæsilegar gólfæfingar sem skiluðu þeim 21,916 í einkunn. Það er þriðja hæsta einkuninn sem hefur verið gefin á mótinu til þessa. Ísland fékk 17,400 í einkunn fyrir stökk á trampólíni og 16,700 fyrir stökk á dýnu. Þær geta gert betur í báðum greinum eins og þær viðurkenndu eftir keppni. Stelpurnar misstu af gullinu á EM á heimavelli fyrir tveimur árum en miðað við frammistöðuna í dag ætla þær ekki að láta það endurtaka sig. Þær ætla sér sigur á laugardaginn og koma með gullið heim.Stelpurnar í gólfæfingum.mynd/steinunn anna svansdóttirBein textalýsing: EM í hópfimleikum 18:00 Ísland endaði í efsta sæti í undankeppninni með 56,016 stig. Danir urðu í 2. sæti og Svíar í því þriðja. 17:50 Ísland fékk 17,400 í einkunn fyrir trampólínið. Íslenska liðið endar því með 56,016 í heildareinkunn og á sigurinn vísan í undankeppninni. 17:25 Stelpurnar voru að klára trampólínið. Fyrsta og þriðja umferðin gengu virkilega vel en það voru smávægilegir hnökrar í lendingum í annarri umferðinni. 16:59 Íslenska liðið fékk 16,700 í einkunn fyrir stökkin á dýnu. Það þýðir heildareinkunn upp á 38,616. Stelpurnar fljúga inn í úrslitin, það er nokkuð ljóst. Það er bara spurning í hvaða sæti þær enda. Ekki að það skipti öllu máli, aðalmálið er hvar liðið endar á laugardaginn. 16:55 Íslensku stelpurnar voru að enda við að klára dýnustökkin. Reynsluboltinn Glódís Guðgeirsdóttir fór fyrir sínum stelpum sem áttu nokkur glæsileg stökk. Lendingarnar virtust flestar vera í lagi. 16:30 Þetta líkar mér! Íslenska liðið fær 21,916 í einkunn fyrir gólfæfingarnar. Þetta er þriðja hæsta einkuninn á mótinu til þessa. Góð byrjun hjá stelpunum. 16:20 Keppni í kvennaflokki er hafin og drottningarnar okkar riðu á vaðið með sérlega vel heppnuðum gólfæfingum. Nú er að bara að bíða eftir einkuninni. 15:45 Fimmta sætið er niðurstaðan og Ísland er komið áfram ásamt Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Bretlandi og Ítalíu. 15:30 Ísland fékk 15,950 í einkunn fyrir dýnuna. Íslenska liðið er í 3. sæti þegar fjögur lið eiga eftir að fá sína lokaeinkunn. Ísland er komið í úrslit, það er hægt að slá því föstu. 15:18 Íslenska liðið var að klára æfingar á dýnu og hefur þar með lokið leik í dag. Ísland er sem stendur í 3. sæti og er að fara áfram í úrslitin á laugardaginn. 15:07 Ísland datt niður í 2. sætið eftir að Noregur fékk 20,816 stig fyrir gólfæfingar sínar. 14:52 Jahá! Ísland fær 20,566 í einkunn fyrir gólfæfingarnar og hefur þar með tekið forystu í keppninni. Þetta er hæsta einkunn sem hefur verið gefin í keppninni til þessa. 14:45 Dansinn að baki hjá Íslandi. Þær þrjár einkunnir sem hafa verið gefnar fyrir dansinn hingað til eru ekkert sérstaklega háar: 17,183, 16,400 og 13,700. Það verður spennandi að sjá hvaða einkunn Ísland fær. 14:18 Íslenska liðið fær 16,900 í einkunn fyrir trampólínið. Aðeins þrjú lið eru búin að fá einkunn. 14:12 Æfingar á trampólíni að baki hjá íslenska liðinu. Fyrsta og þriðja umferðin gengu virkilega vel, nokkrar tæpar lendingar í þeirri annarri. 14:05 Ísland er númer þrjú í röðinni í blönduðum flokki. Íslenska liðið byrjar á trampólíni, svo er röðin komin að gólfæfingum og loks að æfingum á dýnu. 13:57Íris Mist Magnúsdóttir keppti á fjórum Evrópumótum, þ.á.m. 2010 og 2012 þegar Ísland tók gullið. Í dag er hún í öðru hlutverki, sem þjálfari kvennaliðsins.Viðtal við Írisi sem birtist í Fréttablaðinu í morgun má lesa með því að smella hér. 13:55 Á EM á Ísland fyrir tveimur árum lenti kvennaliðið okkar í 2. sæti og blandaða liðið í 5. sæti. Stelpurnar hafa endað í tveimur efstu sætunum á öllum Evrópumótum frá 2006. Tvö gull og þrjú silfur er uppskeran. 13:50 Níu lið taka þátt í blönduðum flokki og átta í kvennaflokki. Sex lið fara í úrslit í báðum flokkum. Úrslitin fara svo fram á laugardaginn. 13:45 Góðan daginn og velkominn í beina lýsingu frá öðrum degi á EM í hópfimleikum. Í dag fer fram undankeppni í fullorðinsflokki. Ísland á lið í blönduðum flokki og kvennaflokki. Keppni hjá blönduðu liðunum hefst klukkan 14:00 og klukkan 16:15 taka kvennaliðin við.
Fimleikar Mest lesið Denver reka þjálfarann korter í úrslitakeppni Körfubolti Afturelding mætir Val í undanúrslitum Handbolti „Meiri barátta í okkur í dag heldur en í hinum leikjunum“ Körfubolti „Erum á uppleið og ætlum að halda áfram“ Körfubolti Skytturnar skutu Evrópumeistarana í kaf Fótbolti Elísabet stýrði Belgíu til sigurs á Englandi Fótbolti Íslendingalið Birmingham upp í B-deild Enski boltinn Landsliðskonum borist skilaboð og sagðar styðja Ísrael Handbolti Uppgjörið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Fótbolti Sjáðu þrennu Karólínu Leu Fótbolti Fleiri fréttir Denver reka þjálfarann korter í úrslitakeppni „Meiri barátta í okkur í dag heldur en í hinum leikjunum“ Afturelding mætir Val í undanúrslitum „Erum á uppleið og ætlum að halda áfram“ Íslendingalið Birmingham upp í B-deild Elísabet stýrði Belgíu til sigurs á Englandi Óðinn Þór byrjaði úrslitakeppnina með stæl „Þarf alltaf að hugsa um það versta sem getur gerst“ „Ég hefði tekið þrjú stig í staðinn“ Sjáðu þrennu Karólínu Leu Uppgjörið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Uppgjörið: Haukar - Grindavík 76-73 | Deildarmeistararnir fengu líflínu Skytturnar skutu Evrópumeistarana í kaf Frattesi hetja Inter í Bæjaralandi Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 88-58 | Mættu með sópinn Aron Elís með slitið krossband Flórída háskólameistari í fyrsta sinn í átján ár „Við völdum okkur ekki andstæðinga“ Ein breyting á byrjunarliðinu Aron í tveggja leikja bann Stúkan segir ekki rautt og framkvæmdastjórinn æfur: „Má leggja hana niður“ Landsliðskonum borist skilaboð og sagðar styðja Ísrael Stórir draumar í Laugardalnum: „Allir vilja að Þróttur fari sem hæst“ Sjáðu hitt rauða spjaldið sem Gylfi hefur fengið á ferlinum „Erum að gera þetta fyrir samfélagið“ „Vælum og öskrum þó við meiðum okkur ekki neitt“ Settu met sem enginn vill eiga Borgaði ósáttum aðdáanda eftir rothögg Stefáns Inga Of ungur til að auglýsa veðmál Tekjur Handboltapassans tvöfaldist: „Mjög raunhæf áætlun“ Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Fótbolti
Uppgjörið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Fótbolti