Brotið var framið snemma sumars 2015 í gistiskála þar sem hópur nemendenda var kominn saman í útskriftarferðalagi til að fagna útskrift frá grunnskóla. Sváfu nemendur saman í litlum skálum en í dómi Héraðsdóms Reykjaness kemur fram að stelpurnar í hópnum hefðu kvartað undan að kojurnar í skálanum væru þröngar, því hefði drengurinn boðið stúlkunni, að sofa á dýnu hjá sér, en þau höfðu verið góðir vinir í lengri tíma.
Gisti á dýnu hjá honum þar sem kojurnar voru þröngar
Fyrir dómi sagðist konan hafa vaknað við að finna hönd á öðru brjósti sínu og gert sér grein fyrir því að höndin tilheyrði bekkjarfélaga sínum. Við það hafi hún spurt hann hvað hann væri að gera og snúið sér undan. Í framhaldinu hefði hann farið með höndina niður á rass hennar. Hann hefði síðan fært höndina og farið með fingur inn í leggöngin.Sagðist hún hafa reynt að koma sér frá bekkjarfélaga sínum Við það hætti hann og sofnuðu þau bæði.

Þá sagðist hann hafa vaknað um nóttina og þá hafi eitthvað komið yfir hann. Hann hafi káfað á brjóstum, rassi og kynfærum hennar, utan klæða. Þegar hann skynjaði að hún hefði vaknað hefði hann hætt og þau farið aftur að sofa. Neitaði hann því að hafa farið með fingur inn í leggöng konunnar.
Framburður hennar stöðugur og greinargóður
Í dómi héraðsdóms segir að þau tvö séu þau einu sem séu til frásagnar af því sem gerðist umrædda nótt. Var þó litið til þess að stúlkan sagðist hafa greint fjórum vinkonum sínum og móður sinni frá málsatvikum eftir að komið var heim úr ferðalaginu. Öll báru þau vitni fyrir dómi um að stúlkan hefði sagt að bekkjarfélagi hefði káfað á henni innan klæða.
Skilorðsbundinn dómur vegna margvíslegra þátta
Var drengurinn því sakfelldur fyrir nauðgun og dæmdur í tveggja ára fangelsi. Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að honum hafði ekki verið gerð refsing áður og hafi aðeins verið sextán ára gamall þegar brotið var framið. Þá var einnig litið til þess að hann hafi leitað til sálfræðings sem í vottorði greindi frá því að drengurinn hefði strax tekið ábyrgð á þeirri hegðun sem hann sýndi í skólaferðalaginu og reynt að draga úr þeim skaða sem hann olli.Þá var einnig litið til þess að hann hafi frá upphafi gengist við að hafa brotið gegn bekkjarsystur sinni, án þess þó að hafa játað sakargiftir að öllu leyti. Einnig var litið til langs málsmeðferðartíma málsins sem var um þrjú ár en rannsókn lögreglu lauk í lok maí 2015.
Þótti héraðsdómi því rétt að skilorðsbinda dóminn sem fellur niður haldi maðurinn skilorði í tvö ár. Þá þarf hann einnig að greiða stúlkunni 1,5 milljónir í miskabætur og 1,6 milljónir í sakarkostnað.