John Kerry, sérstakur erindreki Bandaríkjanna varðandi veðurfarsbreytingar hefur fundað stíft með Xie Zhenhua, erindreka Kína, í Sjanghaí undanfarna viku, í aðdraganda fjarráðstefnu Hvíta hússins um loftslagsmál sem haldin verður í næstu viku.
Niðurstaða funda Kerry og Xie er að Bandaríkin og Kína stefna að því að tækla veðurfarsbreytingar í sameiningu og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í sameiginlegri yfirlýsingu segir að báðir aðilar telji nauðsynlegt að takast á við vandamálið af þeim alvarleika og ákafa sem það krefst.
AP fréttaveitan hefur eftir Kerry, sem ræddi við blaðamenn í Suður-Kóreu í morgun, að yfirlýsing hans og Xie sé stóryrt, enda sé tilefni til. Hann hafi hins vegar fyrir löngu síðan lært að leggja meiri áherslu á gjörðir en orð.
Hér má sjá viðtal Sky News við Kerry frá því í morgun.
Kína losar mestan koltvísýring út í andrúmsloftið en Bandaríkin fylgja þeim fast á hæla. Samkvæmt AP fréttaveitunni losa ríkin tvö um helming þeirra gróðurhúsalofttegunda sem eru að hita andrúmsloft jarðarinnar.
Samstarf ríkjanna á þessu sviði þykir gífurlega mikilvægt fyrir baráttuna gegn veðurfarsbreytingum en samband þeirra hefur beðið töluverða hnekki á undanförnum árum sem rekja má meðal annars til tilkalls Kínverja til Taívans og Suður-Kínahafs, viðskiptadeilna og mannréttindabrota.
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur boðið fjörutíu þjóðarleiðtogum og þar á meðal Xi Jinping, forseta Kína, á fjarráðstefnu um veðurfarsbreytingar í vikunni. Þar stendur til að ræða og samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.
Le Yucheng, aðstoðarutanríkisráðherra Kína, gaf í skyn á föstudaginn að Kína myndi ekki samþykkja að draga úr losun á ráðstefnunni. Sagði hann að slíkt myndi reynast 1,4 milljarða manna þjóð erfitt og kröfur í garð Kína væru óraunhæfar.