„Við vorum þéttir sem var gott og skiptir máli á móti liði eins og KA. Við lögðum upp með það að vera þéttir og gefa fá færi á okkur.“
Stjarnan skoraði frábært mark í fyrri hálfleik sem var mikilvægt í ljósi þess hversu fá færi voru í leiknum.
„Þetta var jafn leikur framan af fannst mér. Við náðum hins vegar að skora þetta frábæra mark í fyrri hálfleik og náðum að halda þeim vel í skefjum í byrjun seinni og setjum svo annað markið úr frábærri skyndisókn og héldum fengum hlut sem var mjög gott.“
Það virtist fátt í leik KA manna koma gestunum úr Garðabænum á óvart.
„Við unnum bara okkar vinnu fyrir leik og mætum þéttir, varnarleikurinn var mjög góður af okkar hálfu. Við lokuðum á svæðin þeirra og gerðum þeim erfitt fyrir og það dugði í dag.“
Stjarnan hefur nú stoppað sigurgöngu tveggja liða í síðustu tveimur leikjum, fyrst Vals og nú KA.
„Það er frábær stemmning í hópnum. Það að koma hingað norður og fá þrjú stig hjálpar okkur í framhaldinu. Við erum strax farnir að huga að miðvikudeginum en þá eigum við leik í Mjólkurbikarnum á móti KR heima og það verður verðugt verkefni.“
Stjarnan er með 14 stig í þriðja sæti deildarinnar.
„Það er gaman að vera Stjörnumaður í augnablikinu og Garðbæingur, það gengur vel hjá okkur.“
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.