Eina mark leiksins kom eftir vítaspyrnu sem dómarinn ákvað að dæma þar sem hann taldi að boltinn hefði farið í hönd Valgeirs, á 70. mínútu, eftir fyrirgjöf frá vinstri.
Valgeir trúði ekki eigin augum þegar hann sá að dómarinn hefði dæmt víti og reyndi ákaft að fá dómarann ofan af því og skilja að boltinn hefði farið í búk hans. Hér að neðan má sjá vítaspyrnudóminn og viðbrögð Valgeirs og félaga hans.
Repris på situationen pic.twitter.com/8H5IHIqATQ
— discovery+ sport (@dplus_sportSE) May 24, 2023
Eftir leik kallaði þjálfari Valgeirs eftir því að myndbandsdómgæsla (VAR) yrði tekin upp í Svíþjóð, og Valgeir ítrekaði að hann hefði ekki fengið boltann í höndina heldur í maga eða brjóstkassa:
„Þetta var ekkert víti. Dómarinn gerði mistök,“ sagði Valgeir.
„Fór í brjóstkassann á Valgeiri“
Per-Mathias Høgmo, fyrrverandi landsliðsþjálfari Noregs, er þjálfari Häcken og hann var illur í leiksklok.
„Boltinn fór í brjóstkassann á Valgeiri Friðrikssyni. Djurgården hefur spilað tvo heimaleiki, í þeim fyrri var klár rangstaða og svo þetta hérna. Þetta gengur ekki,“ sagði Høgmo við Discovery+.
„Það er verið að dæma til að bæta fyrir eitthvað. Eins slæmt og það verður. Ég er hundsvekktur. Þetta er ekki nógu gott. Ég óska Djurgården til hamingju með sigurinn en ég er alls ekki hrifinn af þessu. Dómarinn getur ekki verið viss um þetta,“ sagði Høgmo og fór svo að kalla eftir notkun VAR í Svíþjóð, sem hann sagði hafa heppnast vel í Noregi.
„Ég skil að stuðningsmenn vilji halda í tilfinningarnar en í Noregi erum við áfram með mikla pressu og frábæra stemningu. Ég er bara viss um að VAR er eitthvað sem myndi gera okkur öll betri og sjá til þess að minni orka færi í að ræða einhver svona mál,“ sagði Høgmo.
Þetta var þriðja tap Häcken í tíu leikjum á tímabilinu og er liðið í 3. sæti deildarinnar með 19 stig, nú sex stigum á eftir toppliði Malmö. Liðið er þremur stigum fyrir ofan Djurgården sem komst upp í 5. sæti.