
Reykjavík

Líkamsárásir, þjófnaðir og rúðubrot
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í nótt og var meðal annars kölluð til vegna þriggja þjófnaða úr verslunum í póstnúmerinu 108.

Bjargar deginum að komast aðeins úr klefanum
Fangar á Hólmsheiði eru á fullu þessa dagana að framleiða, mála og búa til jólaskraut sem þeir selja. Fangi segir það gríðarlega mikilvægt að fá að gera eitthvað á daginn annað en að hanga inni í klefa.

Óánægja í Laugarneshverfi: „Við ráðum ekki við þetta ægivald“
Formaður foreldrafélags Laugarnesskóla segir skólasamfélagið allt hafa barist fyrir að grunnskólar í Laugarneshverfi yrðu stækkaðir í stað þess að byggður yrði safnskóli fyrir unglingadeildir í hverfinu. Hún segir skólahverfið rótgróið og farsælt og skólasamfélagið vilji halda í þá skólagerð.

Heillandi hæð kvikmyndagerðakonu við Ægisíðu
Rebekka Rafnsdóttir, kvikmyndagerðarkona og rithöfundur, hefur sett fallega hæð við Ægisíðu á sölu. Um er að ræða 174 fermetra hæð í húsi sem var byggt árið 1952 og steinað meðal annars með íslenskri hrafntinnu.

Höll sumarlandsins komin á sölu
Grínistinn Halldór Laxness Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, og eiginkona hans, Magnea Þóra Guðmundsdóttir arkitekt, hafa sett íbuð sína við Skeljanes á sölu. Ásett verð er 108 milljónir.

Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge
Borgarleikhúsið hefur tryggt sér sýningarrétt á nýrri útfærslu Nordiska Production á Moulin Rouge! söngleiknum sem frumsýndur verður á Stóra sviðinu í september 2025.

250 sýningar af Elly: „Án hennar væri Íslandssagan öðruvísi“
Einn þekktasti söngleikur landsins um Ellý var sýndur í 250. sinn í Borgarleikhúsinu um helgina. Að sögn aðstandenda sýningarinnar var gríðarleg stemning.

Villi Vill og Halla Vilhjálms á Nínu
Það var líf og fjör á opnun skemmtistaðarins Nínu við Hverfisgötu á dögunum. Eigendur segja staðinn vera svar við kalli landsmanna um öðruvísi og lágstemmdari skemmtistað í miðborg Reykjavíkur. Margt var um manninn og ýmis þekkt andlit létu sjá sig.

„Mikilvægt fyrir dalinn að það sé komin ákvörðun“
Skóla- og frístundaráð Reyjavíkurborgar hefur tekið endanlega ákvörðun um framtíð skólamála í Laugarneshverfi, sem verður áfram eitt skólahverfi og reistur verður safnskóli fyrir elstu börnin. Formaður ráðsins segir gott að niðurstaða sé komin í málið.

Hundarnir áttu ekki að vera saman
Annar hundanna sem grunaðir eru um að hafa banað ketti í Laugardalnum gær er nú í vörslu Dýraþjónustu Reykjavíkur. Deildarstjóri þar segir hundana ekki hafa átt að vera á sama heimilinu. Málið sé nú til rannsóknar.

Heimiliskötturinn drepinn við kjallaratröppurnar
Fólk í Langholtshverfi er varað við því í íbúahópi, að hundar gangi nú lausir og drepi ketti.

Kærastinn fær áheyrn í Menningarnæturmálinu
Héraðsdómur Reykjavíkur þarf að taka fyrir skaðabótakröfu pilts í Menningarnæturmálinu svokallaða. Héraðsdómur hafði áður vísað kröfunni frá dómi, en Landsréttur hefur vísað málinu aftur í hérað.

Laugarneshverfi verður áfram eitt skólahverfi
Skóla- og frístundaráð hefur fallið frá hugmyndum sínum um að skipta Laugarneshverfi upp í nokkur skólahverfi. Þess í stað hefur verið ákveðið að hverfið verði enn eitt skólahverfi, að sett verði upp skólaþorp á meðan Laugarnesskóli er lagaður og að byggður verði nýr safnskóli fyrir elstu börnin.

Framtíðarsýn skóla og frístundastarfs í Lauganes- og Langholtshverfi
Laugarnesskóli, Langholtsskóli og Laugalækjaskóli auk frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Lauganes- og Langholtshverfi eru í fararbroddi í fagstarfi sínu. Þeir hafa allir hlotið viðurkenningar fyrir framúrskarandi menntastarf og þar hafa börn hverfisins fengið að blómstra.

Einn fluttur á slysadeild eftir slys á Höfðabakkabrú
Einn var fluttur á slysadeild nú í morgunsárið þegar bílslys varð á Höfðabakkabrú í Reykjavík.

„Þetta er búið að valda fólkinu í hverfinu mikilli sorg“
„Út með illsku og hatur inn með gleði og frið,” segir í texta Magnúsar Eiríkssonar við jólasmellinn Gleði og friðarjól. Það sem veitir einum gleði er þó ekki alltaf til þess fallið að skapa friðarjól. Þannig eru nágrannaerjur vegna jólaskrauts fastur liður á aðventunni að sögn formanns Húseigendafélagsins. Íbúi í Laugardal sem er hætt að skreyta vegna deilna við nágranna segir það huggun harmi gegn að nú fái skrautið notið sín á öðrum heimilum.

„Við ætlum ekki að skaffa Landspítalanum fleiri verkefni“
Umfangsmikilli jóladagskrá Árbæjarsafns sem átti að fara fram í dag hefur verið aflýst vegna mikillar hálku. Telur starfsfólk að þetta sé í fyrsta sinn sem hún verður ekki á sínum stað frá því að hefðin hófst árið 1989, ef frá eru talin hin óvenjulegu Covid-ár.

Stöðvuðu átta bifreiðar með jólaseríur
Lögreglan stöðvaði átta ökumenn í Reykjavík þar sem meðal annars var búið að skreyta bifreiðarnar með jólaseríu. Þær voru í kjölfarið boðaðar í skoðun.

Kastaði hundi í lögreglumann
Ágreiningur milli mæðra fór svo að önnur kastaði litlum hundi sem hún hélt á í bringu lögreglumanns. Konan var töluvert ölvuð og var að lokum handtekin. Hundurinn reyndist ómeiddur eftir kastið.

Reykjavíkurborg salti auðan stíg en ekki flughálan
Yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans hefur aldrei séð annan eins fjölda hálkuslysa á skömmum tíma, en flughált er víða. Íbúi í Vesturbæ Reykjavíkur segir farir sínar ekki sléttar af hálkuvörnum borgarinnar.

Ólafur og Guðrún flytja inn saman
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, og kærastan hans Guðrún Ragna Hreinsdóttir, gæðastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík, hafa fest kaup á fallegu raðhúsi í Ártúnsholti í Reykjavík. Parið opinberaði samband sitt í lok árs í fyrra.

Arnar Grant flytur í Vogahverfið
Einkaþjálfarinn Arnar Grant hefur fest kaup á íbúð við Drómundarvog í Reykjavík. Íbúðina keypti hann af Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekanda.

Grunaðir um vopnað rán í íbúð í Breiðholti
Tveir menn er grunaðir um að fremja rán í íbúð í Breiðholti á miðvikudag. Mennirnir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa, en ekki verður gerð krafa um gæsluvarðhald á hendur þeim.

Árni Indriðason er látinn
Árni Indriðason, menntaskólakennari og sagnfræðingur, er látinn, 74 ára að aldri.

Samþykkja að leikskólabyggingin verði rifin
Borgarráð Reykjavíkurborg hefur samþykkt ósk umhverfis- og skipulagssviðs um að stöðva framkvæmdir við endurbætur á leikskólanum Laugasól við Leirulæk og heimild til að rífa húsið til að hægt sé að hanna og reisa nýjan leikskóla á lóðinni.

Foreldrar hæstánægðir með Lund þó breytingar verði gerðar
Foreldrar barna á ungbarnaleikskólanum Lundi eru upp til hópa ánægðir með leikskólann og merkja vellíðan hjá börnum sínum. Þeir telja að farið hafi verið offari í lýsingum fyrrverandi starfsfólks á samfélagsmiðlum.

Jón Nordal er látinn
Jón Nordal tónskáld og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík andaðist í gær, 5. desember, 98 ára að aldri. Hann var meðal ástsælustu tónskálda þjóðarinnar og einn helsti forystumaður í uppbyggingu tónlistarlífs á Íslandi á síðastliðinni öld.

„Snappaði“ eftir að snjóbolti hafnaði á bílrúðunni
Karlmaður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að brjóta barnaverndarlög vegna framkomu sinnar gagnvart tveimur ellefu ára drengjum. Manninum er þó ekki gerð refsing í málinu.

Tveggja bíla árekstur við Holtagarða
Betur fór en á horfðist þegar sendibíll og fólksbíll rákust á við gatnamót Sæbrautar og Holtavegar í austurhluta Reykjavíkur á tíunda tímanum. Enginn slasaðist alvarlega í árekstrinum.

Tveir grunaðir um frelsissviptingu
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um rán og frelsissviptingu í íbúð í Breiðholti. Tveir voru handteknir þegar lögregluþjóna bar að garði og settir í fangaklefa.