
Viðreisn

Allir punktar stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar var kynnt á blaðamannafundi í Hafnarhúsinu í Hafnarfirði í dag. Hún inniheldur helstu áhersluatriði ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, sem talin eru fram í 23 punktum.

Full tilhlökkunar að taka við nýju ráðuneyti
Hanna Katrín Friðriksson mun taka við nýju atvinnuvegaráðuneyti, sem verður nýtt og sameinað ráðuneyti um landbúnað, sjávarútveg, iðnað og fleira. Hanna segir ljóst að ráðuneytið sé risastórt og mikilvægið gríðarlegt.

„Það verður unnið fyrir heimilin í landinu“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir að dagurinn verði góður og farsæll fyrir íslensku þjóðina. Djúpt og ríkt traust ríkti milli hennar Kristrúnar Frostadóttur og Ingu Sæland.

„Ég held að þetta sé góður dagur fyrir þjóðina“
Daði Már Kristófersson varaformaður Viðreisnar verður fjármála- og efnahagsráðherra utanþings í nýrri ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins. Daði Már er prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.

Vaktin: Ný ríkisstjórn kynnt fyrir landanum
Ný ríkisstjórn Flokks fólksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar var kynnt Íslendingum í dag. Þá kynntu valkyrjurnar svokölluðu; Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir stjórnarsáttmála þeirra og ráðherra.

Ríkisstjórn sem þarfnist mikillar samhæfingar milli formannanna
Prófessor í stjórnmálafræði segir líklegt að helstu áherslumál nýrrar ríkisstjórnar verði tiltekt í ríkisfjármálum og staða þeirra sem höllum fæti standa. Mönnun í einstaka ráðherrastóla skipti minna máli.

„Nokkuð þægilegt samtal um hver fái hvað“
Almannatengill telur víst að Kristrún Frostadóttir verði næsti forsætisráðherra landins og Viðreisn fái fjármálaráðuneyti og utanríkisráðuneyti. Boðað hefur verið til blaðamannafundar í Hafnarborg í Hafnarfirði klukkan eitt á morgun þar sem stjórnarsáttmáli og ráðherraskipan verður tilkynnt.

Kynna ráðherraskipan í Hafnarborg
Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hafa boðað til fréttamannafundar klukkan eitt á á morgun, laugardaginn 21. desember, í Hafnarborg í Hafnarfirði.

Viðreisn fær utanríkis- og fjármálaráðuneytið
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar verður forsætisráðherra í þeirri ríkisstjórn sem brátt verður kynnt til sögunnar.

Kristrún sögð verða forsætisráðherra í nýrri stjórn
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, er sögð verða forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins.

Þjóðin fær nýja ríkisstjórn í jólagjöf
Formenn Flokks fólksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar stefna að því að kynna stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar um helgina. Þá hefur skipting ráðuneyta sömuleiðis verið rædd.

Bein útsending: Nýjustu tíðindi af viðræðunum
Formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins munu kynna nýjan stjórnarsáttmála um helgina. Hann verður kynntur þingflokkum á morgun. Formennirnir þrír áætla að ein þeirra fari svo á fund forseta í kjölfarið til að staðfesta skipan ráðuneyta og þannig verði búið að mynda nýja ríkisstjórn um helgina.

Mögulega tíðindi fyrir jól
Stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins halda áfram í dag. Mögulega er búist við að formenn flokkanna kynni stjórnarsáttmála fyrir jól, jafnvel strax á laugardag.

Langflestir vilja ríkisstjórnina sem samið er um
Ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er það sem langflestir svarendur í þjóðarpúlsi Gallups segjast vilja sjá. Meirihluti svarenda er sáttur við úrslit alþingiskosninganna í síðasta mánuði.

Sterkt samband formanna gott veganesti
Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins halda eftir hádegi áfram vinnu við að skrifa stjórnarsáttmála flokkanna. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segist enn bjartsýn á að það takist að mynda nýja ríkisstjórn fyrir áramótin.

Vinna við skrif stjórnarsáttmála hafin
Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins vinna nú að því að skrifa nýjan stjórnarsáttmála ríkisstjórnar.

Funduðu ekki um helgina eins og til stóð
Formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins funduðu ekki um helginu um stjórnarmyndun eins og til stóð. Þess í stað fóru þeir yfir stöðu mála hver í sínu lagi. Áfram verður fundað í dag.

Virðast hafa leyst úr ágreiningi Viðreisnar og Flokks fólksins
Stjórnmálafræðingur segir ljóst að valkyrjurnar svokölluðu hafi leyst stór ágreiningsmál á síðustu dögum. Þær séu staðráðnar í að mynda ríkisstjórn og aðrir flokkar hafi sætt sig við það.

Svara Bjarna fullum hálsi: „Hann myndi vita það best hvernig hann er að skilja við ríkissjóð“
„Ég myndi vísa þessu á Bjarna Benediktsson, hann myndi vita það best hvernig hann er að skilja við ríkissjóð og félagar hans.“

„Ég held að þetta fólk sé bara ekki læst á neinar tölur“
„Ég held að þetta fólk sé bara ekki læst á neinar tölur, því þetta lá fyrir við afgreiðslu fjárlaga,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra í samtali við fréttastofu.

Stefna að því að byrja á stjórnarsáttmála eftir helgi
Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins stefna að því að hefja ritun stjórnarsáttmála eftir helgi. Þetta kom fram í máli þeirra þegar þær ræddu við fjölmiðla í þinghúsinu í dag. Þar sagði Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, að viðræðum miðaði vel. Inga Sæland sagði slúður um ráðherra utanþings stórlega ýkt.

Valkyrjurnar ræða við fjölmiðla
Formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins ræða við fjölmiðla nú innan skamms, en þær hafa staðið í stjórnarmyndunarviðræðum frá kosningum. Vísir verður í beinni útsendingu.

Hverskonar frelsi vill Viðreisn?
Hverskonar frelsi er það sem Viðreisn berst fyrir? Er það samskonar frelsi og hægriflokkarnir í Svíþjóð hafa barist fyrir og komið á undanfarna áratugi? Frelsi til aukinnar spillingar?

Þingflokkar funda hver í sínu lagi
Þingflokkar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins funda hver í sínu lagi í hádeginu á Alþingi í dag. Stjórnarmyndunarviðræður halda einnig áfram. Formenn flokkanna hafa ekki fundað einar í morgun en munu mögulega gera það síðar í dag.

Vonbetri eftir daginn í dag
„Eftir þennan dag er ég vonbetri um að þetta geti náð saman. Ég segi það með þeim fyrirvara að það eru nokkur stór álitaefni eftir. En miðað við hvernig við höfum leyst önnur álitaefni er ég bjartsýn á að við náum niðurstöðum í þeim. Meiri líkur en minni eftir þennan dag að við sjáum nýja ríkisstjórn alla vega fyrir áramót.“

Verkefni næstu ríkisstjórnar flóknara en áður var útlit fyrir
Verri afkoma ríkissjóðs en gert var ráð fyrir eru ekki góðar fréttir fyrir næstu ríkisstjórn, að sögn aðalhagfræðings Landsbankans. Hægara vaxtalækkunarferli og breytingar á fjárlögum skipti þar talsverðu máli.

Auglýstu á samfélagsmiðlum fyrir 45 milljónir
Stjórnmálaflokkar, aðildarfélög þeirra og einstaka frambjóðendur til Alþingis vörðu samtals um 44,8 milljónum króna í auglýsingar á samfélagsmiðlum Meta síðustu 30 dagana fyrir kosningar. Mestu varði Sjálfstæðisflokkurinn eða rétt tæpum níu milljónum króna, þá Flokkur fólksins sem notaði rúmar 7,5 milljónir í slíkar auglýsingar og Framsóknarflokkurinn kemur þar fast á hæla með rúmar 7,2 milljónir sem fóru í auglýsingar á samfélagsmiðlum Meta, það er Facebook og Instagram. Samfylkingin er í fjórða sæti og eyddi tæpum 5,7 milljónum og þá Miðflokkurinn sem eyddi rétt undir 4,6 milljónum.

Bjartsýn á að til verði stjórn sem þori að taka ákvarðanir
Formaður Samfylkingarinnar segir ljóst að einhver verkefni verði að bíða vegna verri afkomu ríkissjóðs en áætlanir fráfarandi ríkisstjórnar gerðu ráð fyrir. Hún er þó bjartsýn á mögulegt stjórnarsamstarf flokka sem þori að taka ákvarðanir sem fyrri stjórn hafi ekki treyst sér í.

Fráfarandi stjórn skilji eftir verra bú en haldið er fram
Kristrún Frostadóttir segir liggja fyrir að fráfarandi ríkisstjórn skilji eftir sig verra bú en ríkisstjórnin hafi haldið fram. Við stjórnarmyndunarviðræður nú sé mikil áhersla lögð á efnahagsmálin. Búið sé að setja fram nokkuð stífan afkomuramma í viðræðunum.

Þrír hópar vinna að málefnum fyrir nýja ríkisstjórn
Þrír vinnuhópar flokkanna þriggja sem reyna með sér stjórnarmyndun taka til starfa í dag og formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins halda sömuleiðis áfram að ræða málin.