Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Danstónlistin tekur yfir
Plötusnúðatvíeykið Booka Shade hélt fjöruga tónleika í Gamla bíói á laugardagskvöld þar sem stiginn var trylltur dans. Læknirinn og plötusnúðurinn Doctor Victor var meðal tónleikagesta. Hann er sömuleiðis að fara af stað með danstónlistarþátt á FM957 og birti færslu um það á Instagram.
Glæsilegar mæður
Elísabet Metta athafnarkona og eigandi Maikai er komin 29 vikur á leið og birti glæsilega bumbumynd í tilefni af því.
Birgitta Líf bíður sömuleiðis spennt eftir barni og skrifar á Instagram síðu sína að það sé hin kraftmesta sköpun að vera með vaxandi líf innra með sér.
Áhrifavaldurinn Thelma Guðmundssen fékk yndislega barnasturtu.
Danskennarinn og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir átti skemmtilega helgi. Ein af hennar bestu vinkonum, Helga Rakel Ómarsdóttir, fagnaði þrítugsafmæli sínu á Petersen svítunni á laugardagskvöld og voru Ástrós og Kristín Pétursdóttir meðal gesta. Patrik Atlason tróð upp og fékk alla til að dansa.
Ástrós Traustadóttir var sömuleiðis að fara af stað með hlaðvarpið Mömmulífið ásamt Guðrúnu Sortveit.
Þorrablót og tjútt
Brynja Dan, varaþingmaður Framsóknar í Garðabæ og eigandi Extraloppunnar, skellti sér á þorrablót Stjörnunnar um helgina. Mafíu-konu (e. mob-wife) æðið hefur verið gríðarlega vinsælt að undanförnu og má sjá að Brynja sótti innblástur í það fyrir klæðnað kvöldsins.
Næringaþjálfarinn Helga Magga fór á Þorrablót Miðbæjar og Hlíða og sömuleiðis Þorgrímur Þráinsson.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra ræddi handboltann, þjóðmálin og hvernig á að borða sviðakjamma á Þorrablóti Fram.
Sara Lind, jafnan tengd við fataverslunina Júník, fagnaði 34 ára afmæli sínu um helgina.
Bóndadagur
Samfélagsmiðlar fylltust af ást á föstudaginn þegar bóndadags færslurnar fóru á flug.
Leikkonan María Birta deildi fallegu myndbandi af eiginmanni sínum og barni þar sem hún skrifaði „Til hamingju með bóndadaginn engillinn minn. Við elskum þig til tunglsins og til baka“
Gummi Kíró birti mynd af sér í sturtu þar sem hann óskar strákum landsins gleðilegan bóndadag og minnir á mikilvægi góðrar húðumhirðu.
Markaðsstjórinn og áhrifavaldurinn Sigríður Margrét segist heppin með bónda en hún er í sambúð með fatahönnuðinum Guðmundi.
Milla Ósk, aðstoðarmaður ráðherra, birti sæta kossamynd af sér og manninum sínum, borgarstjóranum Einari Þorsteinssyni, þar sem hún skrifar að hún sé ólýsanlega ánægð og heppin með hann.
Útivera 2024
Ofurskvísurnar Gerða InShape, Tinna Aðalbjörns, Heiður Ósk, Andrea Magnúsdóttir, Erna Viktoría og Hjördís Perla skelltu sér á Úlfarsfell á sunnudagsmorgun en Gerða hefur sagt að árið 2024 sé ár útiverunnar.
