Ísland leikur því þrjá vináttulandsleiki snemmsumars en ekki tvo eins og áætlað var.
Íslendingar verða á ferð á flugi um þarnæstu mánaðarmót. Þeir mæta Mexíkóum í Texas 30. maí, Færeyingum í Þórshöfn 4. júní og Pólverjum í Poznan 8. júní.
A landslið karla mætir Mexíkó í vináttulandsleik í Bandaríkjunum 30. maí næstkomandi og leikur íslenska liðið því þrjá vináttuleiki í sumar alla á útivelli, en áður hafði KSÍ staðfest leiki við Færeyjar 4. júní og við Pólland 8. júní. pic.twitter.com/BXObPjNc3T
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) April 7, 2021
Þetta verða fyrstu vináttulandsleikir Íslands undir stjórn Arnars Þórs Viðarssonar. Íslenska liðið leikur svo síðustu sjö leiki sína í undankeppni HM 2022 í haust.
Ísland og Mexíkó hafa fjórum sinnum áður mæst og hafa allir leikir farið fram í Bandaríkjunum.
Tvisvar hafa liðin gert markalaust jafntefli og Mexíkóar hafa unnið tvo leiki, þar á meðal síðasta leik liðanna, 3-0, í mars 2018. Ísland hefur ekki enn tekist að skora gegn Mexíkó.